Vikan - 28.08.1986, Blaðsíða 9
J
Heimilið '86
Sýning allrar fiölskyldunnar
í dag verður opnuð í Laugardalshöll sýningin
Heimilið ’86 og stendur hún til 7. september. Er
þetta í sextánda sinn sem sýningin er haldin.
Kaupstefhan hf. hefúr frá upphafi séð um fram-
kvæmd hennar. Þorsteinn Fr. Sigurðsson rekstrar-
hagfræðingur er framkvæmdastjóri Kaupstefn-
unnar.
Þorsteinn, hver er tilgangurinn með Heimilis-
sýningunum?
„Tilgangurinn er að skapa fyrirtækjum vett-
vang fyiir vörur sem þau vilja koma á framfæri
við neytendur."
Er vænlegt að velja þessa leið til þess að ná
fyrrgreindu markmiði?
„Já, það hefur sýnt sig að bein tengsl við neyt-
endur reynast best til þess að koma ákveðinni
vöru til þeirra og vörusýningar eru ein áhrifa-
mesta leiðin."
Hvað taka margir aðilar þátt i sýningunni.
„Þeir munu vera um hundrað."
Er Heimilið sýning sérgreina?
„Nei, við leitumst við að sýna þverskurð þess
reksturs sem fram fer hér á landi. Sýnendur eru
jafnt fyrirtæki, stofhanir og einstaklingar."
Spanna vörur jafhbreitt svið?
„Já, þama verða flestir vöruflokkar á íslenska
markaðnum kynntir."
Er Heimilið sölusýning?
„Nei, Heimilið er ekki sölusýning en á henni
er markaðsbragur. Við hvetjum sýnendur til þess
að bjóða vörur á sérstöku kynningarverði meðan
á henni stendur.“
Verða einliverju gerð ítarleg skil á sýningunni?
„Já, á neðri hæð Hallarinnar verður sérsýning
sem kallast Hugvit ’86 og iðnaðarráðuneytið hefur
skipulagt.“
Hvað verður þar til sýnis?
„Þar verða kynntar vörur um tuttugu íslenskra
hugvits- og uppfinningamanna. Sýnd verður þróun
vöru frá því að hugmyndin að henni fæðist og þar
til hún er markaðssett."
Hvemig verður það gert?
„Hugvitsmenn munu sýna þessa þróun í formi
teikninga og líkana og svo munu þeir kynna vör-
una eins og hún er i dag. I tengslum við þessa
sýningu verða haldnar ráðstefriur og námskeið."
Hvert verður inntak þeirra?
„Það er margvíslegt, nefha má námskeið í fjár-
mögnun, vemdun einkaréttai’, stofhun fyrirtækja
og fleira."
Nú hefur Heimilið löngum verið sýning allrar
fjölskyldunnar, verður svo að þessu sinni?
„Já, fólk er hvatt til þess að mæta með alla fjöl-
skylduna. Sérstök bamagæsla verður starfrækt
fyrir yngstu bömin og fjölmörg skemmtiatriði
ættu að kæta eldri fjölskyldumeðli."
Hver verða þau helst?
Fyrst má nefna flokk Qöllistarmanna, Comm-
ondores Cabaret frá Bretlandi, sem mun halda
reglulegar sýningar daglega. I hópnum er meðal
annars sjónhverfingamaður sem þykir ótrúlega
leikinn og risatrúður sem er um þrír metrar á
hæð. Þá verður í baksal starfrækt lítið tívolí sem
gengur undir nafninu Skemmtiland."
Verða einhveijir athyglisverðir munir til sýnis?
„Já, meðal annars verður þama tónlistarbrunn-
ur, mikil undrasmíð, sérstaklega fluttur hingað frá
Þýskalandi. Þessi furðugripur ætti ekki síður að
gleðja eym en augu sýningargesta. Þá má nefha
pönnu sem er einhver sú stærsta sinnar tegundar
í heiminum. Sjávarréttafyrirtækið Marska frá
Skagaströnd ætlar að baka heimsins stærstu sjáv-
arréttaböku og til þess ama var pannan smíðuð.
Hingað koma svo erlendir sérfræðingar til þess
að skera úr um hvort Skagstrendingum tekst að
setja heimsmet."
Em Skagstrendingar að ana út í eitthvað sem
þeir ráða ekki við?
„Nei, það tel ég ekki. Ég minni á að 1977 var
smíðaður stærsti stóll heims í tilefhi Heimilsins
og ég er viss um að Heimilið mun einnig eignast
stærstu sjávarréttabökuna!"
Manstu eftir einhveiju fleiru, sýningargestum
til gagns og gamans?
„Já, þess má geta að Skáksamband Islands verð-
ur með skákbás á sýningunni. Þangað mun eirrn
liðsmaður úr ólympíuliði Islands mæta daglega
og tefla við gesti.“
Svo við snúum okkur að öðm, Þorsteinn, hvað
koma margir til með að starfa við sýninguna?
„I allt munu tengjast henni um tvö þúsund
manns en á vegum Kaupstefhunnar koma þó ein-
ungis til með að starfa um íjömtíu manns.“
Hversu marga gesti þarf svo sýningin standi
undir kostnaði
„Við gerum ráð fyrir að það þurfi um það bil
þrjátíu þúsund manns."
í sumar hefur verið ótrúlega mikið um sýningar
og hátíðarhöld af ýmsu tagi. Heldur þú að það
dragi úr aðsókn?
„Nei, alls ekki, ég held einmitt að svona mikill
gróándi verki sem hvati á fólk og býst ekki við
minni aðsókn af þeim sökum. Ég tel að Heimilið
hafi skipað sér það fastan sess í hugum lands-
rnanna."
Viltu spá einhverju um aðsókn?
„Ja, ætli það komi ekki svona milli fjömtíu og
fjömtíu og fimm þúsund manns.“
Mafn Vikunnar:
^orsíeinn Fr, Sigurðsson
35. TBL VIKAN 9