Vikan - 10.11.1988, Qupperneq 13
ar réttarreglur, um ærumeið-
ingar, bæði í bundnu máli og
óbundnu. Refcingar voru
þyngri ef ærumeiðingar voru í
bundnu máli. Forfeður okkar
voru sómakærir menn og lítt
hrifnir af því ef vegið var að
æru þeirra, sér í lagi ef þeir
voru þjótkcnndir eða vændir
um kynvillu. íslendingasögur
geyma margvísleg dæmi um
þetta. í Ljósvetningssögu var
haft um Guðmund ríka við
konu hans Þórlaugu: „Þá værir
þú vel gefín, ef þar væri ein-
mælt um, at bóndi þinn væri
vel hugaður og ekki snjallur. “
Ekki snjallur gat þýtt ragur,
sem merkti að viðkomandi
væri kynvilltur. Það þóttu ekki
góð ummæli í þá daga, enda
var þeirra iðulega hefnt og svo
var einnig í þetta sinn. í Víga-
Glúmssögu viðhafði Bárður
Hallson við Vigfús Víga-
Glúmson, þau ummæli að
skegg hans væri kvenlegt á lit,
Ijóst eins og mjólkurmatur og
þóttu þetta svo slæm ummæli
að Halli, faðir Bárðar átaldi
hann fyrir: „at mæla svá
ferligt." Þessara móðgana var
hefnt og Bárður drepinn.
Það næsta gömul
er saga
Það sem hér hefur verið haft
um ærumeiðingar getur engan
veginn talist tæmandi lýsing á
þessari grein skaðabótaréttar.
Til þess er viðfangsefhið of
fjölþætt og margbreytilegt.
Hér hefúr því einungis verið
tæpt á nokkrum atriðum sem
lesendum Vikunnar gætu þótt
fróðleg eða vakið þá til um-
hugsunar um viðfangsefnið.
Sá stjórnmálamaður sem
vitnað var til í upphafi greinar-
innar, endaði ummæli sín með
vísu eftir Hannes Hafstein sem
segir allt sem segja þarf um
tilefni ærumeiðinga:
Taktu ekki níðróginn nærri
þér.
Það næsta gömul er saga
að lakasti gróðurinn ekki það
er,
sem ormarnir helst vilja naga.
v Morgunblaðið 15. október 1988, bls.
28.
2) Arnljótur Björnsson 1986. Skaða-
bótaréttur. Hið islenska bókmennta-
félag, Reykjavík, bls. 9.
3) Lagasatn 1983. Dómsmálaráðuneyt-
ið, Reykjavík. Dálkur 2471 og 2472.
4) Gunnar Thoroddsen 1967. Fjölmæli.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs, Reykja-
vík, bls. 128.
5) Sama rit, bls. 129.
6) Sama rit, bls. 135 og 136.
SITT LÍTIÐ AF\\mihI
Gagnslausar
upplýsingar
V'issuð þið að fíllinn er eina
dýrið á jörðinni sem hefúr
fjögur hné? Og vissuð þið að
eitt af hverjum 200 börnum
fæðast með tönn í neðri góm.
Maðurinn er eina lífveran á
jörðinni sem sefur á bakinu —
en líklega er það ekki mjög
óhollt miðað við það að menn
lifa lengur en flestar skepnur.
Svíar telja öllum trú um að
þeir séu lífsseigasta þjóð
heimsins. Þar í landi er meðal-
aldur karla um 72 ár en
kvenna um 76 ár. Það er svip-
aður meðalaldur og meðal
frumbyggja Ástralíu.
Árið 1972 fluttu Brasi-
líumenn inn 20 þúsund sekki
af kafft frá EI Salvador.
Á miðri nítjánduj öld dró
verulega úr neftóbaksnotkun í
Frakklandi þegar hvítir vasa-
klútar komust í tísku.
Breska Geitafélagið var
stofúað árið 1870.
Allir íbúar jarðarinnar gætu
komist fýrir á Reykjanes-
skaganum — ef þeir stæðu þétt
saman og ef sumir héldu börn-
um sínum á háhesti.
Nú hefur það loksins verið
staðfest með tölfræðilegum út-
reikningum að um sjö millj-
arðar póstkorta hafi verið send
síðan 1905.
Um 70% jarðarbúa eru án
dagblaða, útvarps, sjónvarps
og síma.
Ef allir fílar í Afríku væru
samankomnir kringum Reykja-
víkurtjörn, þá gætu þeir tæmt
hana á tveim klukkutímum eða
svo.
Jæja. Það eiga næstum tíu
milljón manns á jörðinni sama
afmælisdag og þú.
Svisslendingar borða meiri
ost á mann en nokkur önnur
þjóð.
Það eru meira en sjö milljón
ljósastaurar á Bretlandseyj-
um...
Og það var enginn annar en
herra C. C. Maggee (hver sem
hann var) sem fann upp stöðu-
mælinn árið 1935, ef ykkur
langar til að vita það.
Fílar og höfrungar þurfa
ekki nema tveggja stunda
svefn á sólarhring.
Vitið þið annars hvað fíllinn
þurfti að borga sálfræðingnum
fýrir að heimsækja hann? Þrjá-
tíu og tvö þúsund krónur. Tvö
þúsund fyrir viðtalið og þrjátíu
þúsund kall fýrir sófann sem
hann lagðist upp í.
Pessa auglýsingu rák-
k umst við á í amerísku
W blaði og gátum ekki
betur séð en hér væru á
ferð íslenskar peysur úr lituð-
um lopa — eða hvað flnnst
ykkur?
Ekki er þó af auglýsingunni
að ráða að svo sé, heldur eru
þetta peysur sem bera vöru-
merkið I.V.Y. og nánari upplýs-
ingar um þær er að fá með því
að skrifa og senda í pósthólf í
Los Angeles. Okkur hér á Vik-
unni finnst þetta skemmtileg
útfærsla á „lopapeysunum"
hefðbundnu og erum viss um
að ef svona peysur væru fáan-
legar í tískubúðunum hér eins
og í Ameríku, þá ættu þær að
geta selst jafúvel á báðum
stöðum.
íslenskar peysur?
Nemendur háskólans í Lexington Kentucky mættu á póló-
keppnina og smökkuðu á „Eldurís" vodka.
Eldurís
pólókeppni
í Ameríku
íslenskt vodka, Eldurís, er
að gera það gott í Ameríku,
segja þeir, og nýlega var
haldin mikil pólókeppni í
Kentucky - Bluegrass Na-
tional Pro-Am Toumament
— sem Eldurís kostaði.
Keppendur voru frá Ástral-
íu, Nýja Sjálandi og Bandaríkj-
unum. Eldurís sá um kostnað-
inn fyrir bandarísku keppend-
urna, sem voru íklæddir peys-
um með vodkamerkinu sem
auk þess skreytti hnakkhlífma
— og það var Eldurís-Iiðið sem
vann keppnina.
Söluaðilar Eldurís vodkans
buðu um 400 gestum í hana-
stélsveislu, þar sem boðið var
upp á ískaldan vodkasnafs og
íslenska sjávarrétti með. Gest-
irnir voru ýmist uppábúnir
eða í gallabuxum og sumir
lögðu teppi á grasið og settust
þar í góða veðrinu með ís-
lenska drykkinn sinn — og eftir
því sem fréttir herma líkaði
hann sérlega vel, þannig að
segja má að bæði Eldurís póló-
liðið og drykkurinn hafi verið
sigurvegarar þennan dag. □
Fyrírliði „Eldurís“ pólóliðs-
ins, J.D. Cooper, leiddi lið sitt
til sigurs.
25.tbl. 1988 VIKAN 13