Vikan


Vikan - 10.11.1988, Side 67

Vikan - 10.11.1988, Side 67
LYSILYSI l iKlifMaöa kjurntfita moqjunvcrðar B Undirstaöa kjamgpös motguntcrflar Kakjhamsart ÞORSKALVSI Kakihamsað ÞORSKALVSI RITSTJORAR VIKUNNAR „Var óttalegt basl og barátta við auraleysi“ Frh. af bls. 29 1988. Það voru þrír mætir menn, þeir Gísli Halldórsson verkfræðingur, Jóhannes Nordal bankastjóri og Jóhann Hannesson prófessor, sem voru fengnir til að spá fyrir um þróun ýmissa mála á þessu tímabili. Þarna var líka viðtal við meistara Kjarval og litmyndasyrpa af honum að störfum úti í Hafharfjarðarhrauni. Lengi vel taldi Kjarval öll tormerki á því að fara með okk- ur út í hraun en lét loks tilleiðast. Þegar við Kristján Magnússon ljósmyndari sótt- um hann voru komnar á hann einhverjar vöflur og setti hann fyrir sig hvað ljós- myndarinn væri ljótur, það væri ekki fysi- legt að fara út í hraun með svo ljótum manni. Af stað fórum við bó oe á miðri leið var Kjarval hættur við, en samt var nú haldið áfram. Meðan Kristján, sem líklega þykir frekar ffíður en ljótur, var að sniglast kringum listamanninn til að mynda hann, hevrðist sífellt þetta sama taut um ljóta ljósmyndarann. En myndirnar eru nokkuð merkilegar fyrir það að ekki eru margar lit- myndir til af Kjarval við trönurnar. Þáttaskil hjá Vikunni urðu er faðir Hilmars, Axel Kristjánsson, tók yfir rekstur blaðsins árið 1966, að mig minnir. Eftir það var ekki eins skemmtilegt að vinna við blaðið þótt fjárhagsstaðan hafi ugglaust batnað. Þessi breyting átti sinn þátt í að ég hætti ári síðar, og líka það að ég var búinn að missa áhugann á því efni sem varð að mestum hlúta í blaðinu. En það var af- þreyingarefni og efhi tengt heimilishaldi, tísku og slíku. Þegar ég lít til baka þá var þessi tími, þrátt fyrir skemmtilegheitin, óttalegt basl og barátta við auraleysi. Ég man hvað við fúndum til þess að hafa ekki sams konar tækni og útlendu vikublöðin sem við vor- um að skoða og höfðum sem fyrirmynd. Þau voru þá öll oflsetprentuð. En fýrir okkur hljómaði offset aðeins sem ljúf ffamtíðarmúsík." heilsunnar vegna ARGUS/SÍA

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.