Vikan - 10.11.1988, Page 66
Ríkidœmi Eiísabetar II Bretadrottningar
Auðugasta amma veraldar
Tfu ára gömul var hún þriðja í ríkiserfðum
og framundan virfist iðjulítil œvi við hirð
föðurbróður hennar Játvarðar VIII
- en þá tók hann skyndilega þá örlagaríku
ákvörðun að fórna konungdómnum
á altari ástarinnar og kvœnast konunni
sem hann elskaði.
Við konungdómnum tók Georg VI
faðir Elísabetar og nú, rúmlega hálfri öld
síðar, er Elísabet II ekki aðeins vinsœlasta
drottningin í sögu Bretlands, heldur líka
amma og sú auðugasta í gjörvallri
veröldinni.
TEXTI: ÁRNI SIGURÐSSON
Rikasta kona heims er
drottning — hennar
hátign Elísabet II
. Bretadrottning, sex-
tugasti og þriðji þjóðhöfðingi
Bretaveldis. Hví skyldi nokk-
urn undra þó svo sé? Er það nú
ekki einu sinni svo, að í ævin-
týrunum hrökkva demantar af
prinsessuhvörmum? Auðvitað
gerist það þó bara í ævintýr-
um. Svarið er að finna í nagl-
föstum raunveruleikanum.
Auðæfi Elísarbetar II Breta-
drottningar er afleiðing for-
sjállar fjárfestingar á hluta-
bréfamörkuðum og í íasteign-
um. Þar hefiir svo sannarlega
tekist vel til, því auðæfi drottn-
ingarinnar nema að því talið er
um 8,7 milljörðum bandaríkja-
dala, sem er, eftir að hafa verið
umreiknað í okkar gengissigna
gjaldmiðil rétt rúmir 420
milljarðar króna.
Drottningin hefur lifað ham-
ingju- og viðburðaríka ævi.
Hún er sífellt á faraldsfæti og
hefur farið í yfir 100 ferðalög
og opinberar heimsóknir til
landa um víða veröld. Hún
nýtur drottningarhlutverksins
út í ystu æsar og hún uppsker
ávexti áhuga síns margfalt, því
hún er vinsælasta drottning
Bretlands fyrr og síðar, að
Viktoríu sjálfri meðtalinni.
Það er ekki létt verk að
henda reiður á auðæfum
drottningarinnar. Draga verð-
ur skörp skil á milli þess sem
tilheyrir krúnunni og hennar
persónulegu einkaeignar.
Krúnugripirnir og bústaðir
drottningar, Buckingham höll,
Holyrood kastali og Windsor
kastali tilheyra drottningunni
á svipaðan hátt og Bessastaðir
tilheyra Vigdísi Finnbogadótt-
ur forseta, þ.e.a.s. drottningin
hefur á þeim ábúðar- og af-
notarétt, en á þá ekki í eigin-
legum skilningi. Hún nýtur
Iíka stórkostlegustu forrétt-
inda sem nokkurri dauðlegri
veru geta hlotnast utan
ódauðleikans — hún er undan-
þegin skatti. Hún þarf því
hvorki að telja ffam eignir sín-
ar né tekjur.
Skattfrjáls auðœfi
Skartgripasafn Elísabetar,
þ.e. þeir gripir sem eru í einka-
eigu hennar, vekur undrun og
aðdáun. Það samanstendur af
14 kórónum, 11 smákórónum,
ótölulegum fjölda demanta,
rúbínum og smarögðum. Hún
á eitt stærsta safn Fabergé
eggja i heiminum, þar af tvö
ffægustu eggin, auk þess sem
listaverkasafn krúnunnar er
viðamikið, þ.á m. 900 teikning-
ar eftir Leonardo da Vinci auk
málverka eftir þekkta meistara
á borð við Michelangelo, Raf-
ael, Rúbens og Rembrandt.
Þessi auðæfi sem hún hefur að
mestu hlotið að erfðum
(skattfrjálst) ffá forfeðrum sín-
um varpa ffekar ljósi á dýran
smekk þeirra, sérstaklega Vikt-
oríu og Alberts, heldur en
drottningarinnar sjálffar. Elísa-
betu kæmi aldrei til hugar að
selja þau, eða einhvern hluta
þeirra, þar sem hún álítur að
þau tilheyri þjóðinni ekki síð-
ur en sér persónulega. Það má
því segja að hún sé í hlutverki
nokkurs konar minjavarðar.
Formlega séð á hún auðæfin
og gæti ráðstafað þeim eftir
því sem henni þóknaðist en í
raun réttri er aðalhlutverk
hennar að varðveita þau þar til
þau komast í hendur komandi
kynslóða, sem hluti drottning-
ararfleifðarinnar. Að baki virðu-
legri framhlið drottningar-
dómsikns, sem birtist í minja-
varðarhlutverki Eh'sabetar, slær
kappsamt hjarta kaupsýslukon-
unnar sem stundar umfangs-
mikil verðbréfa- og fasteigna-
viðskipti í gegnum fésýslufýr-
irtæki sem sjá um viðskiptin að
fyrirmælum drottningarinnar.
Kappsöm
kaupsýslukona
Drottningin er áköf hesta-
kona og á tugi úrvalsgæðinga
sem metnir eru á tugi ef ekki
hundruð milljóna króna. Fyr-
ir rúmum 5 árum keypti þjóð-
höfðingi Sáttarstrandarríkj-
anna (Dubai) verðlaunagæð-
ing af drottningu fyrir hálft
hundrað milljóna króna. Lan-
caster hertogadæmið er í
einkaeigu drottningar. Það gaf
henni ríflega hundrað milljón-
ir króna í skattlausar leigutekj-
ur á síðasta ári. Elísabet er einn
stærsti lóðareigandinn á Man-
hattan eyju, þar sem er mið-
borg New York, en þar er lóð-
arverð hvað hæst í gjörvallri
veröldinni. Að auki á hún mikl-
ar jarðeignir í Frakklandi og
Vestur-Þýskalandi. Á heima-
slóðum hennar í Bretlandi á
hún Sandringhamsetrið, sem
er 274 herbergja kastali í Nor-
folk og 20 þúsund ekrur um-
hverfis hann, og Balmoralkast-
ala sem stendur á 50 ekrum
lands í Hálöndum Skotlands.
Samtals eru auðæfi drottningar,
sem bundin eru í skartgripum,
listaverkum, verðmætu frí-
merkjasafhi og bókasafni,
gæðingum og fasteignum, met-
in á ríflega 4 milljarða banda-
ríkjadala, tæpa 200 milljarða
króna, sem er um helmingur
auðæfa drottningar. Hinn
helmingurinn er bundinn í
hlutabréfum og sveipaður
mikilli dulúð. Skattlausar tekj-
ur hennar af þeim nema tug-
um milljóna bandaríkjadala ár-
lega, sem hleypur á milljörð-
um í íslenskum krónum talið.
Elísabet II Bretadrottning veit
því greinilega vel hvernig hún
ávaxtar best sitt pund — í orðs-
ins fýllstu merkingu. □
64 VIKAN 25. TBL.1988