Vikan

Eksemplar

Vikan - 28.08.1986, Side 25

Vikan - 28.08.1986, Side 25
hét Billy’s. Þann stað sóttu aðallega ungmenni, flest úr lægri stéttum þjóðfélagsins. Þetta þótti allskrautlegur hópur fólks sem klæddi sig furðu- lega og hagaði sér að eigin geðþótta. Staðurinn varð brátt svo vinsæll að takmarka varð aðgang að honum og þannig myndaðist, eins og svo oft vill verða, ákveðin „klíka" sem einokaði staðinn. Þessi hópur fékk viðurnefnið „Blitz Kids“. í þess- um hópi voru félagar okkar fimm ásamt Steve Dagger sem er eins konar framkvæmdastjóri þeirra. Þegar þeir ákváðu að stofna þessa hljóm- sveit settu þeir markið strax hátt, þeir ætluðu að græða fullt af peningum og skapa nýja tónlistar- stefnu. Þetta tókst þeim því nú eru þeir moldríkir og margir telja að Spandau Ballet og klíkan í kringum þá hljómsveit hafi komið nýrómantíkinni af stað. Nafn hljómsveitarinnar má rekja til tveggja ólíkra hluta, frelsis og ófrelsis, þeir vildu koma saman þessum tveim hugtökum í nafninu. Það var maður að nafni Robert Elms sem stakk upp á nafninu en hann hafði séð það á salernisvegg einhvers staðar, en þarna var saman komið Spand- au (fangelsið illræmda) og listdansinn, ballet, í einunafni. Þegar búið var að finna nafn á sveitina og ráða mann til að sjá um íjármálin var bara eftir að skapa ímyndina og vekja á henni athygli. Til að skapa ímyndina var ekki langt að leita, þaó varð klæðaburðurinn, cn þeir í Spandau Ballet hafa alltaf sagt að hljómsveitin sæki fyrirmyndina í klæðaburði til aðdáenda sinna. Og á upphafsárun- um voru það furðufuglarnir í „Blitz Kids“ sem voru fyrirmyndin. Síðan var þrautin þyngri að vekja athygli á sveitinni. Það ráð sem þeir gripu til í þeim málum var vel útpælt. Þeir spiluðu bara í litlum klúbbum þar sem aðcins valdir fengu að- gang. Það varð til þess að þeim sem urðu þeirrar náðar aðnjótandi að fá að heyra í okkar mönnum fannst meira til þeirra koma en ella og þeir sem komust ekki inn urðu fúlir og enn staðráðnari en áður í að komast inn. Þetta varð til þess að yfir hljómsveitinni hvíldi eitthvert leyndardómsfullt yfirbragð. Það leið ekki langur tími þar til hljóm- plötufvrirtækin fóru að veita þessari hljómsveit athygli. Ráðamenn þeirra sáu á hópnum, sem hafði myndast um sveitina, að það væri mjög líklega markaður fyrir plötur frá henni. Það hljómplötu- fyrirtæki sem þeir sömdu svo við var Chrysalis og fyrsta smáskífan, sem leit dagsins Ijós, var To Cut a Long Story Short en hún kom út í október 1980. í kjölfarið fylgdi breiðskífan Journey to Glorv, að margra mati stórgóð plata. Af henni gáfu þeir út nokkrar smáskífur sem náðu nokkuð hátt á breska listanum þó þær kæmust ekki í besta sætið. Næsta plata nefndist Diamond. Ekki þótti gim- steinninn jafnast á við fy rstu plötuna en á henni voru þó nokkur frambærileg lög sem komust á lista þó þau næðu ekki efstu sætum. A eftir Diamond fylgdi sú plata Spandau Ballet sem hefur hlotið besta dóma til þessa. Hún nefnist T rue og af henni konist lagið Gold í næstbesta sætið á breska listan- um, cn það var hið stórkostlega titillag plötunnar sem Bretar féllu svo fyrir að það komst í efsta sæti listans. Tony Hadley söngvari lýsti því í við- tali hvernig honum leið þegar hann frétti þetta: „Við vorum staddir í Sheffield, John og Gary komu þjótandi inn í herbergið mitt hrópandi við erum númer eitt, við erum númer eitt. Eg trúði þeim ckki fyrst en þetta var fráhært, við fórum allir á fætur og fengum okkur kampavín í morgun- mat. Þetta var einn besti dagur sem ég hef lifað.“ Það i ar svo ekki fyrr en um það bil ári seinna að Bandaríkjamenn uppgötvuðu þessa fallegu ballöðu og tylltu henni á topp listans hjá sér. Sú plata, sem fylgdi True eftir, kom út á síð- asta ári, hún nefnist Parade og af henni gáfu þeir að sjálfsögðu út nokkur lög sem komust nokkuð hátt á breska listann. Nokkrum mánuðum seinna kom út safnplata með lögum af smáskífum hljóm- sveitarinnar frá upphafi. Þeim sem áhuga hafa á að kynna sér hljómsveitina og langar að eiga helstu lög hennar á plötu skal bent á þessa safnplötu sem kallast Spandau Ballet the Singles Collection. Nú hafa borist þær fregnir að vinnu þeirra félaga við næstu breiðskífu sé næstum lokið og höfum við nú þegar fengið forsmekkinn af henni með Iaginu Fight for Ourselves, en breiðskífan mun koma til með að heita Through the Barricades. Unnendur Spandau Ballet geta farið að hugsa gott til glóðar- innar því að ef litið er yfir plöturnar í heild var sú fyrsta mjög góð, sú næsta náði ekki að fylgja henni eftir, sú þriðja sló hinar tvær út hvað snertir gæði og sú síðasta, Parade, komst ekki með tærnar þar sem True var með hælana. Samkvæmt þessari reglu ætti sú sem kemur næst að verða það allra besta sem hefur komið út frá þessari hljómsveit! Tónleikar og myndbönd Spandau Ballet hefur alltaf þótt koma skemmti- lega fram á sviði. Á tónleikum hefur alltaf verið reynt að hafa eitthvað fyrir augað jafnt og fyrir eyrað. Hún hefur haldið tónleika víðs vegar um hciminn, fyrir utan gamla góða Island. Spandau Ballet var ein af mörgum hljómsvcitum sem tóku þátt í Live Aid tónleikunum í júlí 1985 og því Iýsti Gary Kemp sem stórkostlegri lífsreynslu sem hann hefði ekki fyrir nokkurn mun viljað missa af, þá hafi eiginhagsmunahyggja ekki ráðið ferðinni heldur hafi allir stefnt að sama marki, bæði flytj- endur og áheyrendur. Vídeó þeirra félaga hafa ekki þótt standa tón- leikunum að baki hvað' varðar gæðin en við íslend- ingar getum kannski ekki dæmt nógu vel um það því að við höfum ekki séð nema örfá þeirra. Það eina sem við höfum séð til þeirra á sviði er þegar sjónvarpið hefursýnt tónleikana við afhendingu Gullnu rósarinnar í Sviss og myndböndin, sem við höfum séð með þeim, eru ekki mörg. Þeir leggja mikinn metnað í gerð myndbanda sinna, fara gjarnan til þess hluta heimsins sem þeim finnst henta laginu, samanber gerðina á myndbandinu við lagið Highly Strung, þá fóru þeir til Hong Kong enda þýðir víst iítið fyrir einhverja hljóm- sveit að ætla að „meika það“ án þess að hafa almennilegt myndband í farangrinum. Aðdáendur Spandau Ballct hér á landi hafa yfirleitt ekki verið eins áberandi og til dæmis að- dáendur Duran Duran og Wham!, þó þeir hafi nú öðru hverju látið i sér heyra, en það þýðir ekki cndilcga að aðdáendahópurinn sé svo fámcnnur því að plötur Spandau Ballet hafa náð ágætri sölu hér á landi. Fyrir hönd þeirra vona ég bara að Spandau Baliet leggi einhvern tíma Íeið sína hing- að til lands en þangað til verða þeir bara að sætta sig við að hlusta á pliiturnar sem þeir eiga. Breiðskífur: Journey to Glory. Diamond. True. Parade. Spandau Ballet the Singles Collection. iw- fÆDD UR.y Son9ur. HÆÐ: 192 cmÍUnÍ 1960 NAFN: John Keeble. HUÓÐFÆRI: Trommur. FÆDDUR: 6. |uli 1959- HÆÐ: 175 cm. «4* "'S , ._*** ■ , \ S* Norrnan. F/EDDUfrx Saxofónn- HÆÐ:180 cm.marSl9B0- hÆÐ: 183 cm. 35. TBL VIKAN 25

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.