Vikan


Vikan - 19.04.1990, Blaðsíða 16

Vikan - 19.04.1990, Blaðsíða 16
'S>V V Þessi mynd sýnir hluta af bliki eða áru mannsins, sem myndast hefur með háspennutæki króatíska vísindamannsins Nikola Tesla. „Innri hug- og tilfinningalíkamar sjást ekki alltaf. Ytri hug- og tilfinningalíkamar þurfa að hafa náð vissum tærleika til að þeir innri sjáist. Innsæis- eða orsakalíkaminn er oftast þaö fallegasta við hverja mannveru. Hann tekur hægast breytingum, þó getur hann breyst eftir þroska okkar. Innsta Ijósið er geisli úr sól guð- dómsins." ÁLFAR OG HULDUFÓLK Erla Stefánsdóttir segir aö náttúran sé krökk af lífverum sem tilheyri annarri þróunarleið lífs- ins en maðurinn og hafi líkamsgervi úr fíngerð- ara efni en flestir skynja. Verur þessar eða náttúruandar lifa á ýmsum stöðum: viö vötn, í sjó, í skógum, steinum og klettum, I lofti og jafnvel í híbýlum manna. „í mörgum fjöllum eru náttúruandar sem við köllum fjallatíva, Ijós- miklar og undurfagrar verur með mikilli hreyf- ingu og streymi." Hún segir aö þessar verur séu ákaflega fjölbreyttar, bæði aö stærð og út- liti og hvað varðar þroska og innræti. „Huldu- fólk er líkt okkur, bæði I háttum og útliti. Álfar eru fíngerðari. í kjarri og skógum búa Ijúflingar. Svifléttar verur sem klæöast gjarnan frísklegum litum á sumrin en á veturna sjást þeir ekki.“ Erla sér einnig búálfa og blómálfa í hverjum garði og á flestum heimilum. „Það er misjöfn útgeislun frá hverju blómi, í ýmsum lit- brigðum. Á sumrin, þegar blómin eru í fullum skrúða, má sjá blómálfa á flugi milli blómanna. En svo hefur hvert blóm sinn staðbundna álf og eru þeir líkir að lit og litir blómsins sem ver- una ber. í kaktusum eru blómálfar mjög litríkir og eru verurnar þéttari og efnismeiri en í öðr- um blómum. Lítill vandi er að tala við blómin eða hugsa til þeirra. Mjög gott er að láta blóm- álfana vita áður en blóm eru klippt eða umpott- uð.“ BLÓMÁLFAR OG FRUMSKYNJUN JURTA Það er athyglisvert að árið 1966 uppgötvaði Cleve Backster, bandarískur hugvitsmaður og hönnuður fyrsta lygamælisins, svonefnda frumskynjun („primary perception") sem jurtir og jafnvel einfrumungar eru taldir búa yfir. Síð- an hefur stór hópur vísindamanna við dulsál- fræðideildir háskóla víða um heim rannsakað viðbrögð jurta og eru enn að gera merkar upp- götvanir á þessu sviði. í grein, sem birtist um þetta efni í Wall Street Journal árið 1972, sagði um niðurstöður þessara tilrauna: „Rannsóknir Backsters virðast benda til að auk þess aö búa yfir eins konar fjarhrifasam- bandi búi jurtir yfir einhverju sem er mjög áþekkt tilfinningum eöa geðhrifum . .. Þær kunna að meta það þegar þær eru vökvaðar. Þær verða áhyggjufullar þegar hundur kemur nálægt þeim. Þaö líður yfir þær þegar ofbeldi ógnar velferð þeirra og þær sýna samúö þegar spendýr og skordýr í návist þeirra verða fyrir skaða." Bandaríski vísindamaöurinn Marcel Vogel endurbætti rannsóknartækni Backsters og uppgötvaði ýmislegt nýtt um eiginleika jurt- anna. í fyrirlestri, sem Vogel hélt um athuganir sínar, sagði hann meðal annars: „Þaö er staðreynd aö maður getur haft og hefur sam- band við jurtalífið. Það getur vel verið að jurt- irnar séu blindar, heyrnarlausar og mállausar í mannlegum skilningi en fyrir mér er þaö eng- inn vafi að þær eru yfirmáta næm tæki til að nema mannlegar tilfinningar... Jurt og maður geta ekki aðeins haft samband sín I milli held- ur er hægt að skrá þetta samband niður á sjálf- virkan skrifara með aðstoð jurtarinnar.“ Getur verið að svonefnd frumskynjun plantna sé í raun og veru tilfinningar eöa geð- hrif blómálfanna? HUGFORM OG ÁLFABYGGÐIR REYKJAVÍKUR Erla skynjar jafnframt hugform staða og bygginga. Hún segir að hugform í bláum og gylltum litum fylgi kirkjum landsins, Ijós trúar- innar. „Við Strandakirkju má sjá bjarta Ijós- mikla veru, engil, og er hann kraftmikill og svo Ijóssterkur að hann sést úr mikilli fjarlægð eins og ofan af Hellisheiði. Yfir Helgafelli, eins og yfir flestum Helgafellum hérlendis, er fjólublátt Ijós eða hugform. Fjólubláa hugformið yfir Helgafelli tengist líklega helgi og átrúnaði frá liönum tíma. í Reykjavík og nágrenni býr margs konar álfakyn. Má þar nefna huldufólk, Ijúflinga, álfa, dverga, dísir og gnóma. Á Val- húsahæð eru álfar í björtum litum. í kringum Tjörnina eru Ijósálfar og litlir gnómar. Gnómar, sem nefndir eru jarðdvergar á íslensku, eru tæpt fet á hæð og virðast leggja mikið upp úr fjölskyldulífi. Gnómar geta verið örsmáir, 1-2 mm. Þeir fela fyrir manni lyklana og gleraugun og ýmislegt sem hverfur þó það sé fyrirframan nefið á manni. í Hljómskálagarðinum eru Ijúfl- ingar, bjartir og fallegir. Uppi á hæðinni norðanvert við Vífilsstaðavatn hefur líklega verið álfakirkja því enn má greina birtuna." DVERGAR OG FJALLATÍVAR Erla segir að sunnanvert við Seljahverfi í Breiðholti séu huldufólksbyggðir. „Ljúflingar eru í Fossvogi og í hólmanum í Elliðaánum eru dvergar, Ijúflingar og álfar. Sams konar líf er í Öskjuhlíðinni. í grasagarðinum í Laugar- dal eru mjög hávaxnir og skemmtilegir álfar. í Laugarnesi er álfakyn sem á ekki sinn líka annars staðar á landinu. í Viðey er mikið um álfa og huldufólksfjölskyldur því þar er ágang- ur manna Iftill. Dvergar búa í hrauni og nær byggðinni upp í Heiðmörk. Það eru dvergar neðan við Kópavogshæli og mjög skemmtilegt að líta yfir svæðið f kringum Kópavogs- kirkjuna. Þarna er mikið líf, huldufólk, álfar, dvergar og gnómar. Dvergarnir eru á stærð við fimm til sex ára börn og eru afskaplega iðnir. Þeir búa margir saman og í stærri samfélög- um.“ Erla segir að í Hafnarfirði sé mikið um álfa og dverga. „Yfir Hamrinum í Hafnarfirði er gul sól og fjólublár Ijósbogi. í Hamrinum eru glæst- ir salir, hátt til lofts og vítt til veggja og býr þar margt álfa. Er líkast sem einhver verndarvætt- ur sé í tengslum við Hamarinn og haldi vernd- arhendi sinni yfir bænum. Yfir Reykjavík er stór bláhvítur tívi sem er eins og verndarvætt- ur borgarinnar. í Esjunni eru tveir fjallativar. Annar er tengdur árstíðunum og hverfur svo til yfir veturinn en sá blái sést alltaf í suðurhlíð Esju, séð frá Reykjavík. Víða um land eru huídufólksbyggðir. Kirkja huldufólks er að því leyti frábrugðin að krossinn hefur tíu arma í tíu áttir en ekki fjóra eins og hjá okkur." HULDULANDSLAG OG ORKUBRAUTIR Erla segir að landslag álfa og manna sé yfir- leitt það sama. „Stundum kemur fyrir að veðurfar hjá álfum sé annað en hjá okkur.“ Erla hefur jafnframt talað um að kraftlínur eða dularfullar orkurásir liggi um landið og alla jörð. Þetta minnir um margt á rannsóknir fræði- manna á ley-línum Englands og hugmyndum Forn-Kínverja um drekaslóðir sem jarðorka streymir um. í ferðabók Ernst Börschman um Kína er sagt um þessar drekaslóðir: „Vissir fjallatoppar eru þaktir musterum og litlum hof- um og helgistöðum til að samræma töfrakraft himins og jarðar. Viss orka streymir þar út, ekki ósvipað og segulkraftur út úr grönnum vír- enda. Kínverjar álitu ákveðið segulsvið vera eitt af birtingarformum náttúrunnar.“ Erla fjallar um þessar orkubrautir íslands. „í gegnum Snæfellsjökul tengjast stærstu og kraftmestu brautirnar. Snæfellsjökull er ein af 16 VIKAN 8. TBL. 1990
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.