Vikan - 19.04.1990, Blaðsíða 13
KONUR í
STJÓRNUNAR-
STÖRFUM:
„ÞAÐ VEL
ÁLLTÁ PERSÖNUNNISJÁLFRI.
Cathy fyrir utan skrifstofuna
þar sem nokkrir bílar eru
geymdir. „Við erum nánast
eingöngu með bíla frá Ford.“
- SEGIR CATHY BEYER
JÓHANNSSON, FRAMKVÆMDA-
STJÓRILUXVIKING,
í VIKUVIÐTALI
Cathy Beyer Jóhanns-
son er frönsk stúlka
sem vinnur hjá íslensku fyrir-
tæki í Lúxemborg. Hún er við-
kunnanleg að hætti franskra,
hefur þýska ákveðni og saman
blandast þetta ágætlega með
íslensku samstarfsfólki. Cathy
er framkvæmdastjóri Lux Vik-
ing bílaleigunnar sem flestir
Islendingar kannast við. Hún
er gift íslendingi og eiga þau
tvö börn. Nýlega keyptu þau
sér einbýlishús í Frakklandi,
rétt við landamæri Lúxem-
borgar.
„Það hefur ekki gengið
átakalaust að fá viðurkenn-
ingu í þessu franska samfé-
lagi,“ sagði Cathy þegar nýja
húsið bar á góma. „Frakkar
eru kreddufullir og vegna þess
að maðurinn minn er útlend-
Cathy á skrifstofunni sinni í
námunda við flugvöllinn. Þar
er hún allt í öllu.
ingur á ekki að veita okkur
sömu félagslegu þjónustu og
öðrum í þorpinu. Þettagengur
þó allt upp að lokum en ég hef
þurft að beita mér því þorps-
yfirvöld hafa dregið í efa að ég
hafi franskt vegabréf. Þetta er
óþolandi. Að tala um að Evr-
ópa verði einn markaður á
ekki við rök að styðjast. Þetta
verður kannski á borðum ein-
hverra stjórnmálamanna en
ekki í reynd næstu árin. Evr-
ópubúar eru alltof ólíkir inn-
byrðis."
Cathy vann áður hjá Avis
bílaleigunni í Lúxemborg og
þar var hún þegar henni var
boðið starf framkvæmdastjóra
hjá Lux Viking. En hvað varð til
að frönsk stúlka réð sig í vinnu
hjá íslensku fyrirtæki í Lúx-
emborg? „Ég hafði nokkra
reynslu á bílaleigumarkaðn-
um, var meðal annars fimm ár
hjá Avis og tvö ár hjá Budget.
Þegar eigendur Lux Viking
höfðu samband við mig fannst
mér það mjög eðlilegt því ég
er gift íslendingi og hef því
nokkur samskipti við íslend-
inga. Þetta gekk ekki alveg á-
fallalaust fyrir sig í byrjun. Hér
störfuðu aðeins íslendingar og
það getur verið reglulega erfitt
að vera útlendingur og vinna
eingöngu með íslendingum.
Þeir eru eins og lítil fjölskylda,
mjög samheldnir og ef þeir
vilja ekki láta vita um hvað ver-
ið er að tala nota þeir ísiensk-
una. Þegar maður skilur ekki
málið veröur maður utangátta.
Ég kom líka með nýja siði inn í
fyrirtækiö, siði sem tíðkast í al-
þjóðaviðskiptum. Það þýddi
uppstokkun á litla íslenska
fjölskyldufyrirtækinu. Það tók
menn tvo mánuði að sætta sig
við nýjar aðferðir en eftir það
var mér tekið sem einni af
hópnum. Það er gott að vinna
með íslendingum. Þeir eru ó-
sérhlífnir og duglegir. Ég hafði
áður unnið með Frökkum og
þeir vinna bara sína átta tíma,
hvað sem tautar og raular. ís-
lendingarnir vinna eins og þeir
eigi fyrirtækið. Flestir við-
skiptavinir okkar eru íslend-
Frá afgreiðslu Lux Viking á
flugvellinum i Lúxemborg.
Kristín afgreiðslustjóri
(vinstra megin) leiðbeinir
viðskiptavini.
ingar þótt Bandaríkjamenn og
aðrir Evrópubúar hafi aukið
viðskipti sín til muna síðustu
misseri. Bandaríkjamenn vilja
nýlega og góða bíla. Budget,
sem Lux Viking hefur nú um-
boð fyrir, er í beinu sambandi
við viðskiptavini sína og fá þeir
því alltaf bestu kjör sem völ er
á.“
Mikið hefur verið rætt um
konur í viðskiptalífinu. Dyrnar
virðast aðeins vera að opnast
fyrir þær í Evrópu. Margar eru
farnar aö vinna við hótelstjórn
og eru yfirmenn á ferðaskrif-
stofum. Er ef til vill betra að
hafa konu sem stjórnanda í
þjónustufyrirtæki? Gefum
Cathy orðið: „Það veltur auð-
vitað allt á persónunni sjálfri,
reynslu hennar og menntun.
Þegar ég var ráðin hjá Budget
í byrjun var það vegna þess
að ég fylgdist með og vissi
hvað var að gerast í fyrirtæk-
inu, ekki vegna þess að ég var
kona. Nýr starfsmaður er
einskis virði í upphafi ef hann
kann ekki neitt, ef byrja þarf á
að kenna viðkomandi allt.“
- Fá (slendingar betri kjör á
bílum en aðrir?
„Já, þeir fá betri kjör. Við
erum í mjög góðu sambandi
við íslenskar ferðaskrifstofur
og þær fá besta verð sem
hægt er að fá. (slenskir við-
skiptavinir eru okkur mjög dýr-
mætir og því viljum við gera
allt sem við getum til að gera
þá ánægða. Við höfum dýrar
geröir af bílum og allir okkar
bílar eru með útvarpi og flestir
með sóllúgu. Þetta er dýrara
hjá öðrum bílaleigum.“
Cathy er mjög ákveðin og
maður kemur ekki að tómum
kofanum hjá henni. Við segj-
um nú skilið við viðskipta-
sögurnar og taliö berst aö fs-
landi. „Ég hef komið fjórum
sinnum til íslands," segir hún,
„og það sem mér líkar best er
heita vatnið. Það er frábært að
geta verið í heitu vatni og synt
allan liðlangan daginn. Lita-
dýrðin i landslaginu er mjög
eftirminnileg, sterkir og fallegir
litir þegar sólin skín. Ég ætla
að heimsækja ísland oft í
framtíðinni," sagði fram-
kvæmdastjórinn Cathy Beyer
Jóhannsson hjá Lux Viking
bílaleigunni í Lúxemborg að
lokum.
8. TBL. 1990 VIKAN 13
VIÐTAL OG MYNDIR: PÉTUR STEINN