Vikan


Vikan - 19.04.1990, Blaðsíða 36

Vikan - 19.04.1990, Blaðsíða 36
Halldór er mikill náttúruunnandi. Hér sést hann á göngu nærri Gljúfrasteini. Glæsilega til fara aö venju. „...þegar hann fékk sér föt voru þau gerð úr dýrustu efnum og sérsaumuð af skraddara í Danmörku," segir Guðný dóttir hans. ógnaö. Þaö er ekkert sem hann ekki vill gera fyrir sína heittelskuöu nema aö leyfa henni að taka stjórnina. Maöur í þessu merki hegðar sér stundum eins og klaufskur björn í fjölleikahúsi og skop- skyn hans er oft fáránlegt en hann er ekkert fffl. Hann lifir lífinu á sínum þægilega hraöa og lætur ekki ýta sér áfram. Þaö er fyrirfram töpuö orrusta aö reyna að fá hann til þess aö njóta sín í stanslausu félags- og samkvæmislífi áriö út og inn. Ef þú þráast viö og fyllir kastalann hans af heimskingj- um og léttúðardrósum gæti hann látið sig hverfa. Jafnvel fyrir fullt og allt. Mundu að hjá nautinu færöu varanlega tryggð og ást frá hans trúa hjarta. Útkoman úr því dæmi er tilfinningalegt ör- yggi. Þaö er ekki hægt aö biöja um meira þar sem þú færö einnig fjárhagslegt öryggi og rómantík. Gott og vel, hann er þrjóskur en haföu í huga aö hin hliðin á þrjósku er þolin- mæöi og þaö er sjaldgæf dyggö. HOLDLEG OG TÆLANDI Nautið stjórnast af Venusi, gyðju ástar og fegurðar. Nautskonan er líka holdleg og tælandi og til marks um þaö má benda á tvær súperstjörn- ur sem báðar eru í nautsmerk- inu. Báöar hafa unnið til ósk- arsverðlauna, báöar eru þekktar fyrir óvenjulegt og ógleymanlegt útlit, báöar hafa söng- og leikhæfileika, báöar hafa lent í ýmsum skrautleg- um ástarævintýrum, báöar sýna mikinn sjálfsaga og báð- ar hafa sannað aö þær eru komnar til aö vera þó misjafn- lega hafi gengið hjá þeim á listabrautinni. Þetta eru vitan- lega þær Barbra Streisand og Cher sem viö er átt. SALT JARÐARINNAR Kona í nautsmerkinu er á margan hátt eins konar salt jaröarinnar. Hún þarf ekki aö nota nein lymskubrögð til þess aö sigra og aö hennar áliti er hægt aö vera kona án þess aö vera forhert daðurdrós, ganga meö ónotað heilabú og mala eins og kettlingur til þess aö fá sitt fram. Hún tekur fólki eins og þaö er án þess aö vera meö neina uppgerð og ef hún kemst í kynni viö einhvern sem henni líkar ekki viö byrjar hún ekki að rægja hann eöa mótmæla hugsjónum hans og tilgangi. Hún leiðir hann einfaldlega hjá sér. Þessi kona getur sýnt óvinum sínum ískalt afskipta- leysi en ef hún telur þig meöal vina sinna verður hún þér trú á hverju sem gengur. HAGSÝNN HUGSUÐUR Nautskonur leggja ekki sér- lega mikið upp úr menntun og gáfum. Dæmigerð stúlka í nautsmerkinu les ekki heim- speki sér til gamans og flókin hugmyndafræöi er ekki henn- ar sterka hlið. Hún er hagsýnn hugsuður, án allrar tilgerðar og laus við flókna andlega leikfimi. Hún stendur föstum fótum á jöröinni og þaö vottar ekki fyrir vængjum á henni. Einfaldar nautnir höfða til hennar - gott kynlíf, góöur matur og góður félagsskapur, venjulega í einmitt þessari röö. LISTIN AÐ LIFA VEL Nautskonan er aldrei ham- ingjusamari en þegar hún gerir lífiö fegurra. Hún dýrkar tónlist og leikur jafnvel á hljóöfæri sjálf. Hún er líka lagin viö aö teikna og mála. Aö móta í leir eykur skynjun hennar á valdi og af þeirri ástæöu gæti hún tekið upp leirkeragerö sem tengir hana viö afurö þeirrar jarðar sem hún er sprottin úr og heillar hana. Merkasti árangur hennar á listasviðinu er þó listin aö lifa vel. Hver athöfn hennar er vandlega teiknuð upp og hverri eign vandlega komiö fyrir. Margs konar ótti plagar nautskonuna. Einn sá helsti er óttinn viö að gera mistök. Henni er svo mikið í mun aö gera rétt að stundum tekst henni ekki aö gera neitt. Seigla hennar og þrákelkni veröur þó yfirleitt til þess að hún lýkur því sem hún byrjar á - jafnvel þótt þaö taki hana mörg ár. STRÁKSLEGUR MUNAÐARSEGGUR í tilhugalífinu er vel til fundiö að bjóöa henni á tónleika og listsýningar og best er aö fara í brúðkaupsferð til staöa meö tilkomumikla náttúrufegurð. ÞEKKT FOLKINAUTSMERKINU Halldór Laxness Eggert Haukdal Gunnar Gunnarsson rithöfundur Jóhannes Nordal Jónas Jónasson Magnús Torfi Ólafsson Ólafur Ragnar Grímsson Hallmar Sigurösson Haukur Morthens Jóhann Sigurðarson Júlíus Brjánsson Margrét Helga Jóhannsdóttir Sigurjóna Sverrisdóttir Valgeir Skagfjörð Þóra Friöriksdóttir Þórarinn Tyrfingsson Vingjarnlegi bankamaöurinn Fred Astaire Johannes Brahms Cher Gunnlaugur Guömundsson stjörnuspekingur Gary Cooper Bing Crosby Salvador Dali Duke Ellington Elizabeth II Ella Fitzgerald Henry Fonda Margot Fonteyn Sigmund Freud Audrey Hepburn Adolf Hitler Jessica Lange Shirley MacLaine Jack Nicholson Ryan O'Neal Priscilla Presley William Shakespeare Barbra Streisand Orson Welles Debra Winger
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.