Vikan - 23.06.1988, Side 13
Konurnar hjá Granda hf.
finnið þið ykkur svo gott húsnæði þegar
aðrir er að drepast úr húsnæðisleysi?
„Bjartsýni er lykilatriði."
„Við höfðum nasaþef af þessu húsi.“
„Maður þarf líka að vera svolítil rotta.“
„Rotta?“
,Já, svolítil.“
„Tíminn hentar líka báðum aðilum mjög
vel. Farið verður að nota húsnæðið aftur í
haust."
Nú kom smáþögn. Allir önduðu og
bjuggu sig undir næstu hrinu. Andrúms-
loftið brosti. Líka ég. Um hvað er verkið?
„Verkið er unnið upp úr spuna ásamt
öðrum þáttum sem eru dregnir inn. Text-
inn er eftir einn úr hópnum, Dúa, Stein-
grím Másson, í samvinnu við Kára
Halldór."
„Kári gerir leikrammann."
„Það sem mætist í þessu verki er
textinn, vinnan í vetur, húsnæðið, við og
Kári.“
„Þetta er ekki bara spunaverk."
„Heldur ekki pornógrafískur helgileik-
ur.“
„Við höfúm gefið okkur tíma í vetur til
að leita að leiðum sem við höfúm fúndið
og notum til að vinna þetta verk.“
Þögn, allir hugsa.
„Þetta er einhvers konar eltingarleikur
sem við höfúm þróað."
„Við viljum afhjúpa manninn í okkur
sjálfum og vonandi áhorfendum."
lvAnnars ættum við ekkert að segja.
Verkið er ennþá að þróast og verður allt
fram að síðustu sýningu."
„Maður myndar sér ekki eina rétta skoð-
un á því. Maður skynjar það kannski frekar
en sér. Þetta er ákveðin lífsreynsla."
Á að halda áfram?
Tíminn virtist standa í stað. Þau eru lif-
andi, manneskjur með markmið sem nást.
Ég reyndi að fá þau til að tala um hina, það
sem aðrir eru að gera. Þau voru treg til að
tjá sig.
„Við erum ekki að berjast við neinn og
alls ekki leikhúsin."
„Við erum ekki að móta nýja stefnu.“
„Samt má það koma ffam að okkur
finnst það útbreiddur misskilningur að
bara sumir útvaldir megi eiga við listina.
Það má leika sér með iistform þó ekki hafi
verið farið í skóla og lært.“
Þetta er stór sannleikur.
„Við stefhum á ffumsýningu um miðjan
júní. Við erum bjartsýn á að sýna í sumar
því við lendum t.d. inni í miðri Listahátíð."
Og framtíðin. Á að halda starfinu áffam?
,Já, tvímælalaust, eða hvað?“
Þau líta hvert á annað.
„Það hefúr nú eiginlega ekkert verið
rætt, heldur bara einblínt á þessa sýningu."
Þar með afgreitt. En þau halda áffam.
Það er á hreinu. Maður finnur það.
Og ég gekk út í sólina, brosandi. upp-
lifunin var sérstök. Að sitja með svo
óvenjulega venjulegu fólki í hálftíma og
rabba er eitthvað sem gefur. Og þau munu
gefa meira í sumar. Þau verða á sama stað,
vestast í vesturbænum, og þau munu
gleðja þig, sannaðu til. Sjáumst í sumar. Ég
ætla að sitja í ffemstu röð...
Frh. af bls. 9
140 þúsund á ári eins og kom ffam í viðtali
við Þröst Ólafsson. Ég spyr: Er ekki of mik-
il eyðsla í yfirbyggingunni? Það er verið að
naga utan í undirstöðurnar með öllum
þessum uppsögnum. Yfirbyggingin er orð-
in of viðamikil og er hún ekki einnig orðin
of kostnaðarsöm? Er það ekki þess vegna
sem þessu fýrirtæki gengur svona illa? Ég
veit ekki hvað þeir hafa í kaup hjá Útgerð-
arfélagi Akureyringa, framkvmdastjórar
eða framleiðslustjóri og verkstjórarnir þar,
en það væri gaman að fá að vita það, hvort
þeir hafi sambærilegar tekjur. Það er skrýt-
ið að því fyrirtæki skuli ganga svona miklu
betur en þessu. Það væri gaman að fá svör
við þessu.“
„Byrjad á öfugum enda“
Ágústa: „Ég vil bæta því við að þegar
svona sviptingar eru, þá er illt að fá ekkert
að vita fyrr en það kemur einhver skellur
á mann. Við vissum náttúrlega ekkert um
þennan bíl fyrr en eftir að fólkinu var sagt
upp, og þegar fýrirtæki fer að segja upp í
svona stórum stíl þá er alltaf eitthvað bog-
ið við það. Þá er farið að kafa ofan í ýmis-
legt. Það er farið að losa sig við fólk og
byrjað á öfugum enda. Ég hef ekki heyrt
um að neinum hafi verið sagt upp á skrif-
stofunni.
Ég minnist þess að einn af stjórnendun-
um hér var spurður um það í einhverjum
fréttum hver hefði verið viðmiðunin þeg-
ar ákveðið var hverjum yrði sagt upp og
svarið var: „Mætingar og hæfni var viðmið-
unin.“
Ég veit um eina stúlku sem sagt var upp
sem hafði mætt hundrað prósent fyrir utan
kannski veikindi. Svo fór þessi stúlka á
vinnumiðlun til að sækja um starf og þegar
í ljós kom að hún var frá Granda var hún
spurð hvort hún mætti svona illa.
Mér finnst það fyrir neðan allar hellur
að mennirnir skyldu segja svona í sjón-
varpinu."
Hólmfríður: ,Já, ég tek undir þetta.
Það er verið að undirstrika að fólk sé ekki
hæft eða sé alltaf veikt eða mæti illa. Þegar
fólk mætir vel og stendur sig yfirleitt vel,
eins og margt af því fólki sem sagt var upp,
þá er það rosalegt að fá þetta framan í sig.
Það hlýtur að vera áfall þegar einn af ráða-
mönnum fyrirtækisins lýsir því yfir í fjöl-
miðlum að fólki hafi verið sagt upp eftir
því hvernig það hafi staðið sig. Hvað eiga
aðrir að hugsa? Aðrir vinnuveitendur
hljóta að álíta að þetta fólk mæti illa til
vinnu eða að því sé í einhverju ábótavant.
Þetta máttu mennirnir hér hjá Granda
ekki gera. Margt af því fólki sem sagt var
upp var eldra fólkið sem passar sig yfirleitt
mjög vel til vinnu og er samviskusamt. Það
verður áreiðanlega erfitt fyrir margt af því
að fá vinnu."
Málhildur: „Ég veit mörg dæmi þess að
eldra fólkið heftir mætt sárlasið til vinnu
heldur en að mæta ekki.“
Hólmfríður: „Það eru líka dæmi um
það að hér sé fólk sem hefur mætt illa en
var ekki sagt upp.“
MálhUdur: „Þessi regla er því alls ekki
einhlít. Hér var til dæmis sagt upp gæða-
stjóra sem virkilega var búinn að vinna
gott starf. Hann setti strangari reglur um
fötin, til dæmis að húfúrnar væru vel yfir
hárið og fleira í sambandi við hreinlætið.
Þetta hús hefur fengið verðlaun fýrir gæði
og hreinlæti sem hann á áreiðanlega stór-
an hlut að. Honum var sagt upp. Þessum
manni var áreiðanlega ekki sagt upp vegna
slæmrar mætingar. Mér fannst hann alltaf
mæta. Manni finnst margt af þessum upp-
sögnum vera vanþakklæti. Ég veit að frysti-
húsið var til dæmis búið að fá viðurkenn-
ingu að utan frá Coldwater og það þurfti
mikið til að fá slíka viðurkenningu.
Ég vil segja vegna þessa fólks sem er að
fara úr húsinu og við erum búin að vinna
með í mörg ár, gamlir og góðir vinnufélag-
ar margir hverjir, að við eigum eftir að sjá
mikið eftir þessu fólki og sakna þess mikið.
Við erum búin að þola með þessu fólki
súrt og sætt, sameininguna og tilfærslur
hingað yfir, og ganga í gegnum ýmsa hluti
með því. Ég held að flestir séu sammála
mér um að við eigum eftir að sjá mikið eft-
ir þessu fólki. Þetta er allt afar sárt,“ sagði
Málhildur að lokum. □
VIKAN 13