Vikan

Tölublað

Vikan - 28.08.1986, Blaðsíða 34

Vikan - 28.08.1986, Blaðsíða 34
„Hún er kraftmikil og hæfileikarík listakona í örum vexti og hefur á síðustu árum náð al- þjóðaathygli fyrir gler- og mósaíkverk sín. Hún hefur tekið þátt í samsýningum með fremstu glerlistarmönnum Evrópu eins og Georg Meist- ermann og Ludwig Schaffrath. Góð litameðferð og hugmyndaauðgi Höllu hefur vakið verð- skuldaða athygli." Þetta eru orð þýska glerlistarrisans Fritz Oidtmann. Oidtmann fyrirtækið er eitt hið virt- asta sinnar tegundar um víða veröld og hefur á sínum snærum marga fremstu glerlistarmenn Evrópu, þar unnu Nína Tryggvadóttir og Gerð- ur Helgadóttir á sínum tíma. Þrátt fyrir þetta er Halla einungis þekkt í tiltölulega litlum hópi hér á landi. Gagnrýnendur hér heima hafa kallað hana viðvaning, verk hennar smekk- skemmandi og fullyrt að listræn lita- og „Litir og form alltaf átt sterk r r r (( itok i rner myndbygging sé henni ókunn. Halla hefur þrátt fyrir þetta nóg að gera við listiðju sína og lista- verkapantanir berast frá opinberum og einka- aðilum heima og erlendis. Hvað veldur svo gífurlegu ósamræmi milli íslenskra og erlendra gagnrýnenda? Eru skoðanir virkilega svo hreinskiptar um landamæri íslands? Sannast með Höllu hið fornkveðna að enginn er spá- maður í eigin föðurlandi eða er einhver maðkur í mysu? „Ég var alltaf teiknandi þegar aðrir krakkar léku sér úti í barnæsku minni. Þá sat ég inni að teikna og mála. Ég bjó til dúkkulísur handa vinkonum mínum og frænkum, þær voru mjög vinsælar. Litir og form hafa alla tíð átt sterk ítök í mér. Ég er sífellt gleypandi í mig um- hverfi mitt, hvort sem það er úti í náttúrunni eða þéttbýli borganna. Á ferðalögum mínum innbyrði ég ótal birtur, liti og form. Mér finnast allir staðir fallegir, hver á sinn hátt. Reykjavík í rigningardrunga og lágskýjum hefur sína sér- kennilegu fegurð." Halla Haraldsdóttir er fædd á Siglufirði í nóvember 1934 og ólst þar upp. Sextán ára hélt hún til Reykjavíkur í nám við Myndlista- og handíðaskólann og var aðalkennari hennar Erró. Hún var við nám í tvö ár, skítblönk und- ir það síðasta og lifði á tei og brauði. „Síðan hef ég ekki getað drukkið te.“ Þá gripu örlögin í taumana og Halla varð að halda á heimaslóð- ir, giftist skólabróður sínum, Hjálmari Stefáns- syni íþróttakappa, og eignaðist með honum þrjá syni. „Ég hélt samt alltaf áfram að mála, það var áfram mitt áhugamál númer eitt fyrir utan fjölskylduna." Halla hélt síðar suður og nam við kennara- deild MHl 1965. „Elsti sonur okkar fæddist nær blindur og hann þurfti að sjálfsögðu mikla umönnun. Það var heill og framtíð drengsins sem rak mig áfram við að selja verk mín. Með þeim fjármögnuðum við læknisferðir og annan kostnað. Ég kenndi honum að lesa á tréristur sem faðir hans útbjó og las fyrir hann sögur og önnur fræði. Þá var erfið aðstaða fyrir blindrakennslu hérlendis. Við urðum því að fara af landi brott ef mennta skyldi drenginn á skólaskyldualdri. Okkur bauðst sérskólapláss 34 VIKAN 35. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.