Vikan - 07.09.1989, Qupperneq 59
5TJ0RMUMERKI
Hjálpsemi
Meyjan er alltaf tilbúin að
hjálpa án þess þó að vera sú
manngerð sem aðrir sækjast
eftir að segja ffá vandamálum
sínum eða gráta við öxlina á.
Þurfl einhver að flytja eða fá
hjálp við að skipuleggja upp-
ákomu er meyjan fús að að-
stoða og vill meira að segja
gjarnan taka ein að sér verkið.
Hún er áhugasamasti félags-
maðurinn í sérhverju félagi en
hættir til að snúast í eilífa
hringi í kringum sjálfa sig.
Meyjan reynir að vera raun-
sæ og þurfl einhver að ræða
vandamál er hún alltaf jákvæð:
- Og hvað skyldum við geta
gert í málinu? segir hún. —
Kannski gætum við reynt... og
svo kemur uppástunga. Önnur
stjörnumerki láta sér nægja að
ræða málið en meyjan vill fá að
hjálpa.
Kalt viðmót
Einkenni meyjunnar er
hreinleikinn eins og nafhið
SÍÐARI HLUTI:
Þannig er meyjan
gefúr til kynna. Hún þolir ekki
óhreinindi og þótt hún þurfi
að vinna sóðalegt verk tekst
henni að halda sér hreinni og
óflekkaðri.
Fyrir kemur að meyjan láti í
ljós andúð á öðru fólki og hana
skortir oft löngun til að hafa
náið samband við aðra. Þessi
ffamkoma verður til að margir
halda meyjuna merkilega með
sig eða stolta en það er hún
alls ekki. Meyjan er einfaldlega
meyjan og fjarlægðin milli
hennar og annarra stafar ef til
vill bara af umhverflnu. Þetta
getur valdið misskilningi sem
meyjan verður sjálf að reyna
að koma í veg fyrir svo að ekki
fari illa. En hlédrægni meyj-
unnar getur líka verið töffandi
og ekki síst eftir að hún hefúr
komist yfir vandamál unglings-
áranna.
Sannleiksástin
Margar meyjar eru sér-
ffæðingar á einhverju sviði og
þeim er nauðsynlegt að ein-
beita sér að einhverju á-
kveðnu. Þeim hentar vel að
stunda rannsóknir og þá þýðir
ekki annað fyrir þær en komast
að sannleikanum. Þær eiga
auðvelt með að sinna verkefú-
um sem öðrum finnast allt of
krefjandi og beita þá allri sinni
orku til að leysa þau. Meyjan
verður þó að gæta þess að
flækja sig ekki um of í smá-
atriðum í leitinni að sann-
leikanum og ástæðulaust er að
liggja vakandi næturlangt og
velta fyrir sér vandamálinu. Ef
meyjan þráast við og heldur
áfram að gera sér áhyggjur hef-
ur það áhrif á heilsuna þegar
ffam í sækir. Lystarleysi er
merki um að vandamálið sé
orðið svo mikið að ekki sé
hægt að leysa það á augnabliki.
Svefnleysi fylgir á eftir og síð-
an óþægindi í maga sem geta
endað með magasári.
Meyjan sem vinur
Lífið getur ekki orðið leiðin-
legt hjá þeim sem eiga meyju
að vini en það getur þó verið
svolítið ruglingslegt. Meyjan
er svo áköf í að hjálpa að hún
gleymir stundum að hún er
ekki besti skipuleggjandi í
heimi. Meyjan er hjartagóð og
þrátt fyrir óróleikann er hún
góður vinur. Glæsibragur hef-
ur ekki áhrif á meyjuna, sem
telur hann ekki vera fyrir sig,
en það getur þó endað með
því að hún leyfi sér að gleðjast
yflr því sem henni er gefið og
þá er gaman að fylgjast með.
Margir reyna án efa að
hvetja meyjuna til að slappa af
og njóta lífsins enda þótt það
reynist ekki auðvelt. Þeir hinir
sömu verða að vera viðbúnir
því að sett verði út á þá. Þeir
sem eru ekki allt of tilflnninga-
næmir láta sér slíkt í léttu rúmi
liggja og taka gagnrýninni á já-
kvæðan hátt enda er hún vel
meint.
Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
Þú virðist mjög vinsæl(l)
og eftirsóknarverð(ur) þessa dag-
ana, en þú færð þig fljótt full-
sadda(n). Vendu þig á að vera á-
kveðnari og bíttu frá þér, þegar
um þverbak er að keyra.
Nautið
20. apríl - 20. maí
Þú verður fyrir happi, en
þú mátt ekki spilla því með gal-
gopahætti og kæruleysi. Haltu
fast um þitt. Þú hefur mikil sam-
skipti við ákveðinn kunningja-
hóp. Reyndu að vera meira
heima og umfram allt um helg-
ina.
Krabbinn
iSs 22. júní - 22. júlí
® þú ert vannærð(ur) á ein-
hverju sviði og verður að fá útrás
hið bráðasta, ef ekki á illa að
fara. Reyndu að beita skynsem-
inni og fara að öllu með sem
mestri gát. Happatala er fjórir.
Ljónið
23. júlí - 22. ágúst
Fjölskylda þín mun eink-
um njóta sín þessa dagana -
stundum finnst þér það vera á
kostnað þinn, en það er mesti
misskilningur að svo sé. Þú færð
heimsókn góðra kunninga á
mánudag eða þriðjudag.
Vogin
23. sept. - 23. okt.
Þú ert viðriðin(n) eitt-
hvert málefni, sem þú og mál-
svarar þínir gerið allt sem þið
getið til að tefja fyrir endalokum
á. Gættu þess vandlega að þetta
sé ekki rangt af ykkur og málþóf-
ið tefji bara fyrir framgangi mála
þinna.
Sporðdrekinn
24. okt. - 21. nóv.
Þess verður krafist af þér,
að þú fórnir einhverju fyrir ákveð-
inn málstað og flestir þínir nán-
ustu vinir og ættingjar telja þig
fúsan til þess og reyndar þú sjálf-
ur líka, en þegar að kröfunni
kemur, kemur annað á daginn.
Tvíburarnir
21. maí - 21. júní
Þú hefur gerst of
ráðrík(ur) og frek(ur) með ákveð-
inn hlut og það kann ekki góðri
lukku að stýra. Varastu að treysta
ákveðnum aðila, að því er virðist
er honum ekki sjálfrátt eins og er.
tMeyjan
23. ágúst - 22. sept.
Þú lendir f illdeilum við
félaga þína og þaðverðurtil þess
að allar fyrirætlanir þínar varð-
andi helgarfríið fara út um þúfur.
Þá koma nágrannar þínir, sem
þú síst áttir von á, til hjálpar og
allt leikur í lyndi.
Bogmaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Þú verður að leggja miklu
meira á þig til að ná takmarkinu
en þú hefur haldið fram til þessa.
Því verður ekki náð nema með
stöðugri vinnu og aftur vinnu.
Láttu nú ekkert annað glepja fyrir
þér og þá mun þér vel farnast.
Steingeitin
22. des. - 19. janúar
Hvernig stendur á þessari
stífni í þér þessa dagana við þína
nánustu? Þú telur þér auðvitað
trú um að þú eigir enga sök á
því, hvernig komið er, en líttu nú
vandlega í eigin barm og gættu
að því hvaða ályktun þú getur
dregið af rannsókninni.
Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar
Þín bíður mikil freisting,
sem reynir afskaplega mikið á
þig. Afleiðingarnar af því að falla
fyrir henni gætu orðið óþægileg-
ar.
19. febrúar - 20. mars
Erfiðleikar sem þú áttir
von á í sambandi við eignaskipti,
reynast barnaleikur. Þú hefur
eignast hættulegan keppinaut
sem beitir ólíklegustu brögðum
til að koma sínu fram.
18. TBL. 1989 VIKAN 57
5TJORHU5PA