Vikan - 23.06.1988, Side 32
UMSJÓN: BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR
MYNDIR: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Það þarf ekki endilega að vera glamp-
andi sólskin og blíða til að hægt sé að
grilla úti. Meira að segja hjálpar það
aðeins til að mynda sumarstemningu að
finna grillilminn í loftinu, jafnvel þó suddi
sé úti. Við á ritstjórn Vikunnar fundum til
nokkrar óvenjulegar grilluppskriftir og
grilluðum í hálfgerðri rigningu. Veðurfarið
kom ekki aö sök því maturinn bragðaðist
afar vel, enda yfirbragðið suðrænt.
Við völdum að sjálfsögðu einn lamba-
kjötsrétt, til að minnka lambakjötsbirgð-
irnar og svo er lambakjötið einna best á
grillið, auk þess einn svínakjötsrétt því
svínakjöt er einnig sérlega Ijúffengt
grillað. Bakaðar kartöflur eru alltaf mjög
góðar en dálítið mikið notaöar, við
ákváðum að sleppa kartöflum að þessu
sinni og hafa meðlætið óhefðbundið - og
þá eru það uppskriftirnar:
r-■ ■- ■ . . ■- , í_■■ -:■ ■'■' ■/' • .. : •• *• A t"“'\ . ■ -'* /' \- •
\ " J
■BCT ' j v nw y ' i ■:ih, i _. ) ■; 1
’ •\ v *■". ■ ^ L *
J f . y
Grillréttir með suðrœnu yfirbragði
Lambakótilettur Teriyaki
1/2 dós Beef Consomme (kjötkraftur)
1 tsk. jurtasalt
1 hvítlauksgeiri, kraminn
2 msk. púðursykur eða hunang
1/4 bolli Soyasósa
1 msk. sítrónusafi
1 tsk. engifer
25 piparkökur
6 tvöfaldar lambakótilettur
Blandið öllu saman í marineringuna,
nema piparkökunum. Þær eru muldar
fínt. Á botninn á fati er sett lag af mylsn-
unni, kótiletturnar lagðar þar ofan á og
síðan því sem eftir er af mylsnunni stráð
vel yfir. Vökvanum hellt varlega yfir og
þetta látið inn í ísskáp þar sem það bíður
í 24 klst.
Þegar grillið er tilbúið þá eru kótilett-
urnar grillaðar um 5 mínútur á hvorri hlið,
eða þar til þær eru tilbúnar. Gott er að
pensla grillristina með olíu áður en kjötið
er sett á til að kjötið festist síður við og
fína skorpan rifni af.
(Við vitum að piparkökurnar virka dálít-
ið einkennilegar í grillréttaruppskrift, en
þetta er sérkelga bragðgott.)
Súrsœtt svínakjöt
1 kg. svínahnakksneiðar
1 laukur, saxaður
1/2 ds. tómatsósa (tomatosauce)
4 msk. soyasósa
1/3 bolli púðursykur
1/2 dós ananasbitar
1 græn paprika, söxuð
3 msk. Worchestershire-sósa
1 msk. sinnep
1/3 bolli rauðvínsedik
Öllu blandað saman, munið að nota
safann af ananasinum, og kjötið látið
liggja í leginum í a.m.k. 1 klst. helst yfir
nótt. Sneiðarnar eru settar á grillið u.þ.b.
5 mínútum á undan lambakjötinu og
snúið við á miðjum grilltíma. Gott er að
smyrja þær með aðeins meiri grillsósu á
meðan á grilltíma stendur.
Eins og fyrr segir ákváðum við að hafa
meðlæti óhefðbundið og útbjuggum apþ-
elsínusalat sem er mjög ferskt og frísk-
andi með krydduðu kjötinu. Ferskir
sveppir voru penslaðir með soyasósu og
settir á grillið síðustu 5 mínúturnar og
þeim snúið nokkuð oft, laukur skorinn í
tvennt var grillaður með og að lokum var
hvítlauksbrauð sem búið var til úr snittu-
brauði. Eftirrétturinn fór auðvitað á grillið
líka, en það voru grillaðir bananar.
Appelsínusalat
1 pk. appelsínuhlaup
1 dós sýrður rjómi
4 appelsínur
1 pk. hnetuflögur
Hlaupið er leyst upp í 1 bolla af sjóð-
andi vatni. Þegar hlaupið er orðið volgt
þá er sýrða rjómanum blandað saman
við með handþeytara. Appelsínurnar eru
brytjaðar nokkuð smátt og þeim blandað
út í ásamt hnetuflögunum. Látið stífna
í 2 klst.
Hvítlauksbrauð
Snittubrauðið skorið í ca. 3 cm bita.
Þeir smurðir báðum megin og síðan er
stráð yfir þá blöndu af Parmesanosti og
hvítlauksdufti, eftir smekk). Smurða hlið-
in látin snúa niður á grillið og grillað í ca.
2 mín á hvorri hliö.
Við viljum vekja athygli lesenda á því
að griilið sem notað var til að steikja
þessa gómsætu rétti er eins og það
sem er aukavinningur í sumargetraun
Vikunnar. Wait heitir það og fæst í
versiuninni Bústofn við Smiðjuveg í
Kópavogi. - Sjá bls. 24.
32 VIKAN