Vikan


Vikan - 12.03.1987, Qupperneq 56

Vikan - 12.03.1987, Qupperneq 56
STJÖRNUSPÁ FYRIR VIKUNA SPÁIN GILDIR 15.-21. MARS HRÚTURINN 21. mars-20. apríl Sitthvað getur orðið til að rugla þig í ríininu og sennilega ekki fyrir- hafnarlaust að halda áttum. Menn hafa þörf fyrir að sýna yfirburði sína og skirrast jafnvel ekki við að ganga á rétt annarra í því sambandi. Taktu ekki á þig skuldbindingar sem þú átt erfitt með að standa við. TVÍBURARNIR22.maí-21.júní Því miður eru ýmsir svo sannfærðir um eigið ágæti að ekki hvarflar að þeim að nokkuð sé rangt við að ætlast til að aðrir sitji og standi eins og þeim hentar best. Sennilega geng- ur svo til þar til þú tekur á þig rögg og sýnir svart á hvítu að það eru takmörk fyrir þolinmæði þinni. LJÓNIÐ 24. júlí-23. ágúst Sértu sannfærður um að einhver leiki tveim skjöldum skaltu láta þann hinn sama vita af því að þú efist um heilindi hans. Látir þú hjá líða að hreinsa andrúmsloftið gerir þú þig sekan um sams konar tvískinnung. Það gengur ekki til lengdar og getur tæpast talist heiðarlegt. VOGIN24.sept.-23.okt. Menn hafa skiptar skoðanir um verðmæti og þú mátt búast við átök- um um hvernig verja skuli takmörk- uðum fjármunum. Svo virðist sem þeir sem hlut eiga að máli séu afar uppteknir af eigin hugmyndum og nokkra fyrirhöfn og lagni þarf til að sætta mismunandi sjónarmið. BOGMAÐURINN 24. nóv.-21. des. Hugmyndir, sem þú leggur fram og telur allvel grundaðar, fá betri hljómgrunn en þú hafðir vænst. Ekki er þó þar með sagt að björninn sé unninn og meira en líklegt að slái í bakseglin eftir að allt virðist komið á fulla ferð. Astæðulaust er þó að leggja árar í bát. VATNSBERINN 21. jan.-l 9. febr. Þú uppskerð eins og þú sáir og því mikils um vert að vanda til sáningar- innar. Gefðu gaum að því sem við fyrstusýn virðastsmámunir. Ótal- mörg slík atriði gera þér kleift að ná markmiðum sem ekki er unnt að ná í einu stökki. Dveldu ekki of lengi við það sem er búið og gert. NAUTIÐ 21. apríl-21. maí Oft má satt kyrrt liggja. Fólki fellur ekki að sífellt sé verið að reka ofan í það vitleysumar sem það lætur sér um munn fara. Þú verður fyrir freist- ingum af þessu tagi á næstu dögum en skipti staðreyndirnarekki höfuð- máli skaltu láta þér nægja þá sannfæringu að þú vitir betur. KRABBINN 22. júní-23. júlí Þér kann að þykja nóg um allt umstangið í kringum þig og finnst mál að linni. Ekkert bendir til að svo verði í bráð. Þú hefur lært ýmislegt af þessu og með degi hverjum verð- urðu færari um að taka virkan þátt í ýmsu sem þér finnst nýstárlegt en kemur þér tvímælalaust að gagni. MEYJAN 24. ágúst-23. sept. Taktu lífinu með ró og njóttu sam- vista við þá sem þér er annt um. Á heimavígstöðvunum er að finna margt það sem veitir þér mesta ánægju og synd og skömm að van- rækja slíkt. Taktu þig til og hóaðu í vini sem þú ert í þann veginn að missa sjónar af. SPORÐDREKINN 24. okt.-23. nóv. Þér finnst þú ekki gera betur en að halda í horfinu og sættir þig illa við tilbreytingarleysið. Þó máttu vel við una, þér gengur betur en flestum i sömu stöðu. Gefðu vaxandi vinskap sérstakan gaum. Ef vel erá haldið verður hann þér til gæfu en sem stendur er sambandið viðkvæmt. STEINGEITIN22.des.-20.jan. Sitthvað er að brjótast i þér en þér gengur illa að átta þig á hvað af því muni henta þér best. Þér fellur ekki að tvístíga lengi og því skaltu gera upphug þinn sem fyrst. Mundu bara að ekki geturðu tekið nema eitt skref í einu og stundum er betra að flýta sér hægt. FISKARNIR20.febr.-20.mars Kólnandi vinskapur veldur þér von- brigðum. Þótt ýmsar blikur séu á lofti er hreint ekki útséð um hvernig fer og með góðum vilja beggja aðila eru miklar líkur á að allt geti fallið í ljúfa löð. Þaðeraldrei fyrirhafnar- laust að viðhalda tengslum sem þessum. Fæstum fískum er eiginlegl að vera mjög uppteknir af verald- legum gæðum og þeir leggja sjaldnast kapp á auðsöfnun. Ekki er þó þar með sagt að jieir kunni ekki að meta lílsins lystisemdir, munaður hentar þcim ágætlega en þeir vilja bara helst að slíkt komi fyrirhafnarlaust upp í hendurnar á þeim. Þetta er hugsandi fólk og iðulega lalsvert heimspekilega sinn- að. Þeirsem fæddireru í fiskamerkinu hafa látiðsérýmislegt spaklegl um munn fara. Héreru nokkursýnishorn: Öll erum við pílagrímará þessari jörö. Maxim Gorki Allt ætti að gera einseinfalt og unnl er en ekki einfaldara. Albert Einstein Ekkert jafnast á við að láta sig dreyma um framlíöina. Viktor Hugo Það er ekki ástin sem er blind heldur afbrýðisemin. Lawrence Durrell Frelsi er ælíð og öfrávikjanlega l'relsi fyrir þann sem hugsar öðruvisi. Rósa Luxemburg Með aldrinum lærisl manni þolinmæði. Þarafleiðiraðeftir því sem minni timi er til stefnu er maður reiðubúnari að bíða svo einkennilega sem það hljómar. Elizabelh Taylor 56 VIKAN 11. TBL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.