Vikan


Vikan - 09.03.1989, Blaðsíða 17

Vikan - 09.03.1989, Blaðsíða 17
IflflHIflTfll legjum, lærum, mjöðmum, kviði, brjósti, baki. handleggjum, öxlum, hálsi, andliti, hnakka og hvirfli. Finndu alla spennu leys- ast upp og rjúka í burtu og finndu fyrir þægilegri þyngslatilfinningu um allan lík- amann. Óhætt er að mæla með slökunar- snældu með róandi tónlist við slökunina. Þegar þú hefur náð góðu slökunar- ástandi skaltu ímynda þér rauðgult ljós (heilunarorku) allt í kringum líkama þinn - finndu fyrir ljósinu - skynjaðu það - njóttu þess ... Ef einhver hluti líkama þíns hefur verið sjúkur eða aumur skaltu spyrja þann hluta í huganum hvort hann hafi einhver skila- boð til þín. Spurðu hvort það sé eitthvað sem þú þurfir að skilja eða gera einmitt á þessu augnabliki eða almennt. Ef þú færð hugboð um svar gerðu þá það sem í þínu valdi stendur til að skilja það og fara eftir því. Ef þú færð ekkert svar skaltu bara halda áfram að lauga þig í rauð- gula ljósinu. Sendu núna ástúðlega hugarorku til hins sjúka líkamshluta þíns og sérhvers hluta sem þarfnast þess. Sjáðu og finndu þá verða heilbrigða og hrausta. ímyndaðu þér sjálfa/n þig núna geisl- andi af hreysti. Hugsaðu um sjálfa/n þig í mismunandi aðstæðum þar sem þér líður vel, ert fúll/ur starfsorku og heilbrigði. Veittu meinsemdinni ekki meiri orku nema þér finnist að þú þurfir að læra eitt- hvað ffekar af henni. Eftirfarandi staðhæfingar eru já- kvæðar hugsanir sem hafa nærandi og heilandi áhrif á hug og líkama. Æski- legt er að þú hafir yfir eina þeirra í senn í huganum í nokkrar mínútur í einu, upphátt eða í hljóði við flest tækifæri og tilefni sem gefast. Áhrifa- ríkast er að gera þær þegar þú slakar á eða ert í hugleiðslu. ■ Éger laus við sjúkleika. Ég er frísk/ur og heilbrigður. ■ Ég geisla af hreysti og orku. ■ Ég elska og virði líkama minri algjör- lega. ■ Ég ergóð/ur við líkama minn og lík- ami minn er góður við mig. ■ Ég er þakklát/ur fyrir sífellt aukna heilsu, fegurð og lífsorku. ■ Sérhvem dag sem ég kem skapmu í lag snýst allt mér í hag. Að heila aðra Sömu lögmál eiga við heilun á öðrum eins og á sjálfúm/sjálfri þér. Þar sem vit- und okkar er tengd vitund allra annarra manna sem er jafnframt tengd guðlegum almætti og alvisku, höfúm við aðgang að ótrúlega miklum heilunarkrafti sem við getum stillt okkur inn á að vild. Á sama hátt og hugarfar þitt hefur áhrif á heilsufar þitt getur hugarfar þitt til heilsu annarra haft sömu áhrif á þá og kemur skapandi ímyndunarafl og staðhæfingar um heilsuhreysti þeim til handa að sömu notum. Ekki skiptir máli hvort þeir eru nær eða fjær, meðvitaðir um að verið sé að heila þá eða ekki. í grundvallaratrið- um er notuð sama aðferð hvort sem einn er að heila eða margir í sameiningu. Helsti munurinn er að áhrifin verða öflugri því fleiri sem heila saman í hóp. Ef sjúklingurinn er inni í heilunarrúm- inu skal láta hann leggjast niður á miðju gólfinu eða setjast á stól. Lokið augunum og slakið vel á. Munið að það er heilunarorka alheimsins sem hópurinn er farvegur fyrir til stuðnigns lækningarmáttar sjúklingsins. Sjáið og skynjið hann umlukinn rauðgulu ljósi, honum líði vel og sé við fúlla heilsu og bæði hugleg og líkamleg vandamál hans séu á bak og burt. Einnig er líka hægt að reisa hendurnar og láta lófana snúa út á við í átt til einstakl- ingsins í miðju og finna að orkan streymi út til hans í gegnum hendur ykkar. Það er sérstaklega áhrifaríkt að allir söngli „OM“ saman í fáeinar mínútur á meðan heilunin fer fram. Til að söngla „OM“ á að gefa frá sér Iangan, djúpan hljóm með atkvæðunum a-a-au-m-m og halda honum eins lengi og hægt er og endurtaka hann hvað eftir annað. Það er áhrifaríkt að tala við sjúklinginn beint í huganum. Minnið hann á að hann sé með sanni fúllkomin guðleg vera og að engin veiki eða meinsemd þurfi að hafa neitt vald yfir honum. Segið honum að þið styðjið hann í því að vera algjörlega heil- brigður og hamingjusamur og að þið mun- ið halda áffam að senda honum ástríkan stuðning og orku. Þegar þið eruð búin opnið þá augun og snúið aftur til ytri veruleikans og finnið að þið eruð fi-ísk, endurn'ærð, heilbrigð og hress. Héðan í ffá sjáið þið einstaklinginn fyrir ykkur (í slökunarástandi eða hugleiðslu) sem fúllkomlega heilbrigðan. Veitið sjúk- dómi hans ekki meiri huglæga orku; haldið bara áffam að sjá hann fyrir ykkur sem al- heilan. íþróttir og heilsurækt Þú getur notað sköpunarmátt hugans til að auka árangur þinn og ánægju við hvaða líkamsæfingar sem þú stundar. Þú getur gert það á meðan þú stundar þær og í slök- un og hugleiðslu. Til dæmis þegar þú ert að hlaupa getur þú séð þig fyrir þér hlaupa létt, hratt og fyrirhafnarlaust. ímyndaðu þér að þú takir stór skref og leggir miklar vegalengdir að baki áreynslulaust, næstum eins og þú fljúgir áffam. Þegar þú slakar á segir þú við sjálfa/n þig að þú hlaupir hraðar á hverjum degi, þú verðir sterkari og betur á þig komin/n. Ef þú stundar kapphlaup skaltu sjá þig fyrir þér vinna keppni. Ef þú stundar dans eða jógaæfingar skaltu hafa hugann við líkamann og vöðv- ana á meðan þú gerir æfingarnar og sjá þá slaka og teygða og sjálfa/n þig verða stöð- ugt mýkri og liðugri. Notaðu slíkar aðferðir við hvaða íþrótt sem þú stundar og sjáðu fyrir þér að þér fari stöðugt ffam. Líkamssnyrting Þú getur gert daglega hirðu á líkama þínum að álíka viðburði og að fara til Frh. í næstu opnu REIKI er ævafom tíbesk huglækningaaðferð. Þessi mynd er frá nýafstöðnu námskeið sem Þrídrangur gekkst fyrir. REIKI-meistarinn dr. Paula Horan hug- læknir, nuddari og sálfræðingur sést hér heila greinarhöfúnd. 5. TBL 1989 VIKAN 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.