Vikan - 23.06.1988, Blaðsíða 23
Broadway kemur á ávart
Skyldi hún hafa fallið fyrir kyntöfrum Þor-
gríms Þráinssonar?
TEXTI: BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR
LJÓSM.: GUNNLAUGUR RÓGNVALDSSON
Búið er að breyta Broadway og
það sem meira er þeir ætla að
vera með uppákomur sem aldrei
verða auglýstar fyrirfram þannig
að þegar þú ferð að skemmta þér
í Broadway máttu búast við að
þér verði komið á óvart.
Aftur á móti er annað þar innan dyra
sem þú getur verið viss um. T.d. að þar er
búið að fjarlægja flest borðin og í staðinn
eru komnir mjúkir og þægilegir sófar þar
sem gott er sitja og spjalla saman í notaleg-
heitum. Þaðan er einnig hægt að horfa á
föngulegt fólk sem dansar í sérstökum
glerbúrum, en þannig búr tíðkast á mörg-
um þekktum skemmtistöðum erlendis.
Hver man ekki líka eftir gogo-dönsurum
sjöunda áratugarins?
Vilji fólk halda sig nokkuð sér þá getur
það tekið afmarkað svæði á leigu með
einkaþjónum og dyravörðum þar sem ein-
Á kynningarkvöldinu var margt góðra gesta og þar á meðai þátttakendurnir í Fegurðarsam-
keppni íslands í ár.
göngu þeirra gestum verður hleypt inn og
kallast þetta nýja svæði Hatturinn.
Þessar nýjungar sem teknar hafa verið
upp á Broadway eiga að stuðla að því að
gestirnir taki virkari þátt í skemmtiatrið-
um kvöldsins, verði virkir þátttakendur,
en einnig geta þeir sem eru í stuði flakkað
á milli skemmtstaðanna sem eru í eigu
Ólafs Laufdal án þess að þurfa að borga sig
inn á þá alla, því einn og sami aðgöngu-
miðinn gildir núna inn á Hollywood, Bro-
adway, Hótel ísland og Borgina.
Föngulegt fólk dansar í glerbúrum, gestum
sem sitja í nýju þægilegum sófunum til
mikillar ánægju.
VIKAN 23