Vikan - 07.09.1989, Page 7
LEIKLI5T
„Sá maður á bágt
sem eldd getur hlegið"
Vikuviðtal við Bessa Bjarnason leikara,
sem á 150 hlutverk að baki í Þjóðleikhúsinu
TEXTI: JÓN KR. GUNNARSSON
að vakti athygli fyrir skömmu þeg-
ar sagt var frá því í fréttum að tveir
úr hópi kunnustu leikara Þjóðleik-
hússins myndu hætta í haust, þeir Bessi
Bjarnason og Rúrik Haraldsson. Starfsár
þessara vinsælu leikara eru orðin mörg, en
aldur er afstætt hugtak.
Bessi Bjarnason var spurður um þessi
tímamót og hvort verið væri að breyta til
og hver yrði þá næsti vettvangur.
„Maður veit að sjálfsögðu aldrei hvað
framtíðin ber í skauti sér en málið er það
að ég er alls ekki hættur að leika og ég ætla
að vona að ég fái sem flest hlutverk í Þjóð-
leikhúsinu áfram eins og ég hef fengið
hingað til. Þetta snýst núna um 95 ára regl-
una, um samanlagðan aldur og starfsaldur,
svo nú ræð ég meira hvað ég leik. Hér eftir
verður mér kannski ekki hent inn í barna-
leikrit á þeim tíma sem leiðinlegt er að
vinna eins og á laugardögum og sunnu-
dögum, þegar ég vil helst vera á hestbaki.
Ég ræð núna meira sjálfur hvað ég geri.
Það má segja að ég sé orðinn meira „free-
Iance“ leikari. Að minnsta kosti ekki eins
bundinn og áður. Ég var fyrir löngu búinn
að ákveða að hætta þegar ég gæti sam-
kvæmt 95 ára reglunni, því að ég hef leikið
manna mest við þetta leikhús og því fannst
mér tími til kominn að breyta til og geta
loks lifað af listinni."
- Þú hefur tekið á þig mörg gervi.
Veistu nokkuð hvað hlutverkin eru orðin
mörg sem þú hefur leikið?
„Nei, ég veit það nú ekki nákvæmlega
en ég gæti trúað því að við Þjóðleikhúsið
séu það um 150 hlutverk. Svo hef ég auð-
vitað verið í útvarpi og sjónvarpi og svo
öll sumur út og suður í Sumargleðinni og
öllu mögulegu."
— Nú hafa leikhúsgestir séð þig bæði í
alvarlegum hlutverkum og gamanleikjum.
Áttu eitthvert uppáhaldshlutverk eða er
þér eitthvert hiutverk minnisstæðara en
önnur?
,Ja, ég er núna búinn að vera í hlutverki
í leikriti sem á að fara að filma. Það er búið
að sýna þetta leikrit 120 sinnum á Litla
sviðinu og úti um allt land. Þetta er Bíla-
verkstæði Badda. Það verður filmað næstu
sex vikurnar. Þarna er ég með gott hlut-
verk sem verður mér áreiðanlega minnis-
stætt.“
— Líklega muna flestir eftir þér í gaman-
hlutverkum, en hvernig er maðurinn og
grínistinn Bessi? Er hann eins gamansamur
í daglega líflnu og á leiksviðinu?
„Nei, alveg örugglega ekki. Á leiksviðinu
er alltaf hægt að búa sér til ákveðna grímu
og ákveðið fas og kannski ákveðna rödd og
takta sem maður notar ekki í daglega líf-
inu. Ég er bara ósköp rólegur en held samt
að lundin sé alltaf létt og ég er seinþreytt-
ur til vandræða."
Rólegur alvörumadur
— Fyrir mörgum árum sagði við mig
ágætur maður að það þyrfti mikinn al-
vörumann til að vera góður húmoristi.
Ertu alvörumaður?
,Já, ég held að það sé óhætt að segja
það. Annars held ég að ég sé enginn sér-
stakur húmoristi. Ég veit það ekki, en ég á
gott með að koma þessu frá mér og ná til
fólksins. Það er kannski einhver geislun
sem maður hefur og fólk verður vart við.
Maður er af reynslunni farinn að kunna að
beita þessu. Börnin kunna að meta þetta
og kannski fullorðnir líka. Það vekur þá
kátinu og veitir innri gleði.“
— Hvernig texta líkar þér best að túlka
og hvernig hlutverk lætur þér best?
Ljósm.: Þórarlnn Jón Magnússon
Bessi ásamt eiginkonu sinni, Margrétí, að skemmta Útsýnarfarþegum
á Costa del Sol fyrir stuttu.
18. TBL. 1989 VIKAN 7