Vikan


Vikan - 23.06.1988, Side 8

Vikan - 23.06.1988, Side 8
TEXTI: JÓN GUNNARSSON LJÓSM.: PÁLL KJARTNSSON Vikan tók tali þrjár starfskonur Granda, þær Málhildi Sigur- björnsdóttur trúnaðarkonu, Hólmfríði Ingólfsdóttur trúnað- arkonu og Ágústu Vigfúsdóttur. Allar þess- ar konur hafa starfað við fiskiðnað í fjölda ára eða eins og Málhildur orðar það: „Ég er fædd með fisk í höndunum." Hvað hafia konurnar til málanna að le88Ía um málefini Granda? Málhildur: „Sameining þessara fyrir- tækja var kostuleg. Þegar kom til tals að sameina ísbjörninn og Bæjarútgerðina vogaði ég mér að spyrja Davíð Oddsson borgarstjóra hvort Fiskiðjuverinu yrði þá ekki lokað og okkur hent út, en ég vann í Fiskiðjuveri BÚR fyrir sameininguna. Hann sagði þá bara þvert nei, en svo kom annað á daginn. Bæjarútgerðinni var iokað. Ég man nú ekki hvað það var lokað lengi áður en það var opnað aftur. En svo í endaðan janúar 1986 vorum við keyrð hérna yfir á Norðurgarð. Mér fannst við vera leidd eins og fé til slátrunar því okkur leið vel úti í Bæjarútgerð. Ég vil þó segja það, að okkur líður ekki illa hérna á Norðurgarði, en Fiskiðjuver Bæjarútgerð- arinnar var alveg sérstakt hús, sér á báti, gamalt hús og hafði sál. Þetta hús hérna er ósköp fínt, gler og steinsteypa. Það sem mér finnst vanta í þetta hús er sálin sem var úti í Bæjarútgerð. Ég finn mjög svo fyr- ir því. En það var tekið ósköp vel á móti okkur þegar við komum hingað yfir og það hefur alltaf verið nóg hráefni og nóg að gera. En uppsagnirnar núna komu mér spánskt fyrir sjónir, alveg eins og þruma úr heiðskíru lofti, og okkur finnst þetta held- ur kaldar sumarkveðjur. Okkur var sagt það síðasta vetrardag að hér ætti að segja upp 50 til 60 manns. Og þetta var kannski enn kaldranalegra fyrir það að um það bil viku seinna heyrði maður svo um bílinn til stjórnarformannsins fyrir eina og hálfa milljón. Ég skal nú reyna að vera kurteis, en manni fannst þetta fjandi hart, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Þetta eru hvorki meira né minna en árslaun fyrir 6 manns sem vinna hérna hálfan daginn, og því er það eins og högg undir beltisstað, svo ég noti hnefaleikamál. Okkur þótti þetta fjandi hart.“ „Var alltaf smárígur á milli fyrirtækjanna“ Ágústa: „Ég vann hjá ísbirninum fyrir sameininguna og líkaði vel. Ég get eigin- lega ekkert sagt um sameininguna. Ekki get ég útskýrt hvers vegna mér líkaði vel hérna. En fólkið var svo samhent, eins og ein stór fjölskylda. Þetta var ekki mjög stór hópur en andrúmsloftið var gott, góðir verkstjórar og margt sem hjálpaði til. Við kviðum talsvert fyrir miklum breytingum sem við vissum ekki hvernig yrðu. Ekki vissum við hvort við yrðum sendar út í Bæjarútgerð eða hvort fólkið úr Bæjarút- gerðinni yrði sent til okkar. Við veltum þessu fyrir okkur og kviðum umskiptun- um. Okkur fannst allt í svo mikilli óvissu. Ég var búin að finna fyrir því áður að það var alltaf smárígur á milli fyrirtækjanna, svo það var talsvert rætt um það hvað yrði. En svo kom allt þetta fólk hingað. Ég átti dóttur úti í Bæjarútgerð og hún var mjög sár og kvíðin yfir því að þurfa að fara hingað. Henni fannst þetta allt vera voða- legt, held ég. En þegar við fréttum að fólk- ið ætti að koma hingað þá ákváðum við að gera okkar besta til að láta allt ganga vel og taka þessu fólki eins bærilega og við gæt- um og alls ekki að setja okkur á háan hest. Við gerðum okkur grein fyrir því að þetta fólk, sem var að koma á nýjan vinnustað, þyrfti að jafna sig á því. Og þetta gekk bara mjög vel hjá okkur, miklu betur en við ótt- uðumst í fyrstu. Ég sé ekki að það sé neinn munur á fjölskyldunni. Grandi fór mjög vel af stað og allt gekk vel, töldum við, og þetta átti að bjarga borginni frá alls konar skuldum og ég veit ekki hvað, því það var alltaf talað um að það hafi þurft að borga svo og svo mikið með Bæjarútgerðinni. Okkur fannst að það hlyti að ganga vel. Það var alltaf nóg hrá- efhi og aldrei neitt stopp nema um jólin þegar sjómennirnir voru í fríi. Mér finnst að maður hafi ekki tekið svo mikið eftir því að allt væri á svona mikilli niðurleið í þessu. Mér fannst ég ekki geta merkt það fýrr en þeir komu svo allt í einu einn dag- inn í hádeginu til að segja okkur að það ætti að segja upp 60 manns. Það svoleiðis datt af manni andlitið og maður stóð með öndina í hálsinum. Maður vissi ekki hvað- an á sig stóð veðrið og hlustaði stjarfúr á þetta. Svo átti að loka mötuneytinu og síð- ar kom upp að það ætti að hætta að keyra okkur til og frá vinnustað. Þetta var aug- ljós samdráttur og fólk varð niðurdregið hvort sem það átti að vera áfram eða hætta. Við sem ekki eigum að fara urðum alveg eins óánægð. Okkur tekur þetta sárt fyrir hitt fólkið. Við sjáum eftir þessum fé- lögum þegar þeir fara, en margt er óðum að fara, jafnvel fólk sem ekki var sagt upp. Því finnst að það ríki svo mikil óvissa hérna. Eitt kvöldið var komið út í rúturnar sem áttu að keyra okkur heim eftir vinnutíma. Það eru þrjár rútur sem keyra fólkið heim og þegar það var komið út í fyrstu rútuna vildi það flýta sér heim og sagði bílstjóran- um að það væri komið fram yfir vinnu- tíma. Þá sagði bílstjórinn að þeir hefðu verið beðnir að bíða. Svo var komið út í rúturnar og okkur tilkynnt að þessi heim- keyrsla yrði tekin af. Heimkeyrslan hefur verið eins lengi og ég man eftir mér, eða það finnst mér. Ég man eftir því þegar ég var krakki að fólk var keyrt heim í gömlu boddý-bílunum frá fiskvinnslustöðvunum og frystihúsunum." Málhildur: „Ég man eftir heimkeyrslu í gamla ísbirninum úti á Nesi. Ég var þar í fiskvinnu sem krakki og ég man eftir því að þá var maður sóttur í vinnu á boddý-bíl inn á Rauðarárstíg og svo var maður keyrður til baka eftir vinnu.“ Ágústa: „Það er alveg klárt að nú á að leggja þetta niður og líka mötuneytið. Ég held að kokkurinn sé þegar farinn." „Öll stjórnin ætti að segja af sér“ Hólmfíríður: „Ég veit ekki hvað ég á að segja um þetta til viðbótar. Um bílakaup Ágústa: - Mér finnst starfið ágætt. Ég held t.d. ekki að ég vildi frekar vinna í verslun og bíða eftir viðskipta- vinum.“ stjórnarformannsins hefur mikið verið rætt og sumir hafa sagt að hann ætti að segja af sér. Ég vil nú ekki taka undir það. Ég held að öll stjórnin ætti að segja af sér. Það hlýtur að vera öll stjórnin sem hefur ákveðið þessi bílakaup. Ekki hefur formað- urinn bara farið út í búð og keypt bíl og skrifað hann hjá Granda. Mér finnst ekki vera hægt að klessa þessu á hann einan, þótt þetta sé auðvitað helvítis ósvífni, bara að fara fram á þetta. En auðvitað er það öll stjómin sem ræður þessu. Þetta er eins og kjaftshögg á fólkið. Ég held helst að það sé bara hálflamað. Það hefúr komið liver skellurinn á fætur öðrum og gengið ffam af fólki. Maður bíður bara á hverjum degi og spyr sjálfan sig: Hvað kemur næst? Þeg- ar maður er kallaður inn til verkstjórans, ég tala nú ekki um forstjórans, þá fær mað- ur bara hjartslátt - hvað á nú að gerast?" Við höfum rætt vítt og breitt um málefni Granda. En hvað viljið þið segja um sjálfa verkalýðshreyfinguna? Viljið þið nú ekki segja eitthvað fallegt? Máhildur: „Verkalýðshreyfinguna á að stokka upp, algjörlega upp á nýtt. Og ann- að er það að þeir sem veljast til forystu fyr- ir verkafólk eiga alveg að snúa sér að þeim málum en ekki að vera að vasast í pólitík og öðrum málum. Það er bara fullt djobb. Mér finnst að þetta fólk eigi bara ekki að vera í neinu öðru." Hólmfríður: „Þeta er alveg rétt. Á meðan þetta eru verkalýðsforingjar eiga þeir að sinna því starfi. Ég tel að þetta fólk hafi ekki gert það sem skyldi. 8 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.