Vikan


Vikan - 26.03.1987, Blaðsíða 62

Vikan - 26.03.1987, Blaðsíða 62
- En eru þá figúrurnar þínar ekki jarðneskar? Nú brosir Sissú. „Ég hef oft verið spurð að því hvers vegna ég máli svona skrímsli. En figúrumar mínar eru ekki afskræming á manninum. Fólk mistúlkar það oft. Þær eru miklu frekar tákn- rænar fyrir málefni, öfl eða krafta. I myndlistinni reyni ég að draga fram og túlka það sem býr innra með mér. Það er hugmyndaflugið sem heldur manninum lifandi í náttúrunni. Þegar ég'er spurð af hverju ég máli ekki landslag svara ég því til að fyrir mér sé liturinn nægilega mikil náttúra út af fyrir sig. Litir eru stór þáttur af líkam- legri vellíðan nokkar. Ég hef til dæmis aldrei efast um að það séu til mörg líf. Sálin verður að ganga í gegnum mörg stig. Ef fólk er ekki opið er það vegna þess að það gefur sér ekki möguleika á að opna sig og líta inn í aðra heima og sinna öðru en sínum lík- amlegu þörfum.“ - Ertu þá þeirrar skoðunar að maðurinn hafi kæft meðfæddan hæfileika sinn til að skynja og lifa með litum? „Litir hafa áhrif á líffæri jafnt og á sálina. Ara mannsins er til dæmis i litum. Fólk getur líka verið alveg litlaust en þá er það svo sjálfskapað. Fólk getur ráðið miklu meiru um heilsu sína en það gerir. Ég hef upplifað í þunglynd- iskasti að mála allt svart.“ - Finnst þér svart vera litur? „Já, svo sannarlega. Svart er litur - magnaður litur. Hann er hluti af allri myndbyggingu. Það .útlínast líka allt með svörtu. Hvítt er líka litur. En það þarf miku fleiri liti til að ná upp mynd- byggingu." Þótt Sissú vinni eingöngu í olíu á striga hefur hún líka unnið við fleiri miðla, eins og pastel, grafik og myndbönd. „Myndbandið togaði mikið í mig. Ég bara hreinlega réð ekki við tækin. Það sem mér finnst slæmt er að hér eru ekki til svona listamannaverkstæði eða „work- shops“. Ef ég gæti komist inn á grafikverkstæði eða einhver verk- Stelling. Olia á striga. stæði myndi ég að sjálfsögðu vinna í miklu fleiri efnum. Mér finnst stundum að ég sé stöðnuð í gamla tímanum hér heima og það er nú helst það sem ýtir und- ir landflótta hjá manni. Skólarnir úti toga í mann af því að þar er öll þessi fullkomna aðstaða. Það eru ekki endilega kennararnir. Kennslan byggist miklu frekar upp á að brjóta mann niður. Það er sálfræðin hjá þeim að herða fólk fyrir samkeppnina.“ Sissú hefur tekið þátt í mörgum samsýningum erlendis og hér heima hefur hún haldið fjórar einkasýningar en aldrei í neinu af hinum opinberu galleríum eða sýningarsölum. Hún hefur sýnt verk sín í Gallerí Bleikfriði, versl- unarhúsnæði við Laugaveginn, á Café Gesti og nú síðast í Gallerí Jútópíu. Þegar ég spyr hana hverju sæti, af hverju hún hafi aldrei sýnt i opinberum, viður- kenndum galleríum, segist hún ekki vera ánægð með þau eins og þau eru. „Auk þess hefur mér aldrei staðið það til boða. Listin á alls staðar heima,“ segir hún. „Hún er ekki gerð til að hanga á sértilgerðum veggjum og að ákveðinn hópur fólks ákveði hvað skuli metið og hvað ekki. Þegar ég sýndi hér heima árið 1983 og svo núna þá þurfti ég að sýna til að hreinsa út hjá sjálfri mér. Það er að sjálfsögðu miklu meiri vinna að sýna í svona húsnæði en þar hefur maður svo miklu meiri möguleika en i galleríi. Maður þarf að mála, sjá um lýsingu og svo framvegis. Þegar ég sýndi í Galleri Bleikfríði fann ég þetta verslunarhúsnæði sem ég fékk endurgjaldslaust. Á þeirri sýningu stillti ég upp bleikri brúðu - Bleik- fríði - sitjandi við skrifborð. Brúðan átti að tákna umboðs- manninn og skrifborðið báknið. Hvort tveggja var táknrænt fyrir stöðu listamannsins gagnvart kerfinu og þessa tvo ólíku heima. Þarna gat ég leikið mér með hluti sem ég hefði ekki getað í venjulegu galleríi. Það eru til ótal staðir þar sem hægt er að gera svo miklu meira. Fólk er líka oft feimið við að fara í galleríin. Það heldur að það þurfi að kaupa og hefur oft minnimáttarkennd gagnvart mál- verkunum, heldur að það skilji þau ekki. Svo er það líka alltaf sama fólkið sem fær boðsmiða á sýningarnar. Það er fólkið á tölvulistunum." 62 VI KAN 13. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.