Vikan - 26.03.1987, Blaðsíða 5
32
Helgi Björnsson, leikari og tónlistar-
maður, er í Vikuviðtalinu. Hann er
bláeygur ungur piltur að vestan og
hefur staðið sig vel I samkeppninni
fyrirsunnan.
43
Póstur Vikunnar er á sínum stað en
örlítil útlitsbreyting hefur orðið á
honum og næsta nágranna hans,
draumráðandanum.
44
Barna-Vikan sýnir nokkrar skemmti-
legar myridir af krökkum á öskudag-
inn.
46
Mannætuhákarlar og fleiri aðilar sem
höfundur bókarinnar Ókindarinnar
hefur kynnst.
VÍGLUNDUR ÞORSTEINSSON, formaður Félags
íslenskra iðnrekenda og frambjóðandi í Reykjanes-
kjördæmi í komandi kosningum, verður næsti
viðmælandi í Vikuviðtali. Víglundur hefur í mörg ár
verið í fremstu víglínu iðnrekenda en nýlega skipaði
hann sér í framvarðasveit stjórnmálamanna. Víglund-
ur hefur ekki farið í grafgötur með skoðanir sínar á
málum hingað til og því má búast við hressilegu
Vikuviðtali. Það er Arnar Páll Hauksson, fréttamaður
á Bylgjunni, sem tekur viðtalið við Víglund.
Handavinnuþátturinn.
52
Daninn raunamæddi, skemmtileg
saga og ögn öðruvísi en við eigum
að venjast.
57
Sissú eða Sigþrúður Pálsdóttir er ung
myndlistarkona sem eftir hefur verið
tekið. Hún er I þætti okkar sem ber
yfirskriftina Lífoglyst.
FLUGSTÖÐIN á Keflavíkurflugvelli verður sennilega
tekin í notkun í aprílmánuði. Vikan brá sér þangað
og skoðaði þessa glæsilegu byggingu í fylgd húsa-
meistara ríkisins, Garðars Halldórssonar, sem hannaði
stöðina.
FERMINGAR. Eins árviss viðburður og koma kríunn-
ar í Tjarnarhólmann eða lóunnar á vorin eru ferming-
arnar. Það er langur aðdragandi að sjálfri fermingarat-
höfninni, mikið tilstand þegar dagurinn rennur upp.
Vikan lítur á fermingar frá ýmsum sjónarhornum í
næsta blaði.
FÓLKSBÍLL, sem einu sinni var óefnilegt brak en er
í dag með glæsilegustu kerrum landsins, er í eigu
Sigurjóns Magnússonar, bifvélavirkja á Ólafsfirði.
Sigurjón hefur unnið það þrekvirki að gera bílhræ
að glæsivagni sem við birtum myndir af í næsta tölu-
blaði Vikunnar.
HALLDÓR B. RUNÓLFSSON listfræðingur spjallar
um nútímalist.