Vikan - 09.03.1989, Blaðsíða 31
FERMIMGAR
Man bettur
eftir fötunum
DröÉa Farestveit er hús-
stjórnarkennari og hefur hald-
ið ótal matreiðslunámskeið og
kennt mörgum landanum að
elda í örbylgjuofni. í hennar
fermingarveislu var áreiðan-
lega ekki eldað í örbylgjuofhi,
enda segist Dröfn, eins og
Hilmar, muna heldur lítið ef tir
veislunni.
„Ég man miklu betur eftir
fermingarfötunum mínum. Ég
var í óskaplega fínum gulum
atlasilkikjól með siflbni yfir.
Hann var með prinsessusniði
og ég fékk líka hárauða kápu
með prinsessusniði og mér
fannst ég aldrei á ævinni hafa
verið jafh fín. Ég man ekkert
hvort ég smakkaði nokkuð á
matnum en þetta var mjög fínt
kalt borð, sem haldið var í
Oddfellowhúsinu.
Maturinn var útbúinn í
Húsmæðraskólanum en ég
man að mamma lenti í vand-
ræðum með þá sem ætlaði að
útbúa hann. Það er reyndar
mjög vel þekkt matreiðslu-
kona, Guðrún Hrönn Hilmars-
dóttir, en hún varð veðurteppt
einhvers staðar fyrir norðan.
Hennar í stað útbjó Aðalbjörg
Hólmsteinsdóttir matinn, sem
var víst mjög fínn. Annað sem
gerði veisluhaldið erfitt á þess-
um tíma var að verkfall var
þannig að ekki var hægt að fá
öl eða gos. Það tókst að útvega
einhvers konar gosvél frá
Hótel Borg og eitthvað var þar
verið að bisa við gospillur. Ég
man að á eftir var boðið upp á
kransaköku og konfekt og mér
eru minnisstæðar fleytifúllar
konfektskálarnar...
„Mér fannst ég aldrei hafa verið finni á ævinni," segir Dröfn
Farestveit. Hér á fermingarmyndinni sinni er hún í gulum
atlassilkikjól með sififoni yfir og með prinsessusniði.
Kirkjuhúsið
Hjá okkur fáið þið allt til fermingarinnar, s.s. sálmabækur, servíettur,
fermingarkerti, slæður, klúta, hanska og alls kyns hárskraut.
Gjafavörur í úrvali.
Sérverslun með kirkjugripi og ýmsa muni sem tengjast
kirkjulegum athöfnum.
Kirkjuhúsið
Klapparstíg 27
5. TBL. 1989 VIKAN 31