Vikan


Vikan - 28.08.1986, Page 16

Vikan - 28.08.1986, Page 16
ÆKNISVITJUN Um sex mánaöa skeið hafa sex læknar svarað spurningum les- enda Vikunnar um læknisfræðileg efni. Vitjuninni var ýtt úr vör í marsbyrjun á þessu ári og samkvæmt upphaflegri áætlun átti hún að vara í sex mánuði. Skeiðið er á enda runnið. Lesendur okkar brugðust vel við þessu efni. Svör læknanna hafa verið vel metin enda til þeirra vandað. Við þökkum læknunum Gesti Þor- geirssyni, Helga Kristbjarnarsyni, Jóhanni Ágústi Sigurðssyni, Leifi Bárðarsyni, Óttari Guðmundssyni og Sigurði Guðmunds- syni kærlega fyrir samstarfiö í þessari lotu. Timinn verður að leiða i Ijós hvort eða hvenær næsta lota hefst. Hafið þökk fyrir gott samstarf. Ritstjóri. BRJOSTA- MJÓLKOG IMIKÓTÍIM SPURNING: Ég er nýorðin móðir og hef barn á brjósti. Ég bæði reyki sígarettur og fæ mér öðru hvoru í glas. Hef- ur þetta einhver áhrif á barnið, fer áfengi og tóbak í barnið með móðurmjólkinni? SVAR: Mæður, sem reykja mikið, virð- ast fá minnkað bióðfiæði gegnum brjóstkirtilinn og magn mjólkur- innar getur þess vegna minnkað. Nikótin fer inn i brjóstamjólkina en frásogið frá maga og þörmum barnsins er mjög lélegt. Senniiega er hættan, sem barninu stafar af reykingum móðurinnar, mun meiri af reyknum i andrúmsloftinu held- ur en af því nikótíni sem fer i mjólkina. Alkóhól dreifist um líkamann og er I sama magni i móðurmjólk- inni og blóðvatni móðurinnar. Sá skammtur, sem barnið fær eftir tvö til þrjú glös af víni, er næsta lítill og áhrifin á barnið sennilega eng- in. Með aukinni alkóhólneyslu aukast áhrifin á barnið. Alkóhól virðist hafa slæm áhrif á sjálfa brjóstagjöfina og í tilraunum hefur verið sýnt fram á að eftir þvi sem alkóhólneyslan eykst m/nnkar eðlilegt tæmiviðbragð brjóstkirt- ilsins. Mæður með börn á brjósti ættu þvi að fara mjög varlega bæði hvað varðar reykingar svo og hvað varðar áfengisneyslu. OF LÍTILL GETNAÐAR- LIMUR SPURNING: Ég vona að þið getið svarað mér og gefið mér viðeigandi ráð. Vandamálið er það að mér finnst að ég hafi of lítinn getnaðarlim. Þetta háir mér og ég verð feiminn þegar ég er í sturtu ásamt fleirum. SVAR: Lengd getnaðarlims karlmanna er mjög mismunandi. Kinsey rannsakaði 2376 karlmenn og komst að þeirri niðurstöðu að meðallengd getnaðarlims í stöðu væri 15 cm, dreifingin á bilinu 9-22 cm. Aldrei hefur verið hægt að sýna fram á samband milli lík- amshæðar og lengdar getnaðar- lims og ekki heldur að lengd getnaðarlims skipti máli varðandi hæfni einstaklingsins til samfara. Það er ekki hægt að lengja getn- aðarliminn þó ýmsir óvandaðir kaupahéðnar reyni að selja alls kyns tæki og tól til þess. Það er eðlilegt að þú látir einhvern lækni líta á þig og ræðir við hann um þetta vandamál svo hægt sé að útiloka ýmsa sjaldgæfa sjúkdóma sem valdið geta lítilli stærð getn- aðarlims. Langlíklegast er þó að ekki sé um slíka sjúkdóma að ræða og þá er gott að hafa í huga að kyngetan er i engu samræmi við lengd getnaðarlimsins og hæfni manna til að fullnægja konum er undir samfaratækninni komin en ekki lengd limsins. ÞUNGUN KONUNNAR ORSÖK MAGAÓÞÆG- INDA KARLSINS SPURNING: Ég er 35 ára gamall maður og fyrir þrem mánuðum eignuðumst konan mín og ég okkar fyrsta barn. Meðan konan mín gekk með barn- ið þyngdist ég og var oft með alls kyns magaóþægindi. Þegar ég ræddi um þetta við kvensjúk- dómalækni sagði hann þessi einkenni standa í sambandi við þungun konunnar. Getur það ver- ið? SVAR: Það hefur lengi verið þekkt að verðandi feður geti fengið alls kyns likamleg óþægindi meðan á þungun konunnarstendur. Maga- kvöl og tannpína hjá verðandi feðrum hefur verið lýst i læknarit- um frá 17. öld. i seinni heimsstyrjöldinni var lýst tannpinu og kviðverkjum hjá hermönnum á vígvöllum þegar eiginkonan heima var með barni eða var að fæða barn. Það er talið að líkamleg óþægindi hjá verð- andi feðrum láti á sér kræla hjá tuttugu prósent karlmanna. Venjulegustu einkennin eru þyngdaraukning, breyting á mat- arlyst, tannpína og magaóþæg- indi auk alls kyns verkja. Það er ekki talið að einkennin séu á neinn hátt eftirlíking á einkennum kon- unnar heldur eigi rætur að rekja til kvíða og ótta mannsins. Þessi óþægindi eru venjuleg hjá eldri mönnum og hjá þeim karlmönn- um sem voru mjög bundnir og háðir móður sinni og auk þess meðal þeirra sem eru mjög kviðnir og spenntir vegna þungunarinnar og fæðingarinnar. Við þessum einkennum þarf yfirleitt aldrei neina meðferð en rétt er að læknar viti um tilveru þeirra svo hægt sé að róa þá sem fyrir slíku verða. 16 VIKAN 35. TBL

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.