Vikan


Vikan - 26.11.1987, Side 28

Vikan - 26.11.1987, Side 28
Jóla- drykkir Það hefur færst mjög í vöxt að fólk drekki alls konar heita og mikið kryddaða drykki svona rétt fyrir jólin, eða jafn- vel um jólin sjálf. Hér fáið þið nokkrar fyrirtaksuppskriftir, sem geta hresst hvern sem er, sem orðinn er þreyttur á myrkrinu og farinn að kvíða síðasta sprettinum sem ævin- lega er fyrir hver jól. GLÖGG Þegar í kringum 400 fyrir Krist voru Rómverjar farnir að drekka eitthvað sem helst minnir á jólaglögg nútímans. Jólaglögg eins og það sem við þekkjum nú til dags kom fyrst fram á sjónarsviðið í Svíþjóð í kringum aldamótin 1600, en þá var það búið til úr hvítvíni, sem hitað var upp og sykri og engi- fer blandað út í. Glögg- uppskriftirnar sem aðallega eru notaðar nú orðið bæði hér á landi og annars staðar á Norðurlöndunum eru frá því upp úr 1870. Uppskrift 1 heilflaska af rauðvíni, 10 cl af brennivíni, 4 kanelstangir, 20 negulnaglar, 1 lítill biti af engifer, 1 tsk malaðir karndimommu- kjarnar, 1 lítið pómeranshýði, 2 '/2-3 dl sykur, ca 20 sætar möndlur, 100 g rúsínur. Leggið kardemommu, kanel, engifer, negulnagla og pómer- anshýði í glerkrukku. Hellið brennivíninu yfir. Lokið krukkunni og látið þetta standa yfir nótt. Hellið blöndunni í gegn um sigti. Setjið nú vínið og kryddið í pott og hrærið syk- urinn út í. Leyfið þessu að hitna í pottinum, en hafið lok á honum. Blandan má ekki sjóða, en potturinn á að standa á hellunni í ca 45 mínútur og blandan má snarphitna. Setjið möndlur og rúsínur út í áður en drykkurinn er borinn fram. Ávaxtasafaglögg Til eru þeir sem ekki vilja drekka áfenga drykki og hér er góð uppskrift handa þeim. Jbfl HHv . *ý\ s&w í?? ir* 'V ■ T4yKgl£j| P3 ;. “ ": HgMMÉj ]| 41 Á myndinni sjáið þið glöggpottinn aftast. í miðjunni er glas með eggjatoddýi og þar fyrir aftan er rauðvíns- toddýið í glasi, sem servíettu hefur verið vafið utan um. Irska kaffið er auðþekkt með rjómanum ofan á og fremst er toddý hússins með sítrónusneiðinni. 3 dl vínberjasafi, 3 dl eplasafi, ‘/2 dl rúsínúr, 20 möndlur, 2 negulnaglar, 1 lítil kanelstöng, I msk sykur. Setjið kryddið og sykurinn í pott. Hellið safanum út í. Hitið upp og setjið möndlur og rúsín- ur út í rétt áður en drykkurinn er borinn fram. Rauðvínstoddý Þetta er drykkur sem iljar. Ein flaska af rauðvíni, 4 dl vatn, I dl sykur, 1 kanelstöng, 5 negulnaglar. Blandið öllu í pott og hitið upp undir suðu, en gætið þess að hafa lokið á pottinum. Vefj- ið servíettu utan um glasið, sem drykkurinn er borinn fram í. Toddý hússins (2 glös) Gott, óáfengt, ilmandi og heitt. 4 dl eplasafi, 2 dl vínberjasafi úr dökkum vínberjum, 4 negulnaglar, 1 kanelstöng, ofurlítið af engifer. í hvort glas er sett eitt sítr- ónurif og þrjár sætar möndlur. Blandið saman eplasafanum og vínberjasafanum og setjið þetta auk kryddsins í pott. Hit- ið hægt upp og hrærið í á meðan. Drykkurinn má ekki sjóða. Setjið sítrónurif og 3 möndlur í hvort glas. Hellið heitri blöndunni yfir. Berið strax fram. Eggjatoddý (1 glas) Heitur og seðjandi drykkur. Ein eggjarauða, 3-4 tesk sykur, 2 msk sherry eða konjak, 1-2 dl sjóðandi vatn. Hrærið eggið og sykurinn létt. Bætið víni eða konjaki út í og síðan heita vatninu. Rommtoddý (1 glas) Setjið þrjá sykurmola í viskýglas. Setjið skeið í glasið og fyllið það með sjóðandi vatni. Hrærið vel í og bætið nú út í 1/2 til 1 dl af dökku rommi. Gott er að setja eina sítrónu- sneið í glasið. írskt kaff i (1 glas) 2 cl af írsku viskýi, 2-3 tsk sykur, heitt, sterkt kaffi, 1 msk þeyttur rjómi, 1 tsk rifið súkkulaði. Blandið viskýi og sykri í stórt glas. Fyllið það með kaffinu. Setjið þeyttan rjóma út á og stráið rifnu súkkulaði yfir allt saman. 28 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.