Vikan - 23.06.1988, Page 25
ú gætir unnið þriggja vikna ferð til Mallorka fyrir tvo þar
sem þú gistir á glænýju lúxushóteli við Palma-ströndina.
Aukavinningur: Vandaðasta Wait gasgrillið frá Bústofni
ROYAL CRISTINA
- sem verölaunahafinn mun
gista á ásamt einhverjum þeim
sem hann kýs aö bjóöa meö sér
- er nýjasta (búðahótelið viö
Palma-ströndina á Mallorka.
Þaö stendur í næsta nágrenni
viö hiö valinkunna íbúöahótel
Royal Playa de Palma.
Royal Cristina var opnað í vor
og er með glæsilegustu íbúöa-
hótelum, sem opnuð hafa veriö.
Ibúðirnar eru sérlega hagan-
!ega gerðar og allur aöbúnaöur
þeirra hinn smekklegasti. Engu
er ofaukiö, ekkert skortir. íbúö-
irnar skiptast ( stofu, svefnher-
bergi, eldhús og baö og eru allar
oieð rúmgóðar svalir.
Aöbúnaöur gestanna innan-
dyra sem utan er til hreinnar
fyrirmyndar, enda hefur ekkert
veirö til sparaö. Viö nefnum
stóran og glæsilegan hótelgarö,
sérrétta veitingastað, pizza- og
kaffiteríu, tónlistarbar, alþjóöa-
sjónvarp um gervihnött, íþrótta-
svæði meö gervigrasi, tennis-
velli, sérstakt barnaleiksvæði og
sundlaugar fyrir börn og full-
orðna svo eitthvað sé nefnt.
Verölaunahafar Vikunnar
munu njóta alls hins besta og er
ferðavinningur þessi ríflega 130
Þúsund króna virði.
wait gasgrillið
~ sem er aukavinningur sumar-
9etraunarinnar - er hið vandað-
asta sem í boði er. Þaö kostar
kr. 23.290 með gaskút. Þaö er
hrein unun að matreiöa á þess-
Um grillum. Þau eru tilbúin til
ootkunar á svipstundu og öll
vinnuaðstaða viö þau er hin
haganlegasta. Boröplötur eru á
þrjá vegu svo hægt er aö leggja
írá sér hráefni og verkfæri. Á efri
Qrindinni á grillinu er hægt aö
halda hita á sósupottinum, bök-
uöu kartöflunum og öðru slíku
meðan steikin er aö grillast.
Pað er Bústofn á Smiðjuvegi
6 í Kópavogi sem selur þessi
QriH. Þess má geta að þar fást
einnig minni og ódýrari gasgrill
sömu tegund.
■ Úrlausnarseðill fylgir næsta tölublaði Vikunnar, en þá um leið birtast sex
andlitsmyndir til viðbótar.
■ Þú færðir inn á þann seðil nöfn kvennanna tólf og póstleggur eigi síðar
en 21. júlí.
■ Öllum lesendum Vikunnar er heimil þátttaka í sumargetrauninni, bæði
þeim sem kaupa blaðið í áskrift og lausasölu.
■ Strax og dregið hefur verið um Spánarferðina efnum við til annarrar
getraunar í tveim blöðum og verður ferðavinningur þá einnig í boði.
Hvað heita konurnar?
VIKAN 25