Vikan - 26.11.1987, Blaðsíða 45
Hvern hefur ekki
dreymt um aö
sleppa viö ailt jóla-
stressið og flatmaga
þess í staö á einhverri
dýrlegri strönd og
láta sóliná baka sig
eða synda í ilvolgu
grænbláu hafinu?
Ljósmyndir: Valdimar Leifsson
Þeim fjölgar stöðugt hér á
landi sem láta drauminn
rætast og stór hópur ætlar að
eyða þessum jólum og ára-
mótum í Mexíkó, enda er
þetta einn besti árstíminn til
að dvelja þar í landi. Til að
komast frá íslandi til Mexikó
er algengur ferðamáti að
fljúga fyrst til New York
borgar og fara þaðan til Mex-
íkóborgar, eða fljúga beint
til Acapulco sem er vinsæl-
asti baðstrandarbærinn þar í
landi. Blaðamaður Vikunnar
fór í eina slíka afslöppunar-
ferð til Mexíkó fyrir nokkru
og óhætt er að segja að eng-
inn verður svikinn af ferða-
lagi til þessa fjölskrúðuga
lands - mesta lagi að hann
verði fyrir „hefnd Monte-
zuma“.
Frá New York var flogið með
Aero Mexico til Mexíkóborgar
og var þetta meiri háttar flug-
ferð því mikið er stjanað við
farþegana og maturinn sérlega
góður: þykk og safarík nauta-
steik alveg passlega steikt með
fínu meðlæti og ágætu víni. Síð-
an var auðvitað bíómynd til að
stytta stundirnar og sælgæti
boðið með. Mexíkóborg er lítt
frábrugðin öðrum stórborgum
við fyrstu sýn; háhýsi, breið
stræti og bílamergð, en þegar
betur er að gáð er þar margt
merkilegt að skoða. Þó við gist-
um þar ekki nema í tvær nætur
þá skoðuðum við okkur vel um
á daginn og sáum margt ó-
gleymanlegt; ekki síst þann
mikla mun sem er á fátækum og
ríkum þar í borg. Þeir síðar-
nefndu búa í höllpm en hinir í
pappahreisum í námunda við
öskuhauga borgarinnar.
Borgin er í yfir 2000 m hæð
yfir sjávarmáli og stendur á
landsvæði þar sem áður var
stöðuvatn. Aztecar komu og
settust þarna að snemma á 14.
öld, en fyrir voru ýmsir aðrir
þjóðflokkar sem líklegt er talið
að hafi ekki tekið nýju innflytj-
endunum allt of vinsamlega og
að eina landssvæðið sem Aztec-
unum var úthlutað hafi verið
hróstrug eyja í miðju Texcoco
vatni. Líklega hafa þjóðflokkarn-
ir sem fyrir voru vonast til að
Aztecar dæju úr hungri því fátt
eða ekkert var hægt að rækta á
eynni, en Aztecarnir dóu ekki
ráðalausir. Þeir útbjuggu eins
konar fljótandi eyjar úr risastór-
um tágakörfum fylltu þær með
mold og plöntuðu þar í græn-
meti og trjám; og reistu jafnvel
smákofa.
Með tímanum skutu plönt-
umar rótum í grunnu vatninu og
VIKAN 45
b