Vikan - 10.11.1988, Page 65
<s
Unglingarnir spyrja...
VIKAN, Pósturinn, Háaleitisbraut I.Postholf 5344,105 Reykjavík
Pabbi hennar
lemur hana þá,
eins og svo
oft áður!
Kæri póstur!
Við erum hérna tvær vin-
konur í miklum vanda staddar.
Þannig er mál með vexti að
önnur okkar, X, er 16 ára og
hún er ófrísk eftir strák sem
hún þekkir ekkert, veit bara
hvað hann heitir. Hún lenti í
partýi með honum og hún var
fúll. Þau fóru svo inn í her-
bergi og höfðu samfarir. Síðan
hafa þau ekki sést. Hún þorir
ekki að segja pabba sínum
þetta (mamma hennar er
dáin) vegna þess að hann
myndi fá kast og berja hana
eins og svo oft áður.
Hvað á hún að gera? Þú
verður að hjálpa henni.
Svo er það ég sem við skul-
um kalla Z. Ég er búin að vera
með mörgum strákum, en hef
þó aðeins einu sinni gert það.
Mér fannst það svo sárt og það
blæddi svo mikið að ég hef
ekki þorað að hafa samfarir
aftur. Heldurðu að það verði
jafn sárt? Einu sinni var ég með
strák sem vildi að ég kæmi
með sér inn í herbergi, en ég
sagði nei. Og hann hætti þá
með mér bara út af því.
Gefðu okkur báðum góð
ráð.
XogZ
Nú er illt í efni þykir póstin-
um. Vinkona þín verður strax
að tala við einhvem um
vandamál sitt. Best vœri fyrir
hana að tala við einhvem œtt-
ingja, á hún enga góða móð-
ursystur? Anrtars getur hún
hringt í Rauða kross húsið í
síma 622260, þar er alltaf ein-
hver sem er tilbúinn að veita
unglingum ráð og getur
sagt X hvert best erfyrir hana
að snúa sér nœst — fái hún
enga aðstoð hjá sínum nán-
ustu.
Varðandi þig, kœra Z, þá er
hætt við að sársaukinn verði
til staðar ncest. Póstinum
finnst gott hjá þér að neita
strákunum, enda hafa þeir
sem aðeins vilja fá það hjá þér
engan áhuga á þér sem þer-
sónu — bara sem einhverri sem
hœgt vceri að nota. Pú ert lík-
lega það ung að þú hefur tím-
ann fyrir þér og þegar þú ert
orðin eldri og þroskaðri
geturðu betur dœmt um það
hvort strákur hafi virkilega
áhuga á þér. Hugsaðu út íþað
hvað vœri leiðinlegt fyrir þig,
þegar að því kœmi að þú hittir
þann sem þú vildir vera með
alltaf og hann frétti að þú
hefðir sofið hjá öðrum hvetjum
strák í bcenum - haltu heldur
áfram að segja nei.
Söngvarinn í
hljómsveitinni
Herramenn
Kaeri póstur!
Ég vona svo innilega að þú
getir hjálpað mér. Ég er alveg
rosalega hrifin af strák í hljóm-
sveitinni Herramönnum
(söngvaranum), en ég á heima
svo langt í burtu frá honum að
ég get ekki séð hann. Ég fór á
ball með hljómsveitinni ný-
lega og þá fannst mér hann
alltaf vera að horfa á mig og
syngja til mín.
Þegar hléið kom fór hann út
í sal að tala við eitthvert fólk og
mér fannst hann alltaf vera að
benda á mig. Verst er að hann
á kærustu í sínum heimabæ. Ég
vona að einhverjir vinir hans
sjái þetta bréf og segi honum
frá því, en hann veit ekki hvar
ég á heima svo við getum ekki
hist.
Ekki segja mér að gleyma
honum, hann er svo æðislegur.
Hvernig á ég að ná í hann?
Ein að deyja úr ástarsorg
Eina ráðið sem þósturinn
getur gefið þér er að þú reynir
að stunda böllin þar sem
hljómsveitin spilar — þar sem
þú og „Herramaðurinn" getið
þá sést. Hafi hann áihuga á þér,
kemurþað strax í Ijós - ef ekki
þá VERÐURÐU að gleyma
honum.
P.s. Passaðu svo að láta ekki
nota þig!
Vil ekki heyra að
ég sé á
einhverju skeiði
Kæri póstur!
Ég skrifa þér í von um að fá
einhverja hjálp. Ég bý úti á
landi og er í vanda. Heimilis-
fólkið tekur aldrei neitt mark á
mér. Alltaf þegar ég kem með
athugasemd eða segi eitthvað
þá er gert óspart grín að mér, í
viðurvist allra. Nú er ég því
hætt að taka þátt í samræðun-
um og segi ekkert. Þá tala þau
um hvað ég tali lítið.
Þegar ég er með öðrum
krökkum þá stama ég bara og
fer hjá mér. Mér flnnst ég utan-
veltu þegar taka á einhverjar
ákvarðanir, því þá er ekki
spurt um mitt álit. Ég vil helst
ekki fá þannig svar að ég sé á
ákveðnu skeiði (12-15 ára, en
ég er 14 ) því ég hef fengið nóg
af svoleiðis kjaftæði ffá hinum
og þessum og að það gangi
yfir. Sjálfsagt er ég á einhverju
ákveðnu skeiði, en er ég
eitthvað ómerkilegri persóna
fyrir því? Börn og unglingar
eru og verða alltaf minni per-
sónur en þeir eldri, að minnsta
kost að þeirra mati.
Jæja, kæri póstur, ég vonast
eftir svari ffá þér. Með kærri
kveðju og þökk,
Frá mér.
Pósturinn þakkar ÞÉR kœr-
lega fyrir bréfið. Það er bæði
vel skrifað og tiltölulega villu-
laust, sem er afar sjaldgæft
með bréf tilpóstsins. Þig skortir
eflaust sjálfstraust og ert við-
kvæm og þess vegna tekur þú
það nœrri þér þegar fólk tekur
ekki tillit til þín og skoðana
þinna. Pósturinn getur ekki
betur séð en að þú sért mjög
skynsöm manneskja, þó ungsé
— og þú getur verið alveg viss
um að mörgu fullorðnu fólki
finnst mikið til ungs fólks
koma, sýniþað með jramkomu
sinni eða öðru aðþað eigiþað
skilið.
Hvemig vœri að þú tœkir
þig til í smá tíma og fylgdist
sérlega vel með því sem er að
gerast umhveifis þig — fréttum,
því sem hinir eru að gera, vin-
sældalistum útvarpsstöðv-
anna og öðm sem flestir hafa
áhuga á. Þannig að þegar þú
tekur þátt í umræðunniþá vit-
irðu nákvœmlega um hvað
verið er að ræða - jafnvel bet-
ur en hinir - og þá getur eng-
inn gert grín að þér, þess í stað
gœtirðu öðlast virðingu hinna
(en passaðu þig að fara ekki
að sýnast og ofmetnast yfir því
að vita betur af því þú hefur
fylgst vel með - þá verðurðu
leiðinleg). Ef þú stamar mjög
mikið þá þarftu að fara í tal-
tíma, en ef stamið er vegna
þess að þú ert óstyrk þá gœti
það lagast við aukið sjálfs-
traust. Flestir krakkar tala allt-
of hratt þannig að erfitt er að
skilja þau, athugaðu hvort
þetta á við þig. Þú talarþá eða
lest eins ogþér er eðli/egt inn á
segulband og hlustar á það á
eftir. Þá heyrirðu hvori þú
þarft að laga eitthvað. Æfðu
þig þá þar til það lagast. Póst-
urinn vonarað þú getirnotað
þessi ráð og gangi þér vel.
25. tbl. 1988 VIKAN 63