Vikan


Vikan - 07.09.1989, Síða 40

Vikan - 07.09.1989, Síða 40
5MA5AC5A MAGASÁR getur átt sérýmsar orsakir enþað lceknast ekki fullkomlega nema á einn hátt... Fyrsta upphringingin átti sér stað klukkan tvö á föstudagsnótt. Stofu- stúlkan vakti húsbóndann, Boyce Harper, og kvað röddina í síman- um hafa sagt að þetta væri mjög áríðandi. — Hvað gengur á, Boyce? spurði Jean, eiginkona hans, og reis upp við dogg í rekkju sinni. — Það hef ég ekki hugmynd um. Hann reis upp, hálfsofandi, og rétti höndina út eftir símanum á náttborðinu, eftir að stofu- stúlkan hafði sett hann í samband. — Halló ... urraði hann önuglega. - Herra Boyce Harper? Þetta er á Carmichael-sjúkrahúsinu. Er frú Eugenie Harper ekki móðir yðar? — Jú, hvað hefur komið fyrir? spurði Boyce með angist í röddinni. — Hún hefúr orðið fyrir slysi, herra Harper. Getið þér komið hingað tafar- laust? — Já, já, auðvitað, svaraði Boyce Harper. Hann svipti ofan af sér sængurfötunum. — Getið þér sagt mér nánar hvað komið hefur fyrir hana? — Ég tel ekki ráðlegt að eyða tímanum í málalengingar eins og á stendur, herra Harper, svaraði röddin. — Þetta er alvar- legt, svo að ég ráðlegg yður að koma eins fljótt og yður er frekast unnt. Þér skuluð snúa yður til stúlkunnar við afgreiðslu- borðið, og tilkynna henni komu yðar. — Sjálfsagt, sagði Boyce. — Ég kem á stundinni. Hann var náfölur, þegar hann lagði tal- nemann á. — Það er mamma, sagði hann við konu sína. — Hún hefur orðið fyrir slysi. — Ég kem með þér, sagði konan hans. — Vertu ekki að gera þér ómak, sagði Boyce kaldranalega. — Þú hefur aldrei kært þig um að hafa nein kynni af móður minni. Ég sé því ekki neina ástæðu til þess að þú farir að vera með einhver látalæti. — Þá það, varð Jean að orði um leið og hún hallaði sér út af aftur. Harper klæddist í skyndi og ók gegnum þvera borgina, uns hann kom að Carm- ichael-sjúkrahúsinu. Hann var skjálfhentur og það var eins og maginn herptist saman, þegar hann gekk inn í anddyrið, að af- greiðsluborðinu. — Boyce Harper heiti ég, tilkynnti hann. Næturvörslustúlkan leit athugandi á hann. - Hver, segið þér? SMÁSAGA eftir ALFRED HITCHCOCK Boyce endurtók naín sitt og kenndi óþolinmæði í röddinni. — Móðir mín var flutt hingað, alvarlega slösuð. Það var hringt til mín héðan og ég beðinn að koma hingað tafarlaust. — Hver tilkynnti yður það? — Hvað á þetta eiginlega að þýða? spurði Boyce reiðilega. — Það var einhver, sem hringdi héðan heim til mín fyrir vart hálftíma og tilkynnti mér að móðir mín lægi hérna og væri í bráðri lífshættu. — Hvað heitir móðir yðar? — Eugenie Harper. Stúlkan blaðaði í dagbók. — Því miður, þá liggur enginn sjúklingur hér sem heitir því nafhi. Ef til vill hefur verið hringt til yðar frá öðru sjúkrahúsi...? — Nei, það var greinilega tekið fram að það væri Camichael-sjúkrahúsið. Má ég hafa tal af yfirmanni yðar þegar í stað? Eftir svo sem hálfa klukkustund hafði Boyce Harper verið sýnt fram á það með óyggjandi rökum, að móðir hans lægi alls ekki á sjúkrahúsinu. Loks var hringt heim til hennar til að taka af allan vafa. Ráðskona hennar svaraði og kvað gömlu konuna liggja sofandi í rúmi sínu og kenndi sér ekki, svo vitað yrði, nokkurs meins. Boyce kveikti sér í sígarettu. Hver gat haft ánægju af að gera honum svo ótuktar- legan grikk? Hver gat verið haldinn slíkri brjálun? Hann bölvaði í hljóði á leiðinni út á bílastæðið. Þegar að bílnum kom sá hann að sprungið var á hægra framhjólinu. Hann laut niður og dró mjóan, fjögurra þuml- unga nagla út úr barðanum... Boyce Harp- er var rnikill maður og mikill vexti, heila- búið stórt og mikið. Hann var karlmann- legur og fríður sýnum, andlitsdrættirnir fastir og ákveðnir, hárið svart, þykkt og liðað, örlítil héla í vöngum. Brosið var innilegt, framkoman öll glæsileg. Hann hafði einn um fertugt og allir álitu hann einstakan lánsmann. Hann rak fasteigna- sölu, sem jók stöðugt viðskiptin og færði út kvíarnar og hann hrósaði sér af því að vera maður sem brotist hefði áfram af dugnaði og fyrirhyggju. Það var þó vægast sagt harla villandi. Það var konan, sem fyrst hafði komið undir hann fótunum, með auð sínum og fýrir þau áhrif sem auð- urinn hefur á ýmsum mikilvægum stöðum. Auk þess var kona hans, Jean Harper, mikilsmetin sem lögfræðingur og mála- ferslumaður og álitin líkleg til að hljóta dómaraembætti. Hún hafði alltaf einbeitt sér við starf sitt en ekki haft neinn teljandi tíma til að vera manni sínum eiginkona í eiginlegum skilningi. Kynni þeirra höfðu hafist þannig að hún afréð að festa kaup á húsi og sneri sér í því skyni til Boyce Harpers. Boyce Harper kom þeim viðskiptum í kring fyrir hana. Hún var svo ánægð með húsið að það hefði ekki getað fallið betur að hennar smekk þó að það hefði verið byggt fyrir hana. Ogjean hefði ekki getað verið betur að smekk Boyce Harpers þó að hún hefði verið sköpuð fyrir hann sér- staklega. Það fór því ekki einungis svo að hún keypti húsið heldur keypti hún og fasteignasalann, Boyce Harper. Þegar brúðkaupið var um garð gengið leið ekki á löngu að Boyce tæki að notfera sér auð hennar. Hann stofnaði öflugt fyrir- tæki með sjálfan sig sem framkvæmda- stjóra. Og það leið ekki heldur á löngu að hann yrði umsvifamikill framkvæmdamað- ur og það var hlutverk, sem átti við hann. Honum fannst það ekki nema eðlilegt og sjálfsagt að ganga alla daga í klæðskera- 38 VIKAN 18. TBL.1989

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.