Vikan


Vikan - 23.06.1988, Síða 38

Vikan - 23.06.1988, Síða 38
Hleyptu rómantíkinni að nýju í hjónabandið Um höfundinn: Svala Björgvins- dóttir fluttist til Kaliforníu fyrir mörgum árum. Hún og nokkrar vinkonur hennar fóru þangað til að vinna og ílentust síðan allar, giftust og eignuðust börn. Svala giftist Larry Schwartz og eiga þau þrjú uppkomin börn, sem flutt eru að heiman, að meira að minna leyti, því þau eru alltaf með annan fótinn heima ennþá. Eftir að börnin uxu úr grasi tók Svala sér ýmislegt fyrir hendur; lærði m.a. innanhússskreyt- ingu og fór út í fasteignaviðskipti. Það var þó ekki fyrr en á síðasta ári sem hún fór út á alveg nýja braut, sem virð- ist liggja vel fyrir henni. Bandaríska tímaritið New Woman efndi til sam- keppni meðal lesenda sinna þar sem þeir áttu að senda inn grein þar sem efnið var: „Hvers vegna halda ham- ingjusamlega kvæntir menn framhjá?" Svala var ein fjölmargra sem sendi inn grein og það var hennar grein sem vann til fyrstu verðlauna. Síðan hefur hún sent inn fleiri greinar og fengið viðurkenningu fyrir. Svala leyfði okkur að birta verðlaunagreinina. íslensk kona Svala Björgvinsdóttir, hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni sem banda- ríska tímaritið New Woman efndi til um greinarefnið: „Hvers vegna halda ham- ingjusamlega kvœntir menn framhjd?" SS stin er ástæðan sem liggur að baki hjá okkur flestum þegar við göng- um í hjónaband og við vonumst til að lifa hamingjusöm saman það sem eftir er. Hamingjusamt hjónaband er ekki sjálf- gefið, það verður að vinna að því og mak- inn verður að koma á undan börnunum og á undan starfi okkar. Þegar hveitibrauðsdögunum lýkur tek- ur hversdagsleikinn við; reikningarnir, aldrei nógir peningar til að greiða þá alla, ungbarnið, bleiurnar, uppþvotturinn. Þeg- ar báðir aðilar vinna úti og eiga að vinna heimilsstörfm saman þá endar það oft í riffildi um það hver eigi að gera hvað. Að læra að tala saman er mjög mikil- vægt, þannig að við getum tjáð hvort öðru það sem okkur fmnst hverju sinni. Þú ert ekki að gera honum neinn greiða með því að bæla reiðina innra með þér, gremju og öfúnd. Þetta kemur hvort eð er að lokum fram, annað hvort með því að þú segir það eða líkami þinn sýnir það. Fólk sem bælir allar tilfinningar innra með sér verður oft veikt, fær magasár, höfúðverk, gigt og jafn- vel krabbamein. Það er í þínu valdi að skapa andrúmsloftið Við lifum í umhverfi sem við höfum sjáif skapað. Ef við erum óánægð með það þá erum það við, enginn annar, sem getur breytt því. Við getum aðeins breytt sjálf- um okkur og fólk bregst við í samræmi við það hvernig við komum fram við það og framkomu okkar fáum við borgaða til baka í sömu mynt. Það er í þínu valdi að skapa andrúmsloftið í fjölskyldunni, annaðhvort 36 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.