Vikan - 04.02.1988, Side 10
Hvar eru f riðarsamtökin?
/
Ahugaleysið á stríðinu 1 Afghanistan er stórhneyksli,
segir breski rithöfundurinn og sósíalistinn Doris Lessing
Við landamæri Pakistan og Afghanistan dvelja nú 5 milljónir
Afghana sem hafa flúið átökin heima fyrir. Doris Lessing rithöf-
undur ferðaðist nýlega um þetta svæði og hefúr skrifað bók um
það ferðalag. Það er ófögur mynd sem hún dregur upp af ástand-
inu þar.
Helmingur allra 10 milljóna
flóttamanna í heiminum er
Afghanar sem hafa brðið að
flýja heimili sín vegna inn-
rásar Sovétmanna í Afghan-
istan og baráttu frelsissveita
gegn innrásarliðinu. Neyð
afghanska flóttafólksins er
átakanleg í flóttamannabúð-
um í Pakistan. Skortur á mat-
vælum, ly^um og fatnaði er
stóryandamál í flóttamanna-
búðunum og meira en 60
prósent bama í búðunum
^deyja fyrir flmm ára aldur.
Hvers vegna sýnum við þess-
um vanda engan áhuga?
Hvar em friðarhreyfingarn-
ar nú?
Þessara spurninga spyr breski
rithöfundurinn Doris Lessing í
nýrri bók sinni, „að hrópa upp
í vindinn", sem kom út síðaslið-
ið haust. Lessing hefur heimsótt
flóttamannabúðir í Pakistan og
rætt við marga skæruliðafor-
ingja Afghana um ástandið.
Eins og að hrópa
upp í vindinn
„Það er mjög undarlegt og
það finnst engin ein skýring á
því hvers vegna áhuginn fyrir
vandamálum Afghanistan er svo
lítill á Vesturlöndum," sagði
Doris Lessing í viðtali við
sænsku fréttastofúna TT nýver-
ið. Lessing segir bænahróp afgh-
önsku þjóðarinnar um hjálp
heyrast jafh illa á Vesturlöndum
og orð þess sem hrópar upp í
vindinn. „Vindurinn blæs orð-
unum burtu,“ segir hún.
„Ég hef boðið flestum stærstu
dagblöðum heimsins greinar frá
heimsóknum mínum til flótta-
mannabúðanna í Pakistan, en
enginn hefúr viljað birta þær,“
segir hún. Ekki eitt einasta blað
í Evrópu sýndi áhuga á greinun-
um. í Bandaríkjunum var aðeins
eitt blað sem birti eina grein
frá ferðum hennar. Þess vegna
ákvað hún að safna greinum sín-
um í bók og viðtökurnar hafa
verið betri, segir Lessing.
Hvers vegna hafa fjölmiðlar
lítinn áhuga á að fjalla um
Afghanistan? Hvers vegna er
áhugaverðara að skrifa um eina
Dorls Lessing er ómyrk í máli í
garð Vesturlandabúa vegna
áhugaleysis þeirra á stríðinu í
Afghanistan.
milljón svertingja í Afríku sem
þjást heldur en eina milljón
Afghana sem þjást engu minna?
Sýna Vesturlönd Afríku kann-
ski meiri áhuga vegna gamallar
sektarkenndar sem þau þjást af
vegna illrar meðferðar nýlendu-
þjóðanna á Afríkumönnum?
Doris Lessing hefúr sínar eig-
in kenningar um þetta: „Það er
auðveldara að hafa samúð með
hjálparvana svörtu barni en
þjóð sem berst,“ ályktar hún.
„Auðvitað eigum við að sinna
vandamálum Afríku, en við meg-
um ekki gleyma Afghanistan.
Flóttafólkið
fær enga menntun
Á ferðum sínum um flótta-
mannabúðirnar í Pakistan gerði
Doris Lessing sér grein fyrir því
að heil kynslóð afghanskra
barna fær enga menntun, heil
kynslóð menntamanna er í raun
horfm og konur eru innilokaðar
eins og fangar eða dýr í flótta-
mannabúðunum. Þær verða að
bera andlitsblæjur, þær fá litla
sem enga læknisþjónustu og
verða að horfa vanmáttugar upp
á börnin sín deyja. „Af hverju er
enginn sem mótmælir þessu
ástandi?" spyr Lessing. Það eru
aðeins um 300 læknar í flótta-
mannabúðunum við landamæri
Pakistan og Afghanistan og þeir
eiga að þjónusta hátt í 5 milljón-
ir flóttamanna. Sjúkrarúm fyrir
konur eru aðeins 200 talsins í
öllum flóttamannabúðunum.
Doris Lessing er yfirlýstur
sósíalisti, en hún hefúr hlotið
gagnrýni margra vinstrihreyf-
inga, sem segja hana afturhalds-
segg fyrir það að hún gagnrýnir
undanlátssemi Vesturlanda
gagnvart Sovétríkjunum.
Lessing segist alls ekki vera
hliðholl Bandaríkjunum þótt
hún sé lítt hrifin af Sovét. „Ég
trúi ekki þeim sovéska áróðri að
þeir þykist ætla að draga heri
sína til baka ffá Afghanistan. All-
ir Afghanir vita líka að þetta er
bara áróður til að slá ryki í aug-
un á Vesturlöndum," segir Doris
Lessing.
„Ég er hins vegar sannfærð
um að Sovétríkin eru viðkvæm
fýrir gagnrýni og þrýstingi utan
frá. Þess vegna verða ríkisstjórn-
ir Vesturlanda og fjölmiðlar að
taka alvarlega á þessum málum.
Við verðum að láta til okkar
taka, þótt það virðist vonlaust,"
segir hún.
„Sagnfræðingar framtíðarinn-
ar munu undrast stórum hvern-
ig Sovétmönnum hefúr tekist að
fá heiminn til að snúa sér undan
og láta sem stefna þeirra og
þjóðarmorð í Afghanistan sé
ómerkilegt mál,“ segir Doris
Lessing. - TT
10 VIKAN