Vikan - 23.06.1988, Page 29
Færeyjar! Hér komum við!
TEXTI: BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR
MYNDIR: MACNÚS HJÖRLEIFSSON
Eiginmaðurinn og syn-
imir eru með seglbát-
adellu - aldrei heima,
alltaf eitthvað að dútla
í bátnum - hvað á eiginkonan
að gera?
„Ég hugsaði með mér að svona ætti
þetta eftir að vera næstu árin og ef ég ætl-
aði að sjá þá einhvern tíma þá væri best
fyrir mig að taka þátt í þessu tómstunda-
gamni. Á tímabili gat ég sagt að Steinar
ætti heima í bátnum, en borðaði og svaf
hérna t Hraunb ænum,“ segir Margrét
Björgvinsdóttir sem var eina konan sem
tók þátt í siglingaleiðangri til Færeyja sem
lagt var af stað í núna í júníbyrjun.
Bátarnir sem siglt var á eru enskir, Delta
25 og Horizon 26 gerð, hannaðir af David
Thomas. Fjórir geta sofið um borð og þar
er eldunaraðstaða, ískápur, borð og fleira
og svo auðvitað salerni. Fjórir bátar lögðu
af stað og lá leiðin fyrst til Vestmannaeyja
og var áætlað að siglingin þangað tæki
einn sólarhring, þaðan var ætlunin að sigla
þrem bátanna alla leið til Færeyja á um
fimm dögum. Hjálparmótor og eldsneyti
til þriggja daga er um borð í öllum segl-
skútunum, ef svo illa skyldi fara að enginn
vindur væri á leiðinni - sem er þó harla
ólíklegt á þessum slóðum, enda ferðalang-
arnir búnir að fá flmm daga veðurspá ffá
Veðurstofunni áður en lagt var í ’ann og
var hún í alla staði mjög hagstæð fyrir sigl-
inguna.
„Góða ferð!" kallar fólkið á bryggjunni. Margrét, Steinar, Gunnar og Orri veifa til baka.
Eina konan í ferðinni, Margrét Björgvinsdóttir, kvödd með rós og nýbakaðri hjónasælu í
angóruullarkassa. Reyndar sagðist Margrét vera í þannig undirfatnaði í ferðinni.
VIKAN 29