Vikan - 10.11.1988, Side 49
LJósmyndamappan
verður að inni-
halda 25 myndir
af jafnmörgum
förðunargerðum
Elín Ellingsen,
llstförðun, París, Frakklandi.
Fædd 20. febrúar 1968.
Útskrifuð sem snyrtisérfræðingur.
Elín lauk námi í listförðun írá skólanum
„Ecole Superieur de Technique de Maq-
uillage, Christian de Chauvau" s.l. sumar.
Nám í skólanum tekur 9 mánuði og er nær
eingöngu verklegt og því er frönskukunn-
áttu ekki krafist. Skólinn er rekinn af einka-
aðilum en námsgjöld eru ekki mjög há þar
sem nemendur sjá um að greiða allan efn-
iskostnað sjálflr sem er gífurlega mikill.
Kennd er öll möguleg listförðun, það er að
segja förðun fyrir klassískt leikhús, austur-
lenskt leikhús, kvikmyndir, ljósmyndun,
myndbandagerð og ballett. Nemendum
eru kennd margs konar mismunandi
tæknileg förðunaratriði fyrir kvikmyndir,
svo sem hvernig fólk er gert gamalt,
hvernig eyru eru stækkuð og hvernig má
skapa skrímsli eða beinagrind. f kvik-
mynda- og leikhúsförðun er farið í gegn-
um öll tímabii ffá um það bil Í920 til dags-
ins í dag og læra nemendur þá t.d. að skapa
ýmis þekkt andlit kvikmyndasögunnar svo
sem Charlie Chaplin, Brigitte Bardot og
Twiggy. Þegar kennd er austurlensk leik-
húsförðun er nemendum kennd leikhús-
saga og farið er nákvæmlega í táknun lita
og merkinga er tíðkast í þessu framandi
leikhúsi. Nemendur læra að nota vatnsliti
á til dæmis líkama fólks og er ýtt undir
sköpunargáfu þeirra þar sem þeim er sett
það verkefni að skapa listaverk (body
painting) með líkamann sem grunnefhi.
Námið er þannig uppbyggt að sýnikennsla
fer ffam um það bil þrisvar í viku en þess
á milii æfa nemendur sig í viðkomandi
förðunaratriðum. Kennarar skólans eru 5
talsins og ailir mjög ferir. Þeir eru alltaf til
staðar alla daga vikunnar til að fýlgjast
með æflngum nemenda, til að leiðbeina
þeim og gagnrýna. í marsmánuði byrja
nemendur yflrleitt að byggja upp mynd-
möppu sem er helmingur af lokaprófi.
Ljósmyndari er starfandi við skólann og
hann tekur myndir fyrir nemendur ef þeir
óska þess en þeir útvega sjálflr filmur og
sjá um ffamköllun og prentun og lokafrá-
gang allra mynda. Ljósmyndamappan
verður að innihalda minnst 25 ljósmyndir
af jafnmörgum förðunargerðum. Kennslu
lýkur í maílok en próf fara fram í júní. Þá
vinnur hver nemandi að þremur gerðum
förðunar en þær eru tæknibrelluförðun
(special effects), „beauty förðun" og
„body painting" eða líkamsmálun. Nem-
endur fá ákveðinn tíma til að leysa þessi
förðunarverkefni en síðan ganga módelin
um svið og þannig er haldin förðunarsýn-
ing fyrir dómnefhd sem skipuð er utanað-
komandi aðilum frá leikhúsum og tímarit-
um Parísarborgar. Ljósmyndamappan sem
gildir helming af lokaprófseinkunn er hins
vegar dæmd af kennurum skólans.
Elín telur skólann vera góðan en þó séu
allt of margir teknir inn í upphafi vetrar
eða á milli 250 og 300 nemendur. í gegn-
um veturinn fellur mikið af nemendum úr
námi vegna álags og mikils kostnaðar og
einnig eru margir felldir á lokapróflnu
þannig að endanlega útskrifast ekki nema
rúmlega 100 nemendur. Elín telur sig hafa
lært það sem hún ætlaði sér í skólanum en
hins vegar hafl henni fúndist mjög baga-
legt að tala ekki og skilja ekki nema mjög
litla frönsku þar sem öll tilsögn og sýni-
kennsla fer fram á því tungumáli. Skólinn
aðstoðar ekki nemendur við að fá vinnu að
námi loknu, en hins vegar útvegar hann
oft vinnu á meðan á námi stendur, til að
gefa þeim kost á starfskynningu, en sú
vinna er ætíð ólaunuð.
Elín segist ekki vera hrifin af því að búa
sem námsmaður í París. Námslánin eru lág
en það er mjög dýrt að búa í höfuðborg
Frakklands. Efniskostnaður er gífurlegur í
listförðunarnámi en Lánasjóður íslenskra
námsmanna lánar aðeins upp í brot af
þeim kostnaði. Elín minntist einnig á hið
ótrúlega svifaseina og lélega bankakerfi.
Engir vextir eru t.d. greiddir á bankainni-
stæður og öll þjónusta í bönkum er léleg,
t.d. er ekki hægt að fá afgreiðslu í útbúi
banka ef maður opnar reikning í aðal-
banka. Starfshættir lögreglu eru oft á tíð-
um hinir undarlegust, bæði hvað varðar
útlendingaeftirlit og almenna löggæslu.
Elín lenti til dæmis einu sinni í því að vera
tekin föst og sett í fangelsi heilan dag
vegna þess eins að hafa gleymt að skrá
númer á farmiðanum sínum í áskriftarkort
það er hún notaði í strætisvagna og neð-
anjarðarlestir.
Elín segist kjósa að starfa utan Frakk-
lands og þá helst á íslandi en fara frekar í
heimsóknir til Parísar sem ferðamaður því
það sé alls ekki þess virði að borða popp
og kartöflur allan ársins hring og berjast
eins og óður í svifaseinu skrifstofúbákni til
þess eins að ná þar frægð og frama.
25. tbl. 1988 VIKAN 49
L