Vikan


Vikan - 07.09.1989, Side 44

Vikan - 07.09.1989, Side 44
5MA5AC5A unnið þann sigur sem með þurfti. Graham féllst á að fela honum sölu húseignanna. — Það gleður mig meira en orð fá lýst, herra Graham, sagði Boyce. — Ég hef alltaf dáðst að fyrirtæki yðar. Það verður sjónarsviptir að yður á sviði viðskiptanna. í sama mund kom einkaritari Grahams inn. — Fyrirgefið, sagði hún. — En það er áríðandi símtal. Graham tók talnemann og hlustaði. Eftir stutt andartak leit hann furðu lostinn á Boyce. — Á þetta að vera einhver glettni, spurði hann og hlustaði svo enn. — Ég skal með ánægju koma þeim skilaboðum rétta leið, sagði hann að lokum og lagði talnem- ann á. — Það eru skilaboð til yðar, herra Haprer, sagði hann. — Einhver náungi sem sagði að það væri hyggilegast fyrir yður að láta konuna hans í friði. Boyce varð dreyrrauður í andliti. — Þetta hlýtur að vera illkvittnislegt prakkarastirk, herra Graham, sagði hann. — Það get ég vitanlega ekkert um sagt, en þér verðið að skilja það, að ég get ekki látið nafn mitt koma ffam í viðskiptum við mann, sem hinir og þessir leyfa sér slíka ffamkomu við. Ég verð að taka tillit til fyrirtækis míns, herra Harper. Verið þér sælir. Ég verð mér úti um einhvern annan milligöngumann. Á leiðinni út tók eldurinn enn að brenna í maga Boyce. Hann hraðaði sér þangað sem bíllinn hans stóð og var ekki í neinum vafa um að stungið hefði verið á einhverju. Hugboð hans reyndist rétt... Þú verður að taka eitthvert tillit til þess, sem ég segi, Boyce. Dr. Redman var ergilegur. — Þú ert að vísu nokkrum árum eldri en ég, kunnur fjármálamaður og athafnamað- ur og allt það. En ég er nú samt sem áður læknir þinn og það, sem ég segi við þig, segi ég af umhyggju fýrir þér. Ég get ekki hjálpað þér, nema því aðeins að þú viljir hjálpa þér sjálfur. Þú þjáist af magasári, og það er alvarlegt sár. Ég hef athugað röntgenmyndirnar og sárið breiðist stöðugt út með ískyggilegum hraða. Enda ekki að undra, þar sem þú beinlínis elur á því með áfengi, reykingum og magasýrum. Ég hef það frá konu þinni að þú haflr drukkið fast að undanförnu. — Hver hefur beðið þig að vera að rök- ræða um mig við hana? spurði Boyce reiði- lega. — Ertu ekki sjúklingur minn? spurði læknirinn. — Og er hún ekki eiginkona þín? Ég álít það einungis skyldu mína að reyna að komast að hvað það er sem veldur þér slíkri taugaspennu. Þú ert kominn vel á veg með að drepa þig, það er allt og sumt. Boyce folnaði. - Magasár getur verið lífshættulegt, herra minn, mælti læknirinn enn. — Ef þú heldur þannig áfram, verður þess ekki langt að bíða að maginn springi, eins og við köllum það. — Og ... hvað þá? stamaði Boyce. — Það er undir öllum aðstæðum komið, svaraði dr. Redman. — Ef unnt reynist að koma þér í tæka tíð á sjúkrahúsið, þá get- um við skorið þig upp. En komist þú þang- að ekki fyrr en um seinan þá... — Þá dey ég? hvíslaði Boyce. — Að öllum likindum, svaraði læknirinn stillilega. — En nú skaltu taka inn þessar töflur, sem ég læt þig hafa, í hvert skipti sem kvalaköstin koma. Hann rétti Boyce lítinn stauk með töflum. — Og umfram allt, ekkert áfengi, sagði dr. Redman. Boyce hét að gæta þess. Um kvöldið sat hann aleinn í bókasafhs- herberginu með stórt mjólkurglas fyrir ffaman sig. í fýrsta skipti í langan tíma bar svipur hans því vitni að hann væri rólegur og hvíldur. Þá hringdi síminn. - Halló. — Gott kvöld, herra Harper, var sagt, karlmannsrödd sem hann kannaðist vel við. Það var sama röddin og sagðist tala til hans úr Carmichael-sjúkrahúsinu. Rödd mannsins sem kvaðst heita Harry Pierce. Rödd mannsins sem vildi tilkynna honum hvað Ajax-viðgerðarverkstæðið tæki fýrir hjólbarðabætingarnar. — Hvað er það í þetta skipti? spurði Boyce þreytulega. — Mig langaði einungis til að spyrja hvernig yður liði, svaraði rödin. — Síst af öllu vildi ég að nokkuð kæmi fyrir yður. Það er svo margt óvænt sem ég á í poka- horninu handa yður. Enn einu sinni tók eldurinn að brenna í maga Boyce. — Hver eruð þér og hvers vegna leikið þér mig svona grátt? spurði hann. — Það fáið þér aldrei að vita, svaraði röddin. - Hins vegar get ég trúað yður fýr- ir því, að eftir nákvæmlega klukkustund, verðið þér fyrir því langversta, sem enn hefur komið fýrir yður. Verið viðbúinn, kæri vinur. Það heyrðist lágur smellur, talneminn hafði verið lagður á. Boyce leit skelflngu lostinn á klukkuna. Hún var eina mínútu yfir níu. Kvalirnar í maganum jukust um allan helming. Hann gleypti i skyndi eina töflu úr glasinu sem Redman læknir hafði látið hann fá og drakk svo mjólk á eftir. Svo hall- aði hann sér aftur á bak í stólnum. Efitir klukkustund... hvað mundi þá gerast? Kval- irnar í maganum urðu stöðugt óbærilegri. Hann las á miðann á töfluglasinu. „Ein til fjórar töflur." Hann gleypti enn eina töflu og saup mjólk á eftir. Reyndi að vera sem rólegastur. Hver gat það verið, sem ofsótti hann þannig? Ótal nöfn komu fram í huga hans, nöfin á konum sem hann hafði brugðist, karlmönnum sem hann hafði beitt brögðum. Það var einhvern veginn auð- veldara að muna þau en nöfnin á þeim sem hann hafði reynst heiðarlegur. Klukkuna vantaði tíu mínútur í tíu. Það var eins og magi hans væri að rifna. Með skjálfandi höndum kom hann upp í sig tveim töflum til viðbótar. Drakk mjólkina sem eftir var í glasinu. En á sömu stundu og klukkan sló tíu, var sem kvalaleiftur fiæru um hann allan, sárari og heiftarlegri en nokkru sinni fýrr. Það var eins og eitthvert afl væri að tæta hann sundur, rífa hann í smásnepla og skelfingin við dauðann heltók hann. Það var með naumindum að honum tókst að ná sam- bandi við símstöðina. — Ég... heiti... Boyce Harper ... stam- aði hann, og sagði stúlkunni síðan heim- ilisfang sitt. - Útvegið mér... sjúkrabíl... tafarlaust... Það var um miðnætti. Jean Harper sat í biðstofú sjúkrahússins. Dr. Philip Redman kom þangað beina leið úr skurðstofunni. Hafði ekki gefið sér tíma til að fara úr hvíta sloppnum. Hún kveikti í sígarettu og stakk milli vara honum. — Tókst skurðaðgerðin? spurði hún. — Eins og best varð á kostið, svaraði læknirinn og brosti. — Hann er með öðrum orðum dauður, varð frú Harper að orði. - Já. Jean Harper varp öndinni léttara. - Heldurðu að komi til nokkurra óþægilegra afleiðinga? spurði hún. — Nei, svaraði dr. Redman. — Ég er læknir hans. Ég skrifa dánarvottorðið. Þú er málafærslumaður hans og sérð um upp- gjör dánaíbúsins. Hefurðu komið undan töflunum, sem eftir voru í glasinu? — Já. Ég skolaði þeim niður um klósett- ið, svaraði hún. — Ágætt, þá höfúm við ekkert að óttast. — Hvernig litist þér á að hafa fataskipti og koma heim með mér. Þá skal ég hita okkur kaffi? sagði hún. — Það lofar góðu, svaraði læknirinn. — Þetta var heldur óhugnanleg skurðaðgerð, svo að ég hef sannarlega þörf fyrir kaffl- sopa... □ 42 VIKAN 18. TBL. 1989

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.