Vikan - 10.11.1988, Side 48
Hanna Brekkan,
innanhússarkitektúr,
Mílanó, ítalia.
Fædd 25. nóvember 1964.
Stúdent firá Menntaskólanum
við Sund.
Hanna er nemi á fyrsta ári í innanhúss-
arkitektúr við „ISAD“ skólann (Instituto
Superiore di Arcitectura e disegno) í
Mílanó. Nám þetta tekur þrjú ár og er
skólaárið 9 mánuðir án annaskiptingar.
ISAD var stofnaður íyrir 7 árum af kennur-
um sem störfúðu áður við skólann „Insti-
tuto di Europa". Þessi skóli er mjög fjöl-
mennur og stór stofnun þar sem kennd
eru fjölmörg fög, svo sem fjölmiðlafræði,
iðnhönnun, ljósmyndun, auglýsingagerð
og innanhússarkitektúr. Kennarahóp þess-
um var farin að ofbjóða stærð þessa skóla
og ákvað að stofna sérstakan innanhúss-
arkitektúrskóla. Inntökuskilyrði er stúd-
entspróf eða sambærileg menntun t.d.
húsasmíði sem og góð ítölskukunnátta.
Ekkert inntökupróf er í skólann en ætlast
er til að fólk hafl einhverja reynslu í fag-
inu. Hanna hafði lært tækniteiknun á ís-
landi og tekið íjögurra mánaða námskeið í
innanhússarkitektúr í London.
Það eru teknir 25-30 nemendur á ári
inn í skólann en sá fjöldi fellur yflrleitt nið-
ur í 20 nemendur á þriðja ári vegna mikill-
ar síunar á milli ára. Fög sem kennd eru
við skólann eru byggingarsaga, og þá sér-
staklega 19. og 20. aldarinnar, arkitektar
samtímans eru teknir fyrir með aðstoð lit-
skyggna og farið er í skoðunarferðir. Að
öðru leyti læra nemendur í ISAD skipu-
lags- og markaðsffæði, inngang að ítalskri
lögfræði, litafræði, efnisfræði, fjarvíddar-
og tækniteiknun og inngang að Ijósmynd-
un. Þungamiðja námsins er hönnun. Á
fyrsta ári eru sett fyrir mörg smærri
hönnunarverkefhi þar sem allt snýst um
listrænu hliðina og reynt er að ýta undir
sköpunargáfu nemenda. Þannig eru nem-
endur nokkuð frjálsir í sambandi við
tæknilega vinnu á fyrsta ári og velja sjálfir
hversu langt þeir fara í útfærslu verkeín-
anna. Á öðru ári er hins vegar farið til hlít-
ar út í tæknileg atriði, svo sem tækniteikn-
un, efnis- og litaval. Farið er út í útlits-
hönnun flísa og gólfdúka og annarra slíkra
efhisatriða. Nemendur verða að kynna sér
markmiðin mjög vel í því sem viðkemur
húsgögnum og efhum sem notuð eru
innanhúss og skila inn skýrslu með ljós-
myndum og greinargóðu efhisyfirliti yfir
allt það sem þeir myndu velja í hönnunar-
verkefnum í hvert skipti. Ætlast er til að
nemendur fari í búðir og velji sér ákveðin
efhi og hluti sem þeir skrái síðan á ná-
kvæman hátt.
Lokaverkefni 3ja árs nema er samkeppni
í innanhússhönnun fýrir eitthvert ákveðið
fýrirtæki í Mílanó. Sá eða þau sem vinna
samkeppnina selja hugmyndina sjálfkrafa
til fyrirtækisins. í tilefhi útskriftar eru hald-
in lokapróf og sýning á verkum þriðja árs
nema.
f lokahófið koma yfirleitt blaðamenn og
Ijósmyndarar allra helstu tímarita sem
fjalla um innanhússkreytingu og hönnun í
Mílanó.
Hanna segir aðstöðu í skólanum sérlega
góða, það er nóg pláss því að húsnæði
skólans er stór verksmiðjubygging með
færanlegum skilrúmum á milli vinnustofa.
Hins vegar er erfitt fyrir námsmenn að búa
í stórborg eins og Mílanó vegna gííurlegr-
ar dýrtíðar. Húsaleiga er sérstaklega há og
ítalir reyna mjög oft að leigja útlendingum
fýrir hærra verð en innfæddum. Efhis-
kostnaður í skólanum er mikill en hins
vegar eru engin skólagjöld. Það er erfitt að
fá dvalarleyfi á Ítalíu því allt opinbert kerfi
er mjög þungt í vöfum. Erfitt er fyrir út-
lendinga að komast inn í bankakerfið og
ekki má gleyma pósti og síma á Ítalíu því
ekki er hægt að hringja beint til íslands.
í hvert skipti sem Hanna þurfti að
hringja til íslands í fyrra ffá Flórens, þar
sem hún dvaldi við ítölskunám, varð hún
að fara á pósthúsið og bíða til að byrja
með í langri biðröð. Þegar svo röðin kom
að henni var oft ekki hægt að ná sambandi
heim og þannig fóru nokkrir klukkutímar
oft í ekki neitt. Útlendir nemar komast
ekki inn í sjúkrasamlag á ítalíu og þarf fólk
því að tryggja sig heima á íslandi.
Hanna segir að þrátt fyrir ýmsa erfið-
leika kunni hún mjög vel við sig á Ítalíu og
við ítali sem henni finnst hlýlegir, líflegir
og opnir. Andrúmsloft er mun afslappaðra
á Ítalíu en heima. Mílanó er lifandi borg
þar sem menningarlíf er í miklum blóma
og það eina sem íslendingur þarf að hafa í
huga þegar ætlunin er að setjast að á Ítalíu,
er það að hann verður að skipta niður í
hraða, fara úr fjórða gír og niður í annan
eða jafnvel þann fyrsta.
48 VIKAN 25. TBL. 1988