Vikan


Vikan - 26.03.1987, Blaðsíða 6

Vikan - 26.03.1987, Blaðsíða 6
N nu»s lclflói iLondon Borðið svignaði undan dýrindis krásum... Það var erilsamt að kvöldi laug- ardagsins sjöunda febrúar í Westminsterhverfinu í Lundúna- borg. Hverfið var bókstafiega krökkt af vörðum laganna og var varla hægt að þverfóta (ef til vill væri nær að segja þverbíla) fyrir rútum, bæði stórum og smáum, kúffullum af lögregluþjónum. Ennfremur mátti sjá íjöldann all- an af prúðbúnu fólki (með og án axlapúða), ákveðnu á svip, sem stefndi á St. Ermins hótelið. Prúðbúna fólkið kom kunnug- lega fyrir sjónir - enda var það líka alveg á hreinu: Það átti að blóta þorra karlinn þetta kvöld þama á hótelinu. Þetta með lögg- una var aftur dularfyllra; ég veit að við íslendingar fáum okkur stundum of mikið neðan í því, en var þetta nú ekki fullmikið af því góða? (Það voru að minnsta kosti fimm stórar rútur og sjö litlar á staðnum, kúffullar.) Eða voru þeir ef til vill að fara í heilsubót- arfrí lögregluþjóna til Týról? Og ef svo er, syngja þeir þá rútubíla- söngva á leiðinni? Forvitnin var alveg að drepa mig svo ég spurði einn þeirra sem stóðu fyrir utan eina rútuna og var ábúðarmikill á svip, en hann var ekki lengi að sprengja sápukúludrauminn minn um syngjandi lögregluþjóna á leið í frí. Þeir voru á leiðinni til Wapp- ing til að flengja óþekkan verk- fallslýð ef hann ekki hagaði sér skikkanlega. Ég ákvað að spyrja ekki um rútubílasöngvana en snúa mér þess í stað að þorrablótinu svo ég kvaddi kurteislega og ósk- aði góðrar ferðar. St. Ermins hótelið beið mín uppljómað og þorralyktina lagði langt út á götu. Allir þeir íslend- ingar, sem vettlingi gátu valdið, hvort sem þeir voru búsettir hér í landinu eða bara staddir hér í skyndiferð, voru mættir á staðn- Steindór Óiafsson, formaður Is- lendingafélagsins, bauð gesti velkomna. um, harðákveðnir í að blóta þorrann svo að um munaði. Stjórn íslendingafélagsins var bú- in að sitja bálsteytt við skipulagn- ingu og undirbúning vikum Veislustjóri var séra Jón Baldvins- son. saman, og nú var stundin runnin upp. Salurinn var þéttskipaður þorragestum, brennivín á öllum borðum (sem sendiherrann hafði gefið af mikilli rausn) og á miðju gólfi svignaði hlaðborð undan dýrindis þorramat - þess konar krásum sem forfeður okkar létu sig dreyma um á meðan þeir tuggðu handrit og drápust úr hor. Formaður félagsins, Steindór Ol- afsson, bauð gesti velkomna en fól síðan veislustjórn í hendur séra Jóni Baldvinssyni. Hann byrjaði á því að láta menn syngja Þorra- þrælinn en bauð gestum síðan að gera svo vel. Létu menn ekki segja sér það tvisvar og lögðu til atlögu og veitti ýmsum betur. Eftir mjög tvísýna baráttu varð maturinn að láta í minni pokann en það var mál manna að hann hefði verið mjög girnilegur og vel úti látinn. Heiðurinn af framreiðslunni átti Úlfar Eysteinsson matsveinn sem hefur flogið yfir pollinn mörg undanfarin ár til að seðja útlæga landa sína á þorranum. Ekki má heldur gleyma því að St. Ermins hótelið afhendir íslendingafélag- inu heilt eldhús til umráða einu sinni á ári og sýnir það ekki svo Texti: Björg Árnadóttir. biaðamaður Vikunnar í London Myndir: Kristinn Ingvarsson 6 VIKAN 13. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.