Vikan - 07.09.1989, Blaðsíða 34
KVIKMYNDIR
Blíða leitar skjóls hjá Bart og saman
fylgjast þau með óvinunum sem
nálgast óðfluga.
Vissir þú að birnir
gráta?
TEXTI: BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR
Hafirðu eldd enn séð myndina Bjöminn sem sýnd hefur verið í
Regnboganum síðan um miðjan ágúst, skaltu drífa þig svo þú
missir örugglega ekki af henni. Myndin er frábær! Sá þarf að
vera mikið hörkutól sem ekki bráðnar fyrir töfrum Blíðu, eða
Douce eins og bjamarhúnninn sem leikur aðalhlutverkið hefur
verið kallaður, taktu því öll hörkutólin jafnt sem Ijúfmennin sem
þú þekkir með þér og þú getur verið viss um að enginn verður
fyrir vonbrigðum.
Pegar talað er um myndir þar sem dýr
eru í aðalhlutverki þá halda margir
að um sé að ræða mynd þar sem dýr eru
látin framkvæma ýmislegt sem aðeins
menn hafa hingað til verið færir um — t.d.
bjarga einhverjum úr klóm þjófs, aka bíl
og hestar sem geta sungið, svo eitthvað sé
nefht. Þá eru vanalega framkvæmdar ýmiss
konar tæknibreilur þannig að dýrin virðast
til alls vís, auk þess sem þau eru sérstak-
lega þjálfuð. Annars konar dýramyndir
sem fólk sér eru náttúrulífsmyndir þar
sem fylgst er með háttalagi dýranna í
þeirra náttúrulega umhverfi, en þá oftast
úr nokkurri fjarlægð og án þess að áhorf-
endur fái tækifæri til að kynnast „persónu-
leika" dýranna. Það sem gerist aftur á móti
í Birninum er að þar fá áhorfendur, líklega
í fyrsta sinn, að kynnast því að birnir hafa
hver um sig mjög ákveðinn persónuleika
og að þeir eru um margt mjög líkir
manninum.
Litill og umkomulaus húnn
- hræddur við allt
f aðalhlutverkum í myndinni eru tveir
birnir, húnninn Blíða og annar fúllorðinn
sem heitir Bart. Blíða missir mömmu sína
á sviplegan hátt og þarf þá að bjarga sér
upp á eigin spýtur, en hún er lítil og
hrædd við allt mögulegt — vatn, froska,
flugur og umfram allt er hún mjög ein
mana. Hún er því greinilega fegin þegar
hún rekst á fúllorðinn björn og ætlar að
32 VIKAN 18. TBL. 1989