Vikan - 26.11.1987, Page 24
Marsipanbitar og núggatsnittur
500 gr búttedeig,
200 gr smjör;
Marsipanrúllur:
100 gr marsipan,
um 45 afhýddar möndlur.
Núggatsnittur:
2 msk. malaðar heslihnetur,
100 gr núgat.
Búttedeigið hnoðað með smjörinu og 2
msk. af vatni. Deigið kælt í 30 mínútur.
Marsipanrúllur: Helmingnum af deiginu
rúllað út milli tveggja plastfilma þar til það
myndar ferning, um 22 cm á kant. Ferning-
urinn þakinn með marsipaninu og deigið
síðan brotið til helminga þannig að það
myndi eins konar pakka. Deigið bútað í
lita bita og á hvern þeirra er sett ein
mandla. Sett á vel smurða, eða bökunar-
pappírs lagða, plötu og bakað í 175° C
heitum ofni í um 25 mínútur.
Núggatsnittur: 2 msk. malaðar heslihnet-
ur, 100 gr. núggat. Deiginu rúlluð út milli
tveggja plastfilma þar til það myndar fer-
hyrning um 20x30 cm. Heslihnetum og
nokkuð stórum bitum af núggat dreift yfir
deigið. Deiginu rúllað upp langsum og rúll-
an sneidd í snittur (sjá mynd). Sett á vel-
smurða, eða bökunarpappírslagða, plötu
og bakað í 175° C heitum ofni í um 25 mín-
útur. Kælt og síðan eru snitturnar skreyttar
með bráðnu hjúpsúkkulaði.
(Ath. hægt er að panta búttedeig í flestum
bakaríum).
Barna-jólakökur
með súkkulaði eða vanillu bragði
Súkkulaðideig:
400 gr hveiti,
200 gr hakkaðar heslihnetur,
50 gr kakó,
1 tsk. kanill,
150 gr smjör eða smjörlíki,
200 gr sykur,
Va tsk. hjartarsalt,
1 1/2 dl mjólk.
Vanilludeig:
600 gr hveiti,
200 gr smjör eða smjörlíki,
200 gr sykur,
4 msk vanillusykur,
1 tsk. salt,
Va tsk. hjartarsalt,
2 dl mjólk.
Deigið í báðum uppskriftum er hnoðað,
þar sem þurrefnum er fyrst blandað vel
saman og smjörið mulið í og þessu blandað
saman þar til smjörið og þurrefnin hafa
samlagast í litlar kúlur þá er vætt í með
mjólkinni og deigið hnoðað þar til það er
slétt. Látið deigið standa í a.m.k. eina klst.
á köldum stað (það geymist reyndar vel í
kæliskáp í eina 14 daga). Af deiginu er síð-
an tekin góð klípa og því rúllað út á hveiti
stráðu borði þar til það er um 'A cm á
þykkt. Fígúrur skornar út og þær skreyttar
með bútum úr hinu deiginu (sjá mynd) og
síðan raðað á vel smurða, eða bökunar-
pappírs lagða, plötu. Bakað í 175°C heitum
ofni í um 15 mínútur. Kælið kökurnar vel
og síðan má skreyta þær enn frekar.
Skreyting:
Hægt er að búa til hár á fígúrur með því að
kreista deig í gegnum hvítlaukspressu og
setja á fígúruna áður en bakað er. Þegar
búið er að baka er hægt að smyrja bráðnu
hjúpsúkkulaði hér og þar á fígúrurnar og
strá skrautsykri yfir.
Aníshringir
2 egg,
250 gr sykur,
200 gr hveiti,
1 tsk. anis, malaður,
1 sítróna.
Egg og sykur þeytt vel saman. Hveiti, anis
og rifnum berkinum af sítrónunni blandað
í. Deigið er sett í smákökusprautu og stórt
stjörnulaga munstur valið á túðuna.
Hringjum er sprautað á vel smurða, eða
bökunarpappírs lagða, plötu. Látið standa
yfir nótt. Sett inn í 175 °C heitan ofn og
bakað í um 25 mínútur.
Kanilstjörnur
3 eggjahvítur,
250 gr flórsykur,
2 tsk. kanill
500 gr hakkaðar möndlur.
Eggjahvíturnar eru stífþeyttar. Flórsykrin-
um hrært varlega saman við. Um 6 msk. af
eggjahvítumassanum teknar frá. Möndlum
og kanil er hrært út í það sem eftir er að
massanum. Deigið lagt á plastþynnu og
önnur sett ofan á og deigið rúllað út þar til
það er um 1 cm þykkt. Stjörnurnar eru
stungnar út og hver þeirra smurð vandlega
með eggjahvítumassanum. Stjörnurnar
settar á vel smurða bökunarplötu, eða á
bökunarpappír á plötunni, og bakaðar í
150°C heitum ofni í um 30 mínútur.
24 VIKAN