Vikan


Vikan - 10.11.1988, Síða 47

Vikan - 10.11.1988, Síða 47
Helga Egilsdóttir lauk mastersgráðu við liáskólaim „San Francisco Art Institute" síðastliðið vor. Hér segir hún lesendum frá námstilhöguninni. I næstu opnu er svo lýst námi í innanhússarkitektúr og listförðun. í síðasta tölublaði var sagt frá stúlkum, sem liafa stundað nám í tónlist, leiklist, kvik- myndagerð og bókasafnsfræðum og í næsta tölublaði segjum við frá tveim námsmeyjum til viðbót- ar, sem stundað hafa nám erlendis. Ef þú hefur hug á að fara utan til náms er því fúll ástæða fyrir þig að fylgjast með Vikunni. Mörg gallerí eru jafnvel hætt að sýna verk listamanna sem ekki hafa mastergráðu TEXTI OG MYNDIR: ÞÓRDÍS ELFA ÁGÚSTSDÓTTIR Helga Egilsdóttir, inyndlistarnáin, San Francisco, Bandarikjunum. Fædd 23. ágúst 1952. Nám I myndlist við Kunstakademíuna í Árhus, Danmörku 1969-1970. Akademi for Fri og merkantil kunst, Kaupmannahöfn 1971-1972. Myndlista- og handíðaskóli íslands, Reykjavík 1978. Helga lauk mastersgráðu við listaháskól- ann „San Francisco Art Institute" s.l. vor en hún hafði þá stundað nám í 5 ár við skólann. Skólinn í San Fransisco er hundr- að prósent listaskóli sem kennir engin nytjalistarfög, en hins vegar eru fögin sem kennd eru við skólann allmörg. Þau eru: málun, skúlptúr, grafík, kvikmyndagerð, ljósmyndun, myndbandagerð, tölvugrafík og uppákomulist eða „performance art“ og eru öll þessi fög kennd út frá listrænu sjónarmiði. Inntökuskilyrði í skólann er stúdentspróf, nám úr listaskóla eða að hafa náð 25 ára aldri og hafa einhverja reynslu í viðkomandi grein. Einnig þurfa umsækjendur að mæta til viðtals og hafa þá minnst tíu verk með sér. Skólinn er einkastofhun og skólagjöld mjög há eða 7.600 dollarar á ári. Námið er þannig byggt upp að í BA gráðu námi eru nemendur skyldugir til að læra bókleg fög en þau eru: listasaga, enska, sjónræn hugmyndaffæði, heimspeki, saga, listagagnrýni og síðan kennir Angela Davis þriðjaheimssögu. Verklegt nám er aðalatriði námsins sem er að mestu leyti sjálfsnám, það er að segja nemendur starfa í skólanum undir umsjón kennara sem eru alltaf til staðar til að leiðbeina og gagnrýna. Þannig fá nemendur alla þá kennslu er þeir óska eftir, ef þeir bera sig eftir björginni. Kennarar skólans eru að sögn Helgu mjög góðir og koma víða að, t.d. ffá Japan, Evrópu og Banda- ríkjunum. Tæknileg námskeið eru ekki haldin sérstaklega, heldur lærir fólk slík atriði í gegnum vinnu og leiðsögn. Aðhald Frh. á bls. 51 25. tbl. 1988 VIKAN 47

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.