Vikan - 12.03.1987, Blaðsíða 23
Michael J. Fox í nýjustu kvikmynd
sinni, Family Ties.
MíchaelJ.Fox
Ef einhver leikari hefur fengið byr
undir báða vængi með sinni fyrstu
mynd þá er það Michael J. Fox sem
hóf feril sinn fyrir alvöru í Back to
the Future. Sem unglingurinn, er fór
aftur í fortíðina og lenti í vamarstöðu
gagnvart móður sinni, sem fékk ást
á þessum myndarlega unglingi, sló
hann svo sannarlega í gegn og nrynd-
in varð ein allra vinsælasta mynd
síðari ára.
Fox hefur ekkert verið að flýta sér
að fylgja þessum vinsíeldum eftir.
Uppalinn i Vancouver í Kanada
þótti hann enginn fyrinnyndamem-
andi samkvæmt eigin sögn og kláraði
ekki skólann en hélt vestur í leit að
frama á sviði leiklistar, þótt ekkert i
fortíð hans gæfi til kynna að hann
ætti framtíð fyrir sér á því sviði.
Bjartsýni hafði hann aftur á móti
nóg af og sú staðreynd að það
skemmtilegasta, sem hann gerir, er
að fá annað fólk til að hlæja hefur
hjálpað honum á framabrautinni.
Nýlega var frumsýnd vestra ný
mynd með Michael J. Fox í aðal-
hlutverki. Family Ties nefnist hún
og er forvitnileg svo ekki sé rneira
sagt. Þetta er gamanmynd, þótt leik-
stjóri myndarinnar, Paul Schrader,
sé þekktur fyrir annað en gaman-
myndir.
Fox leikur gítarleikara (hann var
einnig gítarleikari i Bach to the Fut-
ure). Þegar hann er ekki að leika á
bar einum á hann i vandræðum með
að gera upp hug sinn til tveggja
kvenna, móður sinnar, sent er mjög
trúuð, og ógiftrar móðursystur. Það
er Gene Rowlands er leikur móður
hans og Joan Jett leikur móðursyst-
urina, í sinni fyrstu mynd.
Myndbönd
THE VERDICT ★ ★ ★ ★
Leikstjóri: Sidney Lumet.
Aðalleikarar: Paul Newman, Charlotte Rampling og James Mason.
Sýningartími: 123 mín. - Útgefandi: Steinar hf.
Sidney Lumet hefur á árangursríkum ferli sent frá sér margar úrvalskvik-
myndir. The Verdict hlýtur að teljast með þeim bestu. Paul Newman leikur
lögfræðing sem er á hraðri niðurleið eftir að hafa sett sig upp á móti tengda-
föður sínum. Hann fær það verkefni að leita réttar stúlku sem hefur orðið
fórnarlamb mistaka lækna. Sjúkrahúsið býður háa peningaupphæð í skaða-
bætur til þess að málið verði þaggað niður. Lögfræðingurinn ftnnur til með
sjúklingnum og gegn ráðum vinar síns ákveður hann að sækja málið fyrir
rétti og gera þar með opinber þau alvarlegu mistök sem ollu því að stúlkan
getur varla talist lifandi... The Verdict er áhrifamikil úrvalsmynd sem tek-
ur á máli sem yfirleitt er farið í felur með. Paul Newman sýnir magnaðan
leik og hrífur áhorfandann með sér í þrunginni leit að sannleikanum. The
Verdict er mynd sem enginn á að láta fram hjá sér fara.
AÐ YFIRLÖGÐU RÁÐI (Deliberate Stranger) ★ ★
Leikstjóri: Marvin J. Chomsky.
Aðalleikarar: Mark Harmon, Frederick Forrest og Glynnis O’Conner.
Sýningartimi: ca. 4 klst. (2 spólur). - Útgefandi: Laugarásbíó.
Theodore Bundy er einhver mesti íjöldamorðingi sögunnar. Þegar hann
náðist, 1974, var talið að hann hefði framið þrjátíu og sex morð. Oll voru
fórnarlömbin ungar stúlkur og hafði þeim verið nauðgað áður en þær voru
drepnar. Að yfirlögðu ráði segir frá Ted Bundy sem þótti efnilegur lögfræði-
nemi. Það sem gerir lögreglunni erfiðast fyrir er að Bundy fór úr einu fylkinu
í annað í leit að fórnarlömbum og það er ekki fyrr en hann næst að upp
kemst að margir lögreglumenn í einum þremur fylkjum hafa verið að vinna
að sama málinu án þess að vita hver af öðrum. Að yfirlögðu ráði er helst til
of löng, söniu hlutirnir oft endurteknir. Samt er þetta raunsæ lýsing á fimm
ára blóðugum ferli Bundys. Megingallinn er sá að áhorfandinn fær aldrei
þá tilfinningu að hann sé slíkur fjóldamorðingi. Hlýtur að hafa verið geð-
veikur þótt lítið sé farið inn á það svið.
NOW YOU SEE HIM, NOW YOU DON’T ★ ★
Leikstjóri: Robert Butler.
Aðaileikarar: Kurt Russel, Cesar Romero, Joe Flynn.
Sýningartími: 85 mín. - Útgefandi: Bergvík hf.
í dag er Kurt Russel þekktur leikari sem aðallega leikur í ævintýra- og
spennumyndum. Aður en hann tók til við leik í slíkum myndum var hann
táningastjarna hjá Walt Disney fyrirtækinu og lék í nokkrum léttvægum
gamanmyndum oger Now You See Him, Now You Don'teinþeirra.
Söguþráðurinn er ekki merkilegur. Russell leikur upgan skólanema sem af
tilviljun uppgötvarefni sem gerir menn ósýnilega. Óprúttinn viðskiptajöfur
vill breyta skólanum í spilavíti og til að forðast slíkt kemur meðalið að
góðum notum. Það má hafa saklaust gaman af þessari mynd sem erein-
kennandi gamanmynd frá Walt Disney. Meira er byggt á fyndnum atriðum
en heildarútkomu og ekkert atriði er fyndnara en þegar skólastjórinn setur
vallarmet í golfi þótt aldrei hafi hann snert golfkylfu áður. Að sjálfsögðu
er það gert með hjálp Russels sem er ósýnilegur þá stundina.
BAD MEDICINE ★
Leikstjóri: Harvey Miller.
Aðalhlutverk: Steve Guttenberg, Alan Arkin og Julie Hagerty.
Sýningartími: 97 mín. - Útgefandi: Steinar hf.
Það er leitt til þess að vita að jafnágætur leikari og Steve Guttenberg
skuli ætla að festast í innihaldslausum gamanmyndum. Þegar hefur hann
leikið í þremur lögregluskólamyndum ogersú fjórða á leiðinni. Bad Medi-
cine er þannig aðeins örlítið frávik frá löggumyndunum. Nú leikur Gutten-
berg læknanema sem vegna lélegs árangurs færekki inni í amerískum
skóla. Hann er sendur í skóla til Suður-Ameríku þar sem saman eru komn-
ir allir þeir sem ekki hafa staðist próf annars staðar. Það er Alan Arkin
sem leikur skólastjórann. En eins ogeftir formúlunni reynast nemendurnir
vera prýðisfólk sem sýnir hetjulund á neyðarstundu. Það má hlæja á ein-
staka stað þegar horft er á Bad Medicine. Steve Guttenberg er nákvæmlega
eins og í löggumyndunum og Alan Arkin fær úr litlu að moða og er held-
ur aumkunarverður. í heild er myndin slök gamanmynd.
M££T THE DOCVOfí FOR WHOM
'THERE IS NO KNOWN CUfíEI
11. TBL VIKAN 23