Vikan - 23.06.1988, Side 27
undir augnabrúnunum er mikil þannig að
þegar hún er með augun opin þá hverfa
augnlokin svo til alveg. Til að gera minna
úr pokunum sem virðast hanga yflr augun-
um er sett mikið af nokkuð dökkum
skugga á þetta svæði, dreiíit vel úr honum
upp og út, næstum að augnabrúnum.
Skugginn er dýpkaður þegar nær dregur
ytri brúnum og látinn vísa á ská upp á við.
Einnig var örmjó lína dregin meðfram
augnhárunum á efri augnlokum og einnig
fyrir innan neðri augnhár. Petta gerir
augnlögunina ákveðnari og mikið af mask-
ara var sett á augnhárin sem voru nærri
ósýnileg áður.
Stutt bil á milli augnanna: Þegar bilið
er stutt á milli augnanna þá er best að setja
ljósan augnskugga við augnkrókana og þá
virðist bilið vera meira. Síðan er dökkur
skuggi settur við ytri brúnir. Á myndinni
FYRIR
EFTIR
sést að dökki augnskugginn nær langt í átt-
ina að gagnaugunum. Fyrir ofan effi augn-
hár var máluð örfín lína og mjúk lína fyrir
neðan þau neðri, frá miðju og út — þannig
virkai bilið milli augnanna meira. Maskara
verður auðvitað að nota, síðan var augn-
abrúnalínan skerpt með blýanti.
Mikið opin augu: Áberandi augnlok og
langt bil á milli augna og augnabrúna gera
það að verkum að viðkomandi virðist allt-
af hálf hissa. Á móti þessu er unnið með
FYRIR
EFTIR
því að bursta ljósum augnskugga yfir augn-
beinið, nokkuð dökkan, en óræðan lit á
augnlokin og enn dekkri lit eftir brún
augnbeinsins og til að forma augað — litur-
inn nær akkúrat hálfa vegu upp að augna-
brúnunum frá augnloksboganum.
Þar sem augnlokið er sérlega breitt þá
er þar mikið pláss fyrir augnmálningu og
hægt að hafa breitt strik fýrir ofan augn-
hárin. Lína var sett fyrir ofan neðri augn-
hár.
Djúpt liggjandi augu: Jafnvel stór augu
sem eru djúpliggjandi geta virkað lítil. Hér
var hvítur augnskuggi settur á augnlokin,
U1 að ná þeim ffam. Einnig var settur ljós
litur í augnkrókinn af því bilið á milli
augnanna er einnig nokkuð stutt. Djúpt-
Iiggjandi augu mynda í raun sinn eigin
skugga, þannig að skugginn sem settur var
á augnbeinsbrún miðja vegu upp að auga-
brúnum var ekki mikill eða sterkur. Augn-
lína var dregin fýrir ofan effi augnhár.
FYRIR
EFTIR
Byrjað á mjög fínni fínu í augnkróknum
sem fór breikkandi. Þetta, ásamt maskara,
gerir mikið til að ná augunum úr felum.
Stúlkan á myndinni er auk þessa með
ffemur hátt enni og til að draga úr því eru
augnabrúnirnar burstaðar upp.
Þreytuleg augu: Þegar augun vísa niður
á við þá virðist viðkomandi alltaf vera
þreyttur. Þessu var breytt með því að setja
skugga undir augnbeinsbrúnina sem end-
aði í línu sem vísar upp á við. Augnlokin
voru höfð ljós en augnlína dregin frá augn-
krók út á enda augnloks þar sem Iínan
breikkaði aðeins. Smávegis af augnskugga
var sett undir neðri augnhárin ásamt afar
fínni línu, beint undir augnhárunum.
Stór, þung augnlok: Það getur verið
gott að vera með stór augnlok, af því þau
er hægt að mála mikið. Aftur á móti geta
þau virkað þung, þannig að augnsvipurinn
FYRIR
EFTIR
virkar syfjulegur. Til þess að vega á móti
þessum syfjulega svip var settur ljós augn-
skuggi á augnlokin, augnumgjörðin form-
uð með dekkri lit sem settur var á augn-
loksbrún og hálfa leið upp að augnabrún-
um — og síðan breiða, mjúka línu fyrir ofan
effi augnhárin.
Þegar augnhárin eru löng en bein, þá
verður áherslan á syjulega svipnum enn
meiri. Breytingin sem verður við það að
bretta augnhárin upp með augnhárabrett-
ara og mála þau síðan strax á eff ir með ma-
skara, er hreint ótrúleg - eins og myndirn-
ar sýna og sanna.
FYRIR
EFTIR
Lítil augu: Jafnvel lítil augu geta virkað
sterkt þegar búið er að mála þau á réttan
hátt. Lítið fyrst á „fyrir“ myndina og síðan
á muninn sem varð við það að ljós augn-
skuggi var settur yfír allt augnlokið og síð-
an mynduð umgjörð með því að setja mik-
ið af dökkum skugga - en mjúklega - ffá
augnloksbrún hálfa Ieið upp að auga-
brúnum. Einnig var sett mjúldega dálítið af
skugga undir neðri augnhár og að lokum
ljós litur undir augnbrúnirnar. Skoðið „á
eftir“ myndina vandlega og þá sést að
þessi litur undir augnabrúnum gerir
beinabygginguna umhverfis augun
ákveðnari. Maskari á augnhárin opnar aug-
un enn betur og lætur þau virka stærri.
Krumpuð augnlok: Forðist að nota sans-
eraða augnskugga, þeir endurkasta birt-
unni og augnlokin virðast enn hrukkóttari.
Augnskuggar sem eru ekki sanseraðir gefa
mýkra útlit og endurvarpa ekki birtunni á
sama hátt, þannig að áherslan verður
minni á augnlokin. Djúpir, reyklitaðir tón-
ar eru bestir — en ekki setja of mikinn lit.
Notið maskara og augnlínulit til að beina
athyglinni að augnhárunum, frá augnlok-
unum.
Augnmálning fyrir
þær sem nota gleraugu
Það sem fyrst og fremst verður að hafa
í huga til að vinna ám óti glampanum í
glerjunum er að nota nóg af augnmáln-
ingu. Það þýðir alls ekki að nota þurfi
mjög mikið eða mjög sterka liti, en það
þýðir ekki að setja á sig föla og gegnsæja,
eða sanseraða liti og ætlast til að þeir
sjáist.
Notið þess í stað djúpa og náttúrulega
tóna — Ijósbrúna, drapplita, gráa — og
ljósbleika eða ljósdrapplita fyrir neðan
augnabrýr. Leggið áherslu á beinabygg-
ingu með því að forma hana með dekkri
skuggum, þannig að þrívídd myndist sem
sést vel í gegnum gleraugun.
Þegar gleraugnaumgjörð er valin er
betra að velja hana ekki mjög litla sem
virðist þrengja að augunum. Því meira af
augnsvæðinu sem sést í gegnum gleraug-
un því svipmeiri verður augnmálningin.
Gler sem eru aðeins lituð hylja aðeins
hrukkótt augnlok og bauga undir augun-
um, en mjög ákveðnir litir eins og fjólu-
blár og bleikur gera augnmálninguna svip-
litla. n
VIKAN 27