Vikan - 09.03.1989, Blaðsíða 15
DULFRÆÐI
Heildræn heilsuf rædi
og huglækningar
REIKI byggist á því að leggja hendumar á sérstakan hátt yfir sálrænar orku-
stöðvar sjúklingsins sem em meðfram hryggjarsúlunni og samsvara innkirtla-
kerfinu í efhislíkamanum. Sálrænt og likamlegt ójafnvægi stafar gjarnan af
ójafnvægi í kirtlakerfinu, þ.e. of mikillar eða of lítillar örvunar þess. Sérstaða
REIKI felst í því að líkami sjúklingsins dregur til sín þá orku sem hann þarf á
að halda í hverri orkustöð og þarf huglæknirinn sjálfur ekki að beita einbeit-
ingarorku sinni og missir því síður eigin orku eða þreytist. Þvert á móti hleðst
hann ásamt sjúklingnum af alheimsorkunni REIKI, sem huglæknirinn er
farvegur fyrir og nýtur þannig sjálfur góðs af. Á myndinni hér fyrir ofan má sjá
nokkra þátttakendur í námskeiði Þrídrangs kynnast hópheilun undir stjóm
dr. Paulu Horan huglæknis.
TEXTI: HARTMANN BRAGASON
Einn af homsteinum heildrænn-
ar heilsufraeði er að ekki er hægt
að skilja á milli likamlegrar heilsu
og sálræns og andlegs ástands eða
hugarfars. Öll svið em samtengd
og sjúkleiki í líkamanum er ávallt
endurspeglun togstreitu, spennu,
kvíða eða misræmis á öðmm svið-
um sálarlífsins jafnframt. Þegar
við emm veik er það án undan-
tekninga boðskapur til okkar að
lita inn á við og athuga sálræna og
andlega hðan og viðhorf til að við
getum fundið hvað við getum gert
til að endurreisa eðlilegt sam-
ræmi og jafnvægi í verund okkar.
Við verðum að stilla okkur og
hlusta á innri mann.
Það eru stöðug samskipti á milli hugar
og líkama. Líkaminn skynjar efhisheiminn
og sendir skilaboð til hugans. Hugurinn
túlkar skynjanirnar í samræmi við fyrri
reynslu og innræti og gefur líkamanum
boð um að bregðast við á þá leið sem hon-
um finnst viðeigandi. Ef hugurinn ályktar
meðvitað eða ómeðvitað að viðeigandi
eða óhjákvæmilegt sé að verða veikur
mun hann koma því til skila til líkamans
sem mun dyggilega birta sjúkdómsein-
kenni. Hann verður með sanni veikur. Öll
þessi ffamvinda er nátengd djúpstæðum
hugmyndum og ímyndunum sem við höf-
um um okkur sjálf, lífið og eðli sjúkdóma
og heilbrigðis.
Fólk veikist því að það trúir undir niðri
að sjúkdómur sé viðeigandi eða óhjá-
kvæmilegt andsvar við vissum aðstæðum,
vegna þess að það virðist geta leyst vanda-
mál þeirra eða uppfyllt vissar þarfir, eða
sem örvæntingarfúll lausn á óleystum og
óþolandi innri flækjum.
Til dæmis getur maður orðið veikur
vegna þess að hann telur sér trú um að
honum sé ætlað að verða það með því að
smitast af öðrum sjúklingum sem hann
umgengst. Maður deyr af sama sjúkdómi
og foreldrar hans vegna þess að hann er í
undirmeðvitundinni búinn að „forrita" sig
til að feta t fótspor þeirra. Maður veikist
eða verður fyrir slysi til að fá ástæðu til að
mæta ekki í vinnuna, annaðhvort vegna
þess að hann á erfitt með að takast á við
starfið eða það er eina leiðin til að öðlast
langþráða hvíld. Maður verður veikur
vegna þess að það var eina leiðin til að fá
ástúð og umhyggju frá foreldrum sínum
þegar hann var barn. Maður bælir tilfinn-
ingar sínar og deyr að lokum úr krabba-
meini vegna þess að hann fann enga aðra
leið út úr erfiðleikum sínum.
Oft liggja margir flóknir þættir að baki
veikindum en þó má ávallt finna að þau
eru svar við innri vandamálum. Ef við
erum reiðubúin að breyta innsta hugar-
farsástandi getum við fúndið uppbyggi-
legri lausnir á vandamálum og sjúk-
dómum.
Á sama hátt og neikvæðar, niðurbrjót-
andi og sjúklegar hugsanir í bókstaflegri
merkingu valda líkamlegum veikindum er
alveg eins hægt að snúa þessu ferli við og
senda líkamanum í staðinn jákvæðar, upp-
byggilegar og heilbrigðandi ímyndir og
hugsanir. Eftirfarandi sjónarmið túlka já-
kvæðasta, kraftmesta og heilbrigðasta
heilsufarshugarfarið sem maðurinn getur
tileinkað sér:
„Við erum öll í innsta eðli fúllkomnar
andlegar verur. Við erum fúllkomin tján-
ingartæki alheimshugarins eða guðsvit-
undarinnar sem er innra með okkur (þ.e.
maðurinn er skapaður í guðsmynd). Þar af
leiðandi er eðlilegur fæðingarréttur okkar
geislandi heilsa, fegurð, takmarkafaus
orka, æskufjör og gleði allt vort líf. Það er
í rauninni ekki til nein illska eða takmörk-
un. Það er aðeins til vanþekking eða mis-
skilningur á alheimslegu eðli góðleikans
(guðs), sem er tengt óendanlegri sköp-
unarhæfni okkar. Skortur á góðri heilsu,
fegurð, orku, fjöri og gleði er sjálfskapar-
víti, viðnám gegn góðvild lífsins, sem er
grundvallað á ótta og vanþekkingu."
Líkamir okkar eru einfaldlega holdleg
tjáning á vitundinni. Sú afstaða sem við
höfúm til okkar sjálfra ákvarðar heilbrigði
Höfundur er meö BA próf í sálfræði. Hann er stjórnarfor-
maöur Þrídrangs og félagi í Ananda Marga og Norræna
heilunarskólanum. Hann heldur m.a. námskeið ásamt
bandaríska sálfræðingnum Sarah Biondani í eflingu inn-
sæis og sköpunarmáttar mannsins til að vinna bug á tak-
mörkunum, skorti, erfiðleikum og vandamálum sem eru
fyrst og fremst afleiðingar neikvæðrar afstöðu til sjálfsins,
lífsins og tilverunnar.
5. TBL 1989 VIKAN 15