Vikan


Vikan - 19.04.1990, Side 18

Vikan - 19.04.1990, Side 18
|< , flA y SftCCAf- »r• J)CWcíl\ kcxYh i 0ci OvU'aVlilc ORKOSTööVAR V^lfl hua itUa m» { (tiayrii' sjö orkustöövum jaröarinnar. Hvert þessara náttúruljósa gegnir því hlutverki aö tengja saman alla sjö heima plánetunnar. Þetta hlut- verk er tvíþætt. Annars vegar mynda orku- stöövarnar sjö ólíka farvegi aö þróunarbraut- um fyrir allar vitundareindir sem byggja þessa jörö og hins vegar eru þær tengibrautir guð- dómsins viö sköpunina.“ HEIMARNIR SJÖ Heimarnir liggja hver inni í öörum og hafa mismunandi bylgjulengd, þéttleika og tíöni. Heimarnir eru sjö: geðheimur, hugheimur, inn- sæisheimur, andlegi heimurinn, eindarheimur og guðlegi heimurinn. Erla feröast um þrjá fyrstnefndu heimana í Ijósvakalikamanum. Hún sér hvernig sálarlíkaminn ertengdur jarö- líkamanum meö silfurstreng. í grein, sem hún ritaði í Morgun, segir hún frá reynslu sinni: „Fyrst safna ég vitund minni upp í höfuðið og fer svo út um ennisstöðina, því næst breiði ég gyllt Ijós yfir alla mína hér í heimi, því næst hitti ég vinina mína tvo, sem farnir eru (fyrrum læknar) og hafa þaö aö starfi að hjálpa öörum og förum viö þrjú saman á spítala og í hús, þar sem hefur veriö beöiö um hjálp. Víða hef ég komið og við margvíslegar aöstæður, bæöi til ungra sem aldinna. Síðan fer ég heim aftur, at- huga hvort fólkið mitt er sofnað og hverf inn í þá heima eöa sviö, þangað sem ég hef ætlaö mér, hvort sem þaö er inn í Geðheim - Hug- heim eöa Innsæisheim ...“ „Ekki skynjar allt fólk úr geðheimi okkur hér. Oft sé ég fólk sem kemur inn á heimili mitt en skynjar ekki okkur hér. Oft þegar gestir koma frá geöheimi myndast tilfinninga-geðlíkaminn sem gulhvítt egg og koma svo fram alls konar myndir og litir geölíkamans og myndir af fólk- inu eins og það var áöur en það fór eöa yngra .. .Aðrar verur en mannlegar eru í hug- heimi, margs konar dýralíf, sérstaklega fuglar. Þaö er meira samband milli álfa og manna í hugheimi en í nokkrum öörum heimi.. .Minn- ingar mínar frá innsæisheimi eru endalausar víddir, væri auðvelt aö týnast þar. Þar er fegurö, friöur og frelsi. Þar er tónlistin undur- samleg og allar listir stórkostlegar, allt fegurra og fíngeröara. Af fjólubláa sviðinu man ég eftir tignarlegum musterum, þar lifa menn trúna, þar tigna allir sömu lífsuppsprettuna." SEIÐMAGN SNÆFELLSJÖKULS Erla Stefánsdóttir hefur lýst hughrifum sín- um af Snæfellsjökli og komiö með góða skýr- ingu á þeim áhrifum sem fjöldi fólks af ólíku þjóöerni telur sig hafa oröiö fyrir í námunda við jökulinn. Hún kemst svo aö orði: „Snæfellsjökull er baðaður birtu sem sést frá Reykjavík, um 120-140 km f beinni loftlínu, hvernig sem viörar. Sunnanvert í jöklinum er þetta mikla Ijós og er Ijóskjarninn rétt viö jökul- röndina og fjallshlíðin öll bööuö þessu skín- andi Ijósi, rétt ofan viö eyðibýlið Dagveröará. Bjarminn eða ára Ijóssins, sem lítur út eins og tindrandi bjart litaflóö, nær um þaö bil tvo kíló- metra í allar áttir út frá Ijóskjarnanum. Þegar við náum sambandi viö Ijósið í jöklinum eru á- hrifin bjartur upphafinn fögnuður, djúp lotning og sterkt samband við landiö okkar.“ Orkustöðvarnar Yoga - heimspekin telur að maðurinn fái kraft sinn úr orku, sem fer um rás við hryggsúluna og út um sér- stakar orkustöðvar - chakras. Flestar orkustöðvarnar eru í tengslum við ákveðin líffæri. 1. Höfuðst.: Hvít Heilaköngull -Sahasrara: (m. fj.bláu) 2. Ennisst.: Indigó blá Heiladingull, - Anja: (m. hvítu) incalkirtill 3. Hálsst.: Græn Skjaldkirtill - Visuddha: (m. bláu) öndunarfæri 4. Hjartast.: Gul Hjarta, tímus, -Anahata: (m. grænu) hóstakirtill 5. Magast.: Rauð-gul Meltingarkirtlar. -Manipura: (m. gulu) bris 6. Miltisst.: Rauð Milta, nýrna- - Svadhistana: (m. r.-gulu) hettur, kynkirtlar 7. Mænurótarst.: Fjólurautt Mænurót, enda- -Muladhara: (m. hvítu) stöð f. brautirnar tvær, YIN-YANG Erla Stefánsdóttir segir að maðurinn hafi sjö ólíka tikama eða árur. Þessi mynd er dæmi um fjölmargar teikningar sem Erla hefur gert af orkulíkömum einstaklinga. HEIMILDIR: Huldir heimar, sjónvarpsþáttur i umsjón Ásthildar Kjartans- dóttur. Dulræn reynsla sjö kvenna, Morgunn - tímarit Sálar- rannsóknarfélagsins. Lífssýn - samtök til sjáifsþekkingar eru samtök fóiks sem hefur verið á námskeiðum hjá Erlu og Erni. Lífssýn hefur gefið út þessa skýringamynd af sjö orkustöðvum mannsins. 1 8 VIKAN 8. TBL. 1990 ■v

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.