Vikan - 23.06.1988, Qupperneq 21
TEXTI: ÞÓREY EINARSDÓTTIR
MYNDIR: PÁLL KJARTANSSON
Þegar við hugsum um skart-
gripi dettur sjálfsagt flest-
um í hug silfur, gull og
eðalsteinar, alltént var það
svo hér áður fyrr að „ekta" skart
var ekki unnið úr öðru. En í seinni
tíð hafa skartgripir úr margs kyns
öðrum efnum rutt sér til rúms.
Fjöldaframleiddir skartgripir úr
ódýrari málmum og steinum hafa
mjög verið í tísku, en einnig vand-
aðir handgerðir gripir úr öðrum efn-
um svo sem leðri, leir og textíl. f
Gallerí List við Skipholt í Reykjavík
er innan um aðra listmuni mikið
úrval af fallegum, handgerðum
eyrnalokkum og nælum í mörgum
stærðum og gerðum og hinum
ótrúlegustu litbrigðum. Þetta eru
nælur eftir íslenskar listakonur,
unnar með ýmsum aðferðum. Eng-
ar tvær eru alveg eins, en nælur
hverrar listakonu fyrir sig hafa sitt
sérstæða handbragð og stíl.
Eyrnalokkar og nælur eftir Rögnu Ingimundardóttur.
Nælur Guðrúnar Gunnarsdótt-
ur sem eru á boðstólnum í Gallerí
List eru ólíkar keramikskartgripun-
um og afar sérkennilegar. Guðrún
er vefari, menntuð á verkstæði í
Danmörku. Hún hefur unnið við
textíl síðan árið 1975 og tekið þátt í
ýmsum sýningum. Hún hefur ný-
verið fengið þriggja mánaða starfs-
laun listamanna og vinnur að sýn-
ingu sem sett verður upp á Kjar-
valsstöðum í haust. Nælurnar segist
hún vinna sér til gamans og tilbreyt-
ingar. Hún byrjaði eins og fleiri að
búa þær til handa sjálfri sér, en
varð fljótt vör við áhuga annarra.
Nælurnar hennar eru unnar úr sísal
sem er sama efni og í snæri og síðan
er vafið utan um með hör og
tvinna. í aðrar notar hún tuskur og
pinna og málar með akríllitum.
Hún segir mikinn tíma fara í að
gera hverja nælu, og því varla að
það borgi sig að fást við þær, en það
sé mjög skemmtilegt. Eins og sjá
má er útkoman afar litskrúðug og
fjölbreytileg. Skartgripir af þessu
tagi eru skemmtileg viðbót við
skartgripasafnið. Þeir eru allir
handunnir og eiga engan sinn líka.
Engir tveir hlutir eru eins og því má
segja að þetta séu ósviknir módel-
skartgripir á viðráðanlegu verði.
VIKAN 21