Vikan


Vikan - 09.03.1989, Blaðsíða 37

Vikan - 09.03.1989, Blaðsíða 37
BOBBY BROWN POPP EDIE BRICKELL Vdrðsöngkona upp úr fylliríi Edie Brickell er 22 ára gömul stúlka írá Texas. Svo feimin var hún að hún átti erfítt með að halda uppi samræðum, jafhvel við fólk sem hún þekkti. Eitt kvöld fyrir tæpum fjórum árum urðu þáttaskil í lífi hennar. Einni vinkonunni þótti feimni og hlédrægni Edie heldur mikil svo hún ákvað að fara á næturklúbb og fylla hana. Það gekk betur en nokkur hafði þorað að vona. Þegar líða tók á kvöldið var Edie komin vel við skál og fékk óstöðvandi löngun til að syngja með hljómsveitinni sem spilaði fyrir dansi. Hljómsveitin var The New Bohemians. Edie segir að sér hafi bara liðið mjög vel á sviðinu. Þarna sagði hún allt sem upp í hugann kom. Það kom henni reyndar svo- lítið á óvart að textagerð lægi vel fyrir henni. Edie Brickell talar mikið um æsku sína, sem var ekki dans á rósum. Foreldrar hennar skildu þegar hún var lítil og ólst hún upp hjá móður sinni. Edie vissi aldrei hvað hana Iangaði til að leggja fyrir sig — fyrr en eftir þetta umrædda kvöld. Það liðu ekki margir dagar þar til hljóm- sveitin bað Edie um að verða söngkona sveitarinnar, slík var frammistaðan. Hún segir: „í raun neyddi ég þá til að bjóða mér > hljómsveitina því ég talaði sífellt um það hversu skemmtilegt þetta væri og að ég gæti hugsað mér að vinna í hljómsveit." Nú fóru í hönd miklar breytingar bæði hvað varðaði tónlist og mannahald í sveit- inni. Aðeins bassaleikari upphaflegu Bo- hemians sveitarinnar er enn til staðar og tónlistin sem þeir spiluðu hefur vikið fyrir léttu melódísku rokki. Stundum hefúr ver- ið sagt að Edie Brickell minni um margt á Carole King eða Janis Joplin. Það er ekki leiðum að líkjast, en eitt er víst; Edie Brickell stendur svo sannarlega fyrir sínu og þarf ekki samlíkingu. Þegar hljómsveitin var tilbúin í slaginn var reynt að fá hljómplötusamning og hét Edie því að ef ekkert gerðist fyrir nóvem- berlok 1986 ætlaði hún aftur í skólann og hætta að syngja um tíma. En viti menn! Geffen hljómplötuútgáfan (sem gaf út seinustu plötur John Lennon) ákvað að gera samning við hljómsveitina. Miklum tíma var eytt í undirbúning og upptökur og hvergi til sparað. Árangurinn er ótrú- legur. Edie Brickell er enn sama stelpan úr hverfmu. Hún segir: „Mér finnst ég vera ein af áheyrendunum og þegar ég er beðin um að sitja fyrir á mynd með einhverjum kemur yfir mig feimni. Ég veit ekki enn hvort ég er söngkona. Röddin hefúr ákveðinn stíl og ég kem textanum ffá mér. Kannski ef þú telur Lou Reed söngvara get ég allt eins talist söngkona." Fyrirmyndar ungmenni! TEXTI: PÉTUR STEINN ~ Hver er Bobby Brown? Jú, hann fer út að ganga með hundinn sinn í samfloti með Janet Jackson. Eitt sinn þurfti hann að gera hlé á tónleikum til að skipta um buxur er hann fyrir slysni hafði lent í áhorfenda- skaranum. Bobby er 19 ára gamall og söng frá 1983 með unglingasveitinni New Edi- tion. Á þeim árum áttu þeir nokkur vinsæl lög, svo sem Candy Girl. Þessi velgengni var ekki nóg fyrir Bobby, sem er mjög metnaðarfullur. Hann vildi meira og yfir- gaf félaga sína 1986 til að leggja heiminn að fótum sér. Það hefur hann gert því tvö vinsæl lög hefur hann þegar átt, Don’t be Cruel og My Prerogative. Hann er fyrsti svarti listamaðurinn í 25 ár sem kemur fram undir tvítugu og nær fyrstu plötu sinni í efsta sæti bandaríska listans. Sá sem gerði þetta fyrir 25 árum var Stevie Wonder. Bobby er fyrirmynd unglinganna. Hann reykir ekki og neytir engra vímuefna enda stundar hann íþróttir af miklu kappi og hefur unnið til verðlauna á íþróttasviðinu. Bobby er mikil pjattrófa og hefur yndi af dýrum fötum. Það er ekki óalgengt að hann kaupi sér föt fyrir 100 þúsund krón- ur þegar hann fer af stað í verslunar- leiðangur. Það er því eins gott að hafa sæmilegar tekjur... 5. TBL. 1989 VIKAN 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.