Vikan - 09.03.1989, Blaðsíða 45
hætti. Hann hafði áhuga á fögrum konum
og uppgötvaði að kjörinn staður til að
nálgast þær væri t.d. á hárgreiðslustofu.
Þar að auki sá hann fram á að í hárgreiðsl-
unni gæti hann notfært sér það sem hann
hafði lært í háskólanum um form og fleti.
Fernando komst í kynni við Vidal Sassoon
og starfaði lengi sem aðstoðarmaður hans
og síðan framkvæmdastjóri ffamleiðslu-
deildar fyrirtækis hans. Nú, 25 árum síðar,
gegnir hann sama starfi hjá OGGI og er
einnig skólastjóri alþjóðlegs hársnyrti-
skóla sem fyrirtækið rekur og er jafht ætl-
aður byrjendum sem meisturum. Hann
kennir við skólann, þjálfar hárgreiðslufólk
fyrir keppnir, setur upp hárgreiðslusýn-
ingar og ferðast um heiminn til að kynna
OGGI vörurnar.
Þetta þætti ýmsum ærinn starfi en Fern-
ando lætur sig ekki muna um að reka líka
eins og eina hárgreiðslustofu við eina af
fínustu og dýrustu breiðstrætum heims,
Rodeo Drive í Beverlyhæðum í Los Ange-
les. Þar eru meðal fastra viðskiptavina
stórstjörnurnar Rachel Welch, Diana Ross,
Dionne Warwick og Jacqueline Smith.
„Stundum greiðum við þeim heima hjá
þeim en þegar þær langar að sýna sig og
sjá aðra þá koma þær á stofuna. Yfirleitt
verðum við þá að setja upp grindverk svo
þær komist óáreittar milli bíls og húss, því
fólk gerist oft aðgangshart til að ná sér í
eiginhandaráritun. Þetta fræga fólk er ekki
alltaf öfundsvert því bak við grímuna búa
ósköp venjulegar sálir. Mínir ffægu við-
skiptavinir eru indælustu manneskjur og
ekki svo ýkja óiíkar öðru fólki. Þær hafa
eins og aðrir gaman af nýjustu slúður-
sögunum; hver sé farinn að vera með
hverjum og hver sé skilinn við hvern —
ekki vissi ég að þessi væri svona eða hinn
hinsegin. Þær ræða líka um nýjustu mynd-
ina sína, nýliðin eða væntanleg fín kvöld-
verðarboð og jafhvel nýjustu kærastana.
Það verður eitthvað að tína til þar eð
veðurfarið í Los Angeles sér íbúunum ekki
fýrir jafn öruggu umræðuefhi og hér
gerist...“
„Mitt faglega mottó ...“
En aftur til OGGI. Fernando kveðst
mjög ánægður með þann áhuga sem ís-
lenskt fagfólk hefur sýnt OGGI hársnyrti-
vörunum. Hann hefur leiðbeint því um
notkun varanna enda munu þær fýrst og
fremst ætlaðar til notkunar á hársnyrtistof-
um, þó einnig verði þær þar til sölu fyrir
viðskiptavini.
Aðspurður segir Fernando Romero að
mjúk og frjálsleg lína verði ofan á í hártísk-
unni þetta árið. „Og hvort hárið á að vera
sítt eða stutt fer alfarið eftir andlitsfalli og
persónuleika hvers og eins. Þar mega
tískufyrirbæri ekki ráða ferðinni, þó auð-
vitað geti svo einhver smáatriði í greiðslu
eða litun orðið til að gefa nýtískulegan
svip. Mitt faglega mottó er það að taka
verður fullt tillit til andlitsbyggingar við-
skiptavinarins áður en hugmyndaflugið er
leyst úr læðingi." □
Fyrirjermingar-
stúlkumar
Pósthússtræti 13, sími 22477.
„Sjarmerandi“
satínnáttföt, jakki,
buxur og sloppur.
fallegir litir,
mildir eða líf-
legir að vild.
ŒB AUGiySINGAPfQNUSTAN \ SÍA
Sérstaklega
vandað satín,
mjúkt og létt.
5. TBL. 1989 VIKAN 43