Vikan


Vikan - 04.02.1988, Síða 5

Vikan - 04.02.1988, Síða 5
Léttsveitin lögð niður Niðurskurður og ýmsar sparnaðaraðgerðir hafa sett svip sinn á Ríkisútvarpið/sjónvarp á síðustu mánuðum enda mun fullvíst að treglega muni ganga að fá fé úr ríkissjóði til að mæta hallarekstri þessara stofn- ana. Samkvæmt heimildum Vik- unnar mun Léttsveit ríkisút- varpsins vera eitt af þeim atrið- um í rekstrinum sem lendir á höggstokknum á næstunni. Sagt er að þeir peningar sem sparist með því verði settir í Eurovis- ion-hítina. Það eru ekki allir sammála þessum áformum og benda á að í stað þess að spara í dagskrár- gerðinni ættu menn fremur að huga að sparnaði í skrifctofu- bákninu sem umlykur útvarp/ sjónvarp. Fleiri thailenskar Innflutningur á thailensk- um stúlkum og stúlkum frá Filippseyjum virðist síður en svo í rénun því við á Vik- unni höfúm heyrt að 30 slík- ar stúlkur séu á leið til landsins nú seinnihluta vetrar. Sem kunnugt er urðu nokkrar umræður í fjölmiðlum um þennan innflutning síðasta sum- ar er upplýstist að einar 40 stúlkur frá þessum löndum höfðu verið fluttar hingað til lands og sýndist sitt hverjum um þennan innflutning. Nýtt íslenskt stafsetningar forrit fýrir PC tölvur Tölvuskríbentar landsins geta nú að mestu komist hjá að gera orða- og stafsetning- arvillur í rituðum texta ef þeir skrifa á svokallaðar PC tölvur sem eru IBM sam- hæfðar. Ungur tölvufræðing- ur, Friðrik Skúlason, hefúr nú fúilgert nýtt stafsetning- arleiðréttingarforrit sem var- ar tölvunotandann sam- stundis við ef villa slæðist inn í ritaðan íslenskan texta. Forritið, sem Friðrik hefúr geflð heitið PÚKI, hefúr meir en 15.000 íslenska orð- stofna með öllum löglegum beygingarmyndum og ræð- ur við nær ótakmarkaða samsetningarmöguleika ís- lenskra orða. Forritið hefur afar umfangs- mikið orðasafn sem gefur not- andanum möguleika á að leita að orðum ef hann er ekki viss í sinni sök en einnig getur not- andinn bætt orðum í safnið ef hann telur þurfa. PÚKI er hannaður fyrir nær öll PC ritvinnslukerfi sem eru í notkun hér á landi. Höfundur- inn studdist við kennslubækur í íslenskri beygingarfræði við uppbyggingu forritsins. Einnig renndi hann öllum texta Biblí- unnar og fjölda orðabóka í gegnum forritið til að tryggja því sem mestan orðaforða. Friðrik Skúlason segir PÚKA fýrsta ritvilluleiðréttingakerfið sem sérhannað er fyrir íslensku. Það hefur tekið hann rúm fimm ár að þróa forritið sem mun fást í öllum helstu verslunum sem versla með tölvuvörur. Jólakílóin burt VIÐ FRAMLENGJUM TILBOÐIÐ MEÐAN BIRGÐIR ENDAST, AÐEINS 300 TÆKI EFTIR Á ÞESSU FRÁBÆRA VERÐI. t< ... ummæll Jóns Páls.- Hvernig á að nota fjölskyldutrimmtækið rétt? Burt með aukakíló. Æflð 5 min. a dag. Tll þess aö ná árangrl veröur aö æfa hlnar þrjár mlkllvægu undirstóðuæflngar daglega. Eftlr aö byrjað er aö *fa samkvxmt xflngar- prógramml mótast vaxtarlag líkamans af sjálfu sér. Æflng 1 Pessl xfing er fyrlr magavööva og stuölar aö mjóu mlttl Setjlst á sxtlð á trlmmtæklnu, legglö fæturna undlr þverslána, hendur spenntar aftur fyrlr hnakka. Létlö höfuölö slga hxgt aö gólfl. Efrl hlutl likamans er relstur upp og teygður I átt aö tám. Mlkllvægt: Æflngu þessa veröur aö framkvæma með Jöfnum hraöa án rykkja. I byrjun skal endurtaka æflnguna flmm slnnum, en sföan fjölga þelm f allt að tfu slnnum. Æfing 2 Þessl æflng er fyrlr handleggl og rassvöðva. Legglst á hnén á sætfð á trlmmtæklnu. Taklö höndum um vlnklana, handlegglrnlr hafölr belnlr stfflr allan tfmann. Teyglö rennl út á enda, hnén dregln aftur aö vlnklunum. Æflngln endurtekln a.m.k. flmm slnnum. Æflng 3 Þessi æflng er tll þess aö þjálfa og móta lærvööva fætur og handleggl. Setjlst á sætlö og taklö báöum höndum um handföngln á gormunum og draglð sætlö að vlnklunum. Teyglö úr fótunum og halllö efrl hluta Ifkamans aftur og toglö f gormana. Haldlö gormunum strekktum allan tfmann og spennlö og slaklö fótunum tll sklptls. Æflngln endurtekln a.m.k. tfu slnnum. FJÖLSKYLDUTRIMMTÆKIÐ ™ “• 2.290,- ÁÐUR KR. 3.290,- TOLLALÆKKUN KR. 300,- AFSLÁTTUR KR. 700,- SAMTALS kr. 1.000,- Príma, póstverslun. Pöntunarsími 623535. Símapantanir alla daga vikunnar kl. 9-22. Fótóhúsið, Bankastræti, sími 21556. Húsavík, Olís. S VISA S EUHOCARD

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.