Vikan


Vikan - 04.02.1988, Qupperneq 4

Vikan - 04.02.1988, Qupperneq 4
I BYRJUN VIKUNNAR Steinar Berg útgefandi ásamt Mezzoforte, þeim gunnlaugi, Eyþóri, Friðrik og Jóhanni. Mezzof orte kemur sér upp hljóðveri Hljómsveitin Mezzoforte hefúr látið gamlan draum rætast með opnun síns eigin hljóðvers I Súðavogi 7. Opn- unarhátið var haldin með pomp og prakt í lok síðustu viku en hljóðverið hefur nafnið M.F. Studio. Margt góðra gesta var við opnun hljóðversins, m.a. Jakob Magnússon sem flutti snjalla ræðu um leið og hann afhenti strákunum í Mezzo forláta klukku til þess að þeir gleymdu sér ekki alveg við tónsmíðarnar. Klukka þessi var rúmlega 7 er Jakob afhenti hana enda var það tillaga hans að hljóðverið héti Stúdíó 7 og að botnlangi sá í Súðavoginu sem hljóðverið Eyþór tekur á móti klukkunni frá Jakobi. stendur við yrði skírður upp á nýtt og kallaður Stúdíóvogur. Meðlimir Mezzoforte eru að sjálfsögðu hæstánægðir með þetta nýja hljóðver enda hefur það verið lengi á dagskrá hjá þeim að koma slíku upp. Hljóð- verið verður opið fýrir aðra tónlistarmenn og hafa nokkrir slíkir ákveðið að notfæra sér það. Hljóðverið er 24 rása og hið fullkomnasta að allri gerð en það tók um þrjá mánuði eftir að Mezzoforte fékk húsnæðið að koma því í núverandi horf. ÖRLAGARÍKT MYNDBAND Kennari einn í bænum Glas- ford í Illinous, USA fór flatt um daginn. Hann var svo elskulegur að lána hópi foreldra nemenda sinna myndband sem hann hélt að hefði að geyma tiltekinn körfuboltaleik. Þegar foreldra- hópurinn kom saman til að horfa á boltann kom í ljós að kennaranum höfðu orðið á mistök. Hann hafði lánað fólk- inu mynd úr einkasafni sínu - mynd af sjálfúm sér í villtum leik með ástkonum sínum með sængurfötin ein að skjóli. Kenn- arinn var klagaður og honum sagt upp starfi. Við höfum ekki minnstu hugmynd um hvers vegna. Og kennarinn er í öngum sínum. FERÐAMENN f FANGELSI Skammt undan strönd Júgósl- avíu er eyja sem heitir GqIí Otok. Þar hafa hingað til verið geymdir afbrotamenn. Nú þykir yfirvöldum orðið of dýrt að vista þarna glæpon a og hafa 400 fangar verið fluttir til meginlandsins. í staðinn eru ferðaskrifstofur farnar að selja mönnum aðgang að eins- mannsklefum og skínandi sól á Goli Otok... VÉLMENNI UNDIR ÁHRIFUM Fyrir skömmu hófst svokallað norrænt tækniár. Það var í Kaup- mannahöfn sem öllu tilstandinu var hrundið af stað með hana- stéli og átti vélmenni eða róbóti (beygist eins og ábóti) að ganga um beina. Það tókst þó ekki bet- ur en svo að vélmennið ruglað- ist á öllum glösunum og allt fór í bendu. Róbóti þessi hefur ver- ið tekinn úr sambandi. 4 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.