Vikan


Vikan - 09.03.1989, Blaðsíða 34

Vikan - 09.03.1989, Blaðsíða 34
SKRAUT Kransakökur eru skreyttar á margs konar hátt og fer skreyt- ingin einfaldlega eftir smekk manna, þó hefur Macintosh konfektið verið sígilt í gegnum tíðina og er enn. Einnig eru kökurnar gjarnan skreyttar með súkkulaðikrúsidúllum og gefúm við snið af nokkrum slíkum hér. Hjá bökurum og víðar fæst ýmiss konar papp- írsskraut á kökurnar og einnig styttur (fermingar, giftingar eða skírnar). í staðinn fyrir styttu má hafa uppreistan hring efst sem í er mynd af við- komandi. Smjörpappír er lagður yfir munstrið og dregin upp eins mörg af því og á að nota. Snúið pappímum við og smyrjið hina hliðina. Þá er bráðið súkkulaði sett í kram- arhús sem búið er til úr smjörpappír og örlítið gat klippt á oddinn. Sprautið súkkulaðinu eftir munstrinu. Til þess að súkkulaðiskrautið verði ekki of veikbyggt þá er því hvolft þegar það hefúr harðnað vel og súkkulaði sprautað á hina hliðina. Gott í ferminguna eða á páskaborðið Bjarki I. Hilmarsson útbjó fínan og afar Ijúffengan veislumat að þessu sinni, sem hæfir vel hvort sem er í fermingarveisluna eða á péskaborðíð. Svinalundir og fleira góðgæti er pakkað inn í smjördeig og bakað. Á eftir býður Bjarki upp á afar ferskan (og litið fitandi) eftirrétt sem er melonukulur í púrtvíni. Melónukúlurnar er auðvelt að gera en til þess þarf þó sérstaka skeið sem fæst í flestum busahalda- verslunum, en hana er líka hægt að nota til að búa til litlar ískulur, bua til kulur úr agúrkum og margt fleira þannig að óhætt er að fjárfesta í þessu ahaldi. Bjarki er reyndar kominn í sólina á Tahiti núna, þar sem hann vinnur með frönskum matreiðslumeistara á einhverjum hinna fínu veitingastaða þessarar fjarlægu eyju. Margir hefðu ekkert á móti því að mæta í mat til þeirra þar... í næstu viku býður Þorkell Garðarsson upp á matarmikla spánska eggjaköku og síðasti réttur Bjarka að sinni verður þar einnig en það er ristaður hörpuskelfiskur í karrísósu. 34 VIKAN 5. TBL. 1989
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.