Vikan - 19.04.1990, Qupperneq 10
TEXÍIi BJARNl HAUKUR ÞÓRSSON 1V1 eð frægum
JON VCHGHT TIL ÍSLANDS
ÁRNISAMÚELSSON LÝSIR KYNNUM SÍNUM AF LEIKARANUM
Þessi mynd af þeim félögum Jon Voight og Árna Samúelssyni tók greinarhöfundur er fundum
þeirra bar saman á American Film Market. Jon Voight hyggst vera viðstaddur frumsýningu nýjustu
myndar sinnar Eternity í Bíóborginni í sumar og taka með sér leikarann Armand Assante, sem
einnig leikur í myndinni.
hann er klæddur, hefur gaman
af hressu fólki og er opin
persóna. - Ástæöan fyrir því
að ég kann svo vel við Jon er
að hann er laus við alla sýnd-
armennsku og yfirborðskennd
sem einkennir svo marga
leikara, segir Árni.
Undirritaður hitti Jon Voight
í Los Angeles fyrir ári, tók viö-
tal við kappann fyrir Vikuna og
smellti af nokkrum myndum.
Þar kynntist maður því af eigin
raun hversu góðir vinir Jon og
fjölskylda Árna eru. Það voru
fagnaðarfundir þegar þau hitt-
ust eins og fram kom í viðtal-
inu. Undirritaður átti góða
stund með Jon og Árna og
minntu þeir á gamla skólafé-
laga sem voru að hittast eftir
nokkur ár.
Hann er væntanlegur til
landsins vegna sýningar Et-
ernety en hann og aðstand-
endur myndarinnar ætla sér
að ferðast um heiminn þar
sem myndin verður sýnd.
Það er ekki hægt að
segja annað en Árni
Samúelsson sé ókrýnd-
ur bíókóngur íslands. Hann á
og rekur þrjú kvikmyndahús,
dreifir myndböndum og innan
skamms kemst á laggirnar ný
sjónvarpsstöð þar sem hann
er hluthafi og stofnandi. Árni
og fjölskylda hafa ferðast mik-
ið og kynnst mörgu fólki, ekki
síst kvikmyndaleikurum.
Þegar sýningarréttur á kvik-
mynd er keyptur er það mjög
oft að kaupendur komast i
kynni við aðstandendur mynd-
arinnar. Það gerir kaupin oft
áhrifameiri og skemmtilegri.
Einn leikari hefur tengst Árna
og fjölskyldu meira en aðrir
leikarar og það er Jon Voight.
Flestir ættu að kannast við
Jon. Hann hefur slegið í gegn
í myndum eins og Midnight
Cowboy, Coming Home, Run-
away Train, Table for Five o.fl.
Hann hlaut einnig óskarsverð-
laun fyrir aðalhlutverkið í kvik-
myndinni Runaway Train.
Jon Voight er því það sem
kallað er toppleikari sem í
senn er eftirsóttur og virtur.
Árni Samúelsson hitti Jon fyrst
í Cannes 1987. Þar rakst Árni
á kvikmynd til sölu en ekki var
búið að gera hana. Lítið kvik-
myndafyrirtæki, Paul-Enter-
tainment, hafði ákveðið að
gera kvikmyndina Eternety
með þeim Jon Voight og Ar-
manda Assante í aðalhlut-
verkum. Árni keypti sýningar-
rétt myndarinnar og lagði pen-
inga í púkkið við gerð hennar.
Hann hafði trú á þessari mynd.
Jon Voight hafði auövitað
áhuga á að vita hvaða maður
þetta væri, gaf sig á tal við
hann og upp frá því hefur vin-
skapur þeirra haldist. Þeir hafa
hist tvisvar til þrisvar á ári síð-
an þetta gerðist.
Árni segir að Jon sé öðru-
vísi en flestir leikarar sem
hann hefur hitt. Hann er ekki á
höttunum eftir frægð og frama,
lifir venjulegu lífi og tekur ekki
hvaða hlutverki sem er. Til
marks um þetta er að Jon hef-
ur ekki leikið í mynd síðan
Runaway Train var gerö, fyrir
utan Eternety en hún er búin
að taka þrjú til fjögur ár í
vinnslu. Hann vandar valið og
er mikill pælari, segir Árni.
Hann setur sig mjög vel inn í
hlutverkin og vill frekar gera
færri góðar myndir en margar
lélegar.
Jon Voight hefur mikinn
áhuga á íslandi og getur setið
tímunum saman með fjöl-
skyldu Árna og rætt um landið.
Hann hefur aldrei komið hing-
að en draumur hans rætist í
sumar, segir Árni. Ráðgert er
Guðný Björnsdóttir, eiginkona Árna, ásamt Jon Voight og
vinkonu hans, bandarískri.
Myndin fjallar, eins og nafnið
gefur til kynna, um eilífðina og
er verið að velta hinum ýmsu
hugtökum fyrir sér. Eternety er
ekki svo ósvipuð Highlander
sem sýnd var fyrir nokkrum
árum í Tónabíói. í þeirri mynd
var það Christopher Lambert
sem lék aðalhlutverkið.
Við skulum vona að Jon
verði ekki fyrir vonbrigðum
með land okkar og þjóð þegar
hann kemur. Hann stoppar hér
ekki lengi en þó nógu lengi til
að hægt verði að fara með
hann út á land. - Ég verð að
taka hann með mér f stuttan
veiðitúr, segir Árni Samúels-
son.
Árni og Guðný ásamt Armand
Assante.
að hann komi hingað þegar
Eternety verður frumsýnd.
Hann hlakkar mikið til, ísland
er eitthvað svo framandi og
heillandi, hefur hann sagt. Jon
kemur til dyranna eins og
10 VIKAN 8. TBL. íwo