Vikan - 12.03.1987, Blaðsíða 11
I NÆSTU VIKU
„Ég er miðbæjaríhald og rótgróinn
Reykvíkingur í margar kynslóðir,"
segir Katrín Fjeldsted, læknir og
borgarfulltrúi, í Vikuviðtalinu.
44
Að vanda er barnaglaðningurinn á
sínumstað, í Barna-Vikunni.
48
Á handavinnusíðunni eraðfinna
uppskrift að peysu sem er ólík öllum
öðrum peysum.
58
Þarftu að byrgja hjá þér gluggann
eða viltu bara skreyta hann?
52
í tilefni dagsins. Fyrsta smásaga
vísnasöngkonunnar Bergþóru
Árnadóttur á prenti.
60
Guðrún Tryggvadóttir myndlistar-
kona hóf myndlistarnám sextán ára
gömul. Hún segir frá sjálfri sérog list-
inni í hressilegu spjalli.
STEINGRÍMUR HERMANNSSON forsætisráð-
herra hefur frá mörgu að segja í næsta Vikuvið-
tali. Steingrímur hefur á stundum verið
umdeildur í starfi sínu en þrátt fyrir það hefur
hann notið almennra vinsælda. Hann þykir koma
til dyranna eins og hann er klæddur og hér verð-
ur engin undantekning þar á.
MÁLSHÆTTIR eru vinsælt málfarspunt. Stund-
um vill þó brenna við að þeir vefjist ögn fyrir
mönnum og úr verði hálfgerðar ambögur. í
næstu Viku leikum við okkur dálítið með máls-
hætti og fáum þekkt fólk til liðs við okkur.
YFIRSKILVITLEG EFNI hafa löngum heillað
mannkynið. Hið óþekkta dregur jafnan að sér
athygli. Islendingar hafa lengi átt drauga að
kljást við og fjölmargir hafa lent í atburðum sem
erfitt er að skýra. En þótt margir hafi hugað að
þessum efnum má segja, eins og í svo mörgu,
að þar sé enn flestu ósvarað.
ÓÁNÆGJUKÓRINN. - Launþegar? Onei, gam-
anleikur sem Leikfélag Reykjavíkur er að æfa
um þessar mundir. Blaðamaður og Ijósmyndari
snigluðust um að tjaldabaki og urðu margs vísari.
Nafn Vikunnar: Sólmundur Einarsson. Lesendur
skrifa: Gunnar Bender. I tilefni dagsins: Smásaga
Bergþóru Árnadóttur. Og margt fleira fróðlegt
og skemmtilegt verður í næstu Viku.