Vikan


Vikan - 26.03.1987, Síða 10

Vikan - 26.03.1987, Síða 10
STEFNUMOT VTÐDAUÐÆNN Frasögxi eftir sir Victor Goddard. flugznarskalk r meðal margvíslegra ævintýra, sem ég hef lent í um dagana, þykir mér skemmtilegast að segja frá þessu. Það er engin furða þar sem ég er hetja sög- unnar eða þrjótur - það fer eftir því hvernig menn taka því. Ég segi þessa sögu oft mér og vinum mínum til skemmtunar. Sérhver hinna er komust af hefur sína sérstöku útgáfu af sögunni og getur enginn svarið að það sé hin sanna og rétta frásögn af atburðinum. Það var aðeins ég sem þekkti sannleika og leyndardóm þessa atburðar. Ég vissi nokkuð sem ég reyni ekki að taka tillit til en varð fyrst og fremst að ganga út frá - ekki til að bjarga eigin lífi, það hafði ég enga von um - heldur til að bjarga hinum. Líkurnar á því að farast lágu eins og mara á mér. Vegna þjónustu minnar í bresku herstjórninni hef ég breytt nokkrum nöfnum. Ég hafði verið atvinnuflugmaður í mörg ár og lent í ýmsum óhöppum en í mér var aldr- ei neinn beygur út af því. Samt sem áður leið mér alls ekki vel daginn sem við áttum að fljúga frá Shanghai til Tókíó. Þetta var nokkrum árum eftir lok síðari heimsstyrjaldar. Ég hafði verið yfirmaður alls herafla konunglega nýsjálenska flughersins á Kyrrahafi og seinna stjórnandi í konunglega breska flughernum í Burma og Malasíu í tvö ár. Nú var ég á leið heim með millilendingu í Tókíó. Mountbatten flotaaðmíráll hafði lán- að mér flugvél sína, Sister Ann. Hvers vegna var mér svona innanbrjósts þegar ég átti að fljúga í svona traustri flugvél og með svona reyndri áhöfn? Ég var í engum vafa um að allir sem flugu með mér voru í lífshættu. En ég gat ekki beðið þá að halda sig á jörðu niðri. Hvernig gat ég sem flugmarskálkur sagt þeim að ég hefði fengið aðvörun í draumi? Þetta hafði átt sér stað í kvöldverðarboði í Shanghai kvöldið áður. Ég var að tala við vin minn þegar ég heyrði á samtal tveggja manna. „Atti þetta ekki að vera boð fyrir Goddard flugmarskálk?11 spurði annar. „Jú, rétt er það,“ svaraði hinn. „Hvers vegna spyrðu?" „Hann er dauður! Hann dó í nótt þegar flugvél hans fórst." Maðurinn þóttist vera alveg viss í sinni sök. Ég sneri mér hægt við. Sá er þetta hafði mælt, breskur yfirfor- ingi, leit sem snöggvast á mig og hljóðaði síðan er hann hafði borið kennsl á mig. „Að mér lifandi,“ sagði hann, „ég biðst innilega afsök- unar! Ég á við að það gleður mig svo sannarlega að sjá þig - þetta er aldeilis undar- legt! Skilurðu, mig dreymdi svo undarlega í nótt sem leið, ég hélt satt að segja að draumur- inn væri sannur.“ Ég brosti: „Eg er ekki allur enn. Hvað dreymdi þig? Hvar átti óhappið sér stað?“ „Á grýttri strönd að kvöldlagi, í hríðaréli. Það var í Kína eða Japan. Þið höfð- uð flogið í skýjum yfir fjallið - verið í loftinu lengi... Ég sá slysið.“ „Hvernig flugvél var þetta?" „Venjuleg flutningavél, ef til vill Da- kota.“ Sister Ann var DC-3 Dakota. „Sástu í draumnum hvernig samferðafólk mitt leit út?“ „Já,“ svaraði hinn með hægð, „áhöfn frá konunglega breska fiughernum og þrír óbreyttir borgarar, tveir menn og ein kona, öll ensk.“ „Þakka þér fyrir," sagði ég, „þetta er mikill léttir. Þér eruð ekki berdreyminn vegna þess að í fiugvélinni verður aðeins áhöfnin, auk mín, engir óbreyttir borgarar.“ Við ræddum svo saman í stuttan tíma og síð- an skildi leiðir okkar. Ég sá hann aldrei eftir þetta. Þrír óbreyttir borgarar Nokkrum mínútum síðar kom Seymour Berry frá Daily Telegraph í London til mín og spurði: „Get ég fengið að sitja með þér til Tókíó? Ég hef þegar spurt flugmann þinn. Ég vona að þú hafir ekkert á móti því?“ Spurningin kom eins og reiðarslag yfir mig en ég svaraði: „Nei, ég hef ekkert á móti því. Það er nóg pláss. Brottför er ákveðin klukkan 6.30 í fyrramálið." En innst inni var ég hrædd- ur við að taka hann með þótt hann væri aðeins einn óbreyttur borgari. Sama kvöldið borðaði ég kvöldverð með Georg Ogden, breska aðalkonsúlnum í Shanghai. Ogden sat og talaði um ferð mina þegar kínverski þjónninn hans kom inn með símskeyti. Ogden las það en rétti mér það síðan og spurði: „Er mögulegt að fá far með þér í fyrramálið?" Hvernig gat ég sagt nei? Símskeytið var frá utanríkisráðuneytinu. Ogden varð að komast á ráðstefnu í Tókíó eins fljótt og auðið yrði. Ég hugsaði sem svo: Tveir óbreyttir borgarar, Bretar, en engin kona. Auk þess var það fyrir neðan allt vel- sæmi að vera hræddur við martröð annarra. Áður en við stóðum upp frá borðum kom þjónninn með enn eitt símskeytið. Ogden mælti: „Það er best að þú lesir þetta líka, það er frá fulltrúa okkar í Tókíó.“ „.. .ég hef eng- an steingervingafræðing á ráðstefnunni," las ég, „þakklátur ef þér getið tekið einn farþega með.“ „Viljið þér aðstoða mig við þennan farþega líka?“ spurði Ogden. „Það verður að vera svo. Við tökum steingervingafræðinginn með,“ svaraði ég nöldrandi, „það er að segja ef það er karlmaður." „Þetta er því miður kvenmaður, en gerir það nokkuð til?“ Mér féllust hendur: Þrír óbreyttir borgarar og einn þeirra kvenmaður. Þetta var gráleitur, drungalegur morgunn á Shanghaifiugvelli. Ogden kom og með honum Dorita Breakspear, há, ljóshærð kona á þrí- tugsaldri. Hún trúði mér fyrir því að þetta væri hennar fyrsta fiugferð. „En ég hlýt að lifa það af,“ sagði hún. Þessi hughreystingar- orð hennar skárust í gegnum mig og ég leit af henni og út á fiugbrautina, þar sem Don Campell rnajór, fiugstjóri Sister Ann, kom gangandi. Hann var ekki allt of glaður að sjá. „Daginn, Campell! Hvernig er veðurspá- in?“ spurði ég. „Ekki sem verst. Hundrað og fimmtiu kílómetra frá Tókíó eru skýjabólstr- ar. Ætli við verðum ekki einar sex klukku- stundir á leiðinni." Með þessum orðum stigum við um borð og stuttu seinna sveif Sister Ann yfir Shanghai og tók stefnu á Tókíó eða - ég reyndi að láta það vera að hugsa um þennan bjánalega draum. Eftir draumnum að dæma átti fiugvélin að 10 VIKAN 13. TBL

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.