Vikan


Vikan - 19.04.1990, Side 30

Vikan - 19.04.1990, Side 30
Flest höfum viö lent í því aö vera tímabundiö á milli tannanna hvert á öðru. Engum finnst gaman aö veröa bitbein rógs eöa kjafta- sagna. Viö erum viökvæm fyrir umtali, nema náttúrlega að umræöan gangi út á hæfileika okkar og kosti. Því miður er þessu oftast öfugt farið, þaö er ýmist verið aö fjalla um galla okkar eða hugsanlegar syndir á hásgekingslegan hátt, okkur til mikillar mæöu. Oftast þarf sáralítiö til aö koma kjafta- gangi af staö. Mikið er talaö um náungann í kaffitímum hjá hinum ýmsu stofnunum og fyrirtækjum. Eins þrífast slúö- ursögur ágætlega á sumum heimilum og í félagasamtök- um. Þær geta lifaö góöu lífi á kaffihúsum og raunar hvar Jóna Rúna Kvaran hóf að rita greinar fyrir Vikuna í síðasta tölublaði. Nú skrifar hún um sögusmetturnar sem eru oft ótrúlega vinsælar þegar fólk er saman komið í boðum, á vinnustöðum og kaffihúsum. Af hverju? sem okkar athvarf er. Sumir segja að kvennaklúbbar séu stigahæstir í þessum efnum. Því er að sjálfsögöu vísað á bug því karlpeningurinn er framtakssamur í þessu sem ööru en fer leynt meö þaö. Oft- ast bera karlar líka einhverja konu fyrir slúðrinu, sem sagði náttúrlega karlvini söguna í al- gjörum trúnaöi. Hvaö sem öllum getgátum líður í þessum efnum er hvim- leitt aö veröa aö viðundri, þeg- ar illar tungur hafa gefiö okkur vitnisburö sinn, yfirleitt án þess aö þekkja haus né sporö á okkur. Best væri ef allir fengju aö gefa þá mynd af sér sem gefur gleggsta hugmynd um hvaða mann viö raunveru- lega höfum aö geyma. Til þess aö slík bjartsýni sé möguleg verðum viö aö hafa fyrir því aö kynnast persónulega öllum þeim sem okkur eru sagöar kjaftasögur af. Heldur óáhuga- vert eða hvaö? SLÚÐURVÉLIN FER í GANG ímyndum okkur aö þrjár manneskjur hittist af tilviljun í gamla miðbænum í höfuö- borginni. Þær hafa verið aö kaupa sitt af hverju til heimilis- ins. Þetta eru góðir kunningj- ar og þær rabba saman um stund. Svo stingur ein upp á þvi að þær ættu kannski aö skreppa inn á Skálann og fá sér kaffisopa meöan þær tal- ast við. Þaö er samþykkt. Þær eru ekki búnar aö sitja þar lengi saman við borð áöur en ein fer aö segja einhverja hneykslissögu af einhverjum sem hinar tvær þekkja. Og nú er vélin komin í gang. Þær taka nú að keppast við að segja eitthvað misjafnt um aðra fjarstadda. Þær hafa myndaö þarna eins konar mið- stöö sem hamast viö aö senda frá sér neikvæðar hugsanir í allar áttir. Eru þetta þá slæmar manneskjur? Ekki er almennt litið svo á enda gera þær yfir- leitt aldrei beinlínis vísvitandi á hlut annarra. En þaö er nú einhvern veginn svo aö þegar slíkt fólk talar saman og vill láta taka eftir sér velur þaö umtalsefni sem flestir vilja hlusta á og þaö eru einmitt yfirsjónir annarra. Flestir eru haldnir vanmeta- kennd og þeim þykir draga svolítið úr henni ef bent er á galla annarra. Fólk gleymir því að neikvæöar hugsanir geta valdiö skaða eins og jákvæöar hugsanir geta styrkt góöar manneskjur. SÁUM HELDUR GULLKORNUM Hneykslissögur um náungann eru ekki líklegar til aö auka trú fólks á mikilvægi jákvæös manngildis heldur þvert á móti eins og áður er sagt. Flestir skammast sín eftir á fyrir slíkt þvaöur um fjarstatt fólk en þaö er ekki nóg. Hvers vegna ekki að venja sig hreinlega á aö ræöa aöra ekki neikvætt nema sá sem umræðan fjallar um fái aö vera viðstaddur og bera hönd fyrir höfuö sér? Þaö væri sanngjarnt. Eöa hvað finnst þér? Ekki væri heldur úr vegi aö venja sig á aö tína oftar til áhugaverða eiginleika ann- arra, jafnvel aö tilefnislausu. Þannig eigum við óbeinlínis þátt í aö greiða götu annarra og jafnvel veröa til þess aö gleöja fólk án þess að krefjast endurgjalds. Ef viö kjósum aö vinna í þjónustu kærleikans skulum við því forðast nei- kvæöar hugsanir eftir bestu getu og gæta hugsana okkar vel. Reynum heldur aö taka þátt í hinu gagnstæða, aö bæta heiminn svolítiö meö því aö bæta okkur sjálf. ALDREI OF VARLEGA FARIÐ Sögusmettur eru oft ótrúlega vinsælar þegar fólk er saman komiö í boðum, á vinnustöö- um og kaffihúsum. Af hverju? Því þær halda yfirsjónum ann- arra áþreifanlega á lofti og fólk hlustar og hefur frásagnirnar jafnvel eftir. Ekki er fjarri lagi að álykta aö eftir slíkan óhróö- ur um náungann þjáist gott fólk af óþolandi sektarkennd og sé jafnvel hneykslaöra á sjálfu sér en þeim sem aö ósekju fékk umfjöllunina. Nú er svo í lifinu að hver persóna er á einhvern hátt frábrugðin annarri. Til er fólk sem alls ekki getur fariö hefð- bundnar leiðir aö markmiðum sínum, er sem sagt ööruvísi en heildin. Þetta fólk liggur oft vel viö sögusmettum. Þaö kannski tjáir sig lítið um fyrir- ætlanir sínar og fer á móti straumnum til árangurs. Þann- ig fólk á oftast undir högg aö sækja þegar kemur aö umfjöll- 30 VIKAN 8. TBL. 1990

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.